Síða 1 af 1
Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 11:26
af Gisminn
Eins og sést þá er tíkin dálítið ör en lætur samt að stjórn. eftir 3 aðrar var hún kjurr á hæl en hún lætur fiðrið ekkert bögga sig og finnst þetta alltaf jafn gaman sem betur fer
Og ég hálf vorkenni rjúpuni því hún finnur þær og lætur mig vel vita að það sé rjúpa á svæðinu.
Vinur minn Höskuldur tók þetta upp á símann sinn
http://www.youtube.com/watch?v=lVIOwvOGIx0
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 13:43
af 257wby
Gaman að þessu, og virkilega flott tík sem þú átt !
Kvv.
Guðmann
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 14:59
af Gisminn
Takk vinur
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 17:29
af Dr.Gæsavængur
Skemmtilegt myndband! Góður hundur sem þú átt! Tíkin mín sótti einmitt sínar fyrstu rjúpur um liðna helgi. Ég held að þetta hafi verið einn skemmtilegasti dagur lífs hennar til þessa! Svo ég tali nú ekki um hvað þetta gerir fyrir mig.. Gerir þetta fína sport enn betra! Vonandi verða þeir mikið fleiri þessir góðu dagar..
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 18:20
af Skombo
Fanta flott tík hún Snotra, gaman að sjá þetta.
Kv. Kjartan Antonsson
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 20:18
af Haukur
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 20:44
af Gisminn
Þetta eru bestu veiðifélagarnir
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 21:16
af iceboy
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 22:02
af Gisminn
Takk og jú ég reyni að skilja ekkert eftir mig nema sporin en það kemur fyrir á gæs að gamli remminn minn spýtir skothylkjunum full langt og það fer smá tími í að finna þau en það er ekkert mál með svona 36 gramma númer 6 eins og ég nota á rjúpu. Ég sé að Artý er með einbeitinguna á hreinu á myndunum og hamingjan í botni
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 31 Oct 2012 22:17
af iceboy
Já einbeitingin og hamingjan var sko alveg til staðar. Enda vinnugleðin endalaus.
Rakkinn stóð sig mjög vel líka en ég er ekki með mynd af honum á veiðum núna.
Ég þarf að skella inn einni mynd af hundonum mínum við tækifæri, svona ef ég næ að láta hvolpinn sitja kyrran nógu lengi til að ná mynd af þeim öllum saman.
Það er ótrúlega gaman að hafa hund með sér á veiðum og mig langar að kikja á rjúpu einn dag um helgina ef veðrið gengur niður, bara til að leyfa tíkinni að sækja aðeins meira, rakkinn sótti megnið af fuglinum um þessa helgi.
Re: Snotra og ég á fyrsta degi rjúpna
Posted: 01 Nov 2012 14:40
af Gisminn
Heyrðu Árnmar þú ættir að senda neðri myndina í myndasamkeppnina hjá Kjartani Antons
Þetta er flott mynd og svo líka bara svona að vera með
http://vorsteh.weebly.com/zelda.html
Lengst til hægri á síðuni efst þar stendur myndasamkeppni.