Nýr lás

Allt um græjur og búnað sem tengjast byssum, beint eða óbeint.
Daði Sako
Póstar í umræðu: 2
Póstar:5
Skráður:20 Sep 2012 15:23
Nýr lás

Ólesinn póstur af Daði Sako » 20 Mar 2013 18:29

Sælir
Ég er með sako 75 22-250 í fínu standi. Mig langar að smíða mér 6 mm 284. Nú er málið á ég að rífa sako eða selja hann og kaupa nýjan lás?.
Vitið þið hvað kostar að fjárfesta í nýjum lás í svipuðum gæðaflokk :?:

Gísli Snæ
Póstar í umræðu: 2
Póstar:475
Skráður:12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af Gísli Snæ » 20 Mar 2013 19:13

Sæll Daði

Held að Stiller lásar sem Hlað selur séu einhverstaðar í kringum 200 þúsund - þ.e. bara lásinn (vantar gikk, magasín). Smíðaðu bara úr Sako lásnum - ekki spurning.

Og muna - setja undirskrift við póstana þína.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is

User avatar
gylfisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:598
Skráður:22 Feb 2012 13:03

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af gylfisig » 20 Mar 2013 19:18

'i sjálfu sér ekkert að því að nota Sako lásinn.
Er það vegna þess að hlaupð er ónýtt sem þú ætlar í þessar breytingar?
Ef þú ætla að kaupa einhvern notaðan lás, þá máttu búast við því að þurfa að snara út amk. 100 kalli, ef ekki meiru. Nú, og custom lásar eru enn dýrari.
Ódýrast er þá fyrir þig að nota Sako lásinn þinn. Velti líka fyrir mér þessu vali á kaliberi.
6mm 284 er mikill hlaupabrennari, trúlega einn af þeim duglegri, í þeim efnum.
Vissulega flatt hylki, með flatan feril. En eins og ég bendi á, þá eru ókostir sem fylgja þessi caliberi.
Þessi lás býður upp á mörg önnur skemmtileg caliber sem vert er að skoða.
Þar nægir að nefna 6 BR, 6,5x 47, 7mm08, 308 win, og reyndar nokkur fleiri.
Þetta eru þau hylki sem ég myndi helst skoða, með tilliti til nákvæmni, og vargskotfimi mun frekar en 6 mm 284
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík

Daði Sako
Póstar í umræðu: 2
Póstar:5
Skráður:20 Sep 2012 15:23

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af Daði Sako » 21 Mar 2013 10:36

Það er komið að hlaupskiptum og þess vegna eru þessar pælingar.
6 mm 284 er bara della sem mig hefur leingi langað að prófa, annars hef ég líka verið að spá í 6BR. Það er eithvað við hraðan 8-) öll mín vopn virðast altaf enda í hámari hjá mér?

Sigurður Daði Friðriksson
Því miður Kóp

Gísli Snæ
Póstar í umræðu: 2
Póstar:475
Skráður:12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af Gísli Snæ » 21 Mar 2013 10:58

Ef ég ætti að velja þá yrði 6 BR frekar fyrir valinu. Og notaðu Sako lásinn og síðan er alltaf hægt að skreppa upp í Hlað og smella sér á GRS skefti :)
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 21 Mar 2013 21:36

6-284 er alveg á pari við 22-250 og að mörgu leita elilegt framhald af honum!
En hafðu það í huga að 6-284 er ekki gerður til að skjóta mikið þyngri kúlum en 70 gr.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

Sigurður Páll
Póstar í umræðu: 1
Póstar:16
Skráður:14 Jul 2012 03:20
Staðsetning:Dalvík

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af Sigurður Páll » 21 Mar 2013 21:51

Sæll nafni
Fer það nú ekki eftir twistinu í hlaupinu sem hann tekur hvað hægt er að skjóta þungum kúlum?
kveðja Sigurður
Sigurður Páll Gunnarsson
Skógarhólum 14
620 Dalvík

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 22 Mar 2013 07:35

Það er yfirleitt verið með hægt tvist í þessu kaliberi 6-284 svona 1:12 til 1:14 til að það njóti allra hæfileika sinna.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

User avatar
GBF
Póstar í umræðu: 1
Póstar:31
Skráður:25 Apr 2012 19:57

Re: Nýr lás

Ólesinn póstur af GBF » 22 Mar 2013 09:15

Er stuttur lás endilega það heppilegasta fyrir þetta annars ágæta hylki ? Nú er hylkið sjálft heilir 55mm að lengd. Ég var með 6mm Remington (57mm) í stuttum lás og var ekki hrifinn af fyrirkomulaginu.
Georg B. Friðriksson

Svara