Ég er með þetta í Iphoneinum. Ég held að það sé ekki svoleiðis fídus. Ef kúlan lendir ekki þar sem forritið spáir þá er maður að setja inn einhverja vitlausa breytu. Ef maður veit hraðan og BC stuðul kúlunnar og kúlan fer ekki þar sem forritið segir, þá er sjónaukin að trakka vitlaust eða maður er að halla rifflinum, eða maður setti inn rangar upplýsingar um hita og loftþrysting.
Ef maður er ekki viss á hraða eða BC stuðli verður maður að prófa sig áfram með því að breyta þeim stillingum og finna út hvar það passar. Maður verður eiginlega að vita annað hvort með vissu, helst bæði.
En ég verð að kíkja á þessa þætti og sjá hvað þeir eru að nota þar ( grunar að það sé
Patagonia ballistics ), hef samt ekki trú á því að það sé það besta, að bakreikna svona. Það fær menn til að sleppa því að passa að allur búnaðurinn er í lagi og allar tölur réttar og frekar bara bakreikna og svo þegar breyta á um færi virkar það ekki eins vel og ef þetta er allt pottþétt í upphafi.
En þetta forrit er dead on ef ég geri allt rétt og hefur eitt umfram hin forritin en það er leiðrétting fyrir target-turnana, þ.e.a.s að sjónaukin trakkar yfirleitt ekki 100% rétt, til dæmis ef ég still hann 30 MOA þá fer hann í raun bara 28,5 eða eitthvað svipað. Þetta er hægt að mæla og gera ráð fyrir þannig að forritið miðar við þinn sjónauka.