Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Hvar finn ég átakslykil (torque wrench) á sanngjörnu verði? Þarf að ráða við 1-5 Nm, t.d. við að festa sjónauka eða herða skefti á lás (ekki pillar beddað). Brownells er með einn gæðalegan, 1-8 Nm en hann kostar hálfan handlegg hingað kominn, ca 30-35 þ.
Proxxon er með nokkur verkfæri sem líta vel út, 1-5 Nm er á ca 12-13 þ hingað kominn:
http://www.bike-discount.de/shop/k1242/ ... c-5-s.html
Logey í Kópavogi er með einn en hann nær bara upp í 4 Nm og kostar um 19 þ.
Öll tips vel þegin.

Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Er sjálfur með Wheeler Fat wrench - hvað kostar hann hingað kominn? Get mælt með honum.
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Góð ábending, ræður við tog 1-7 Nm (10-65 in-lb) sem er kostur. Hins vegar sendir hvorki Brownells eða Amazon þennan út fyrir USA, líka uppseldur á Brownells. Kostar ca 50$ úti, verðið hingað kominn væri í kringum 11-12 þ. Þá er bara að leita að einhverjum sem sendir...
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
- Ingvi
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:41
- Skráður:23 Jul 2013 10:28
- Fullt nafn:Ingvi Reynir Berndsen
- Staðsetning:Akureyri
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Gap var á ca 10.000
Ingvi Reynir Berndsen
Savage 10/110 FCP HS Precision
Finn Classic 512
Remingtone 870
Xreme 2
CZ 455
Savage 10/110 FCP HS Precision
Finn Classic 512
Remingtone 870
Xreme 2
CZ 455
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Sæll SveinnSveinn skrifaði:Góð ábending, ræður við tog 1-7 Nm (10-65 in-lb) sem er kostur. Hins vegar sendir hvorki Brownells eða Amazon þennan út fyrir USA, líka uppseldur á Brownells. Kostar ca 50$ úti, verðið hingað kominn væri í kringum 11-12 þ. Þá er bara að leita að einhverjum sem sendir...
Hefuru athugað hvað kostar að fá hann í gegnum ShopUSA?
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
- maggragg
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1284
- Skráður:02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
- Staðsetning:Hvolsvöllur
- Hafa samband:
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Þennan hafði ég hugsað mér að panta mér fljótlega, reyndar búið að standa til lengi, svo spurningin er hvað er fljótlega. Finnst hann sniðugur og fjölhæfur.
graejur/borka-herslulykill-t312.html
graejur/borka-herslulykill-t312.html
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Sælir dregir
Það er líka spurning að fara bara stuttu leiðina og þá ódýru og kaupa bara hersluskrúfjárn frá toptul
það eru margar verslanir með vörur frá þeim á boðstólum,hersluskrúfjárn frá þeim (1-7 nt)kostar 10,000 kr og er það til á lager innflytjanda.

Takk fyrir þetta, strákar, vildi endilega fara stuttu leiðina, þess vegna auglýsti ég eftir hugmyndum
Tékkaði á Toptul græjunum hjá Sindra, Viðarhöfða, R., gæði og verð virkaði vel á mig og starfsmenn vel með á nótunum.
Fékk mér Toptul hersluskrúfjárn í 1-8 Nm (spekkar segja 1,5-8 Nm en skalinn fer niður í 0,8 Nm) sem er akkúrat það svið sem tekur allar herslur sem rifill og kíkjafestingar þurfa, nema að skrúfa á hlaup. 1-8 Nm er 9-71 in-lb í imp kerfinu. Gert fyrir 1/4" bita (standard bitar, sexkantur og torx). Kemur með T-skafti sem hægt er að smeygja í botninn á því, ef vill.
Linkur á græjuna á vefsíðu Toptul.
Verðið er rúmar 11 þ. kr. Nú er bara að ná sér í bita í tommumáli - eða þjala gætilega til mm bita...

-
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:109
- Skráður:13 Dec 2012 20:55
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Rólegur með þjölina,flest bitasett eru 1/4" held ég örugglega. Ég þarf að fá mér svona lítinn herslumæli við tækifæri líka
Sveinbjörn V. Jóhannsson
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Stemmir, 1/4" er standard sæti fyrir bita. Hinn endinn er málið... Ég veit, um leið og bitinn hitnar er hann ónýtur
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
- Aflabrestur
- Póstar í umræðu: 4
- Póstar:490
- Skráður:25 Feb 2012 08:01
- Staðsetning:Sauðárkrókur
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Sælir.
Svona í framhaldinu vitið þið um eh. svipað sett og þetta hér:
http://www.amazon.com/TEKTON-2841-Elect ... pd_cp_hi_0
sem fæst hér heima er mest að spá í tommu sexkanntbitana en þetta væri flott til að hafa í töskunni með Fat Max hersluskrúfjárninu mínu

kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Ég keypti tommu sexkant í Ísól í Ármúlanum, þú gætir athugað hjá þeim.
Kveðja,
Gunnar Júlíusson
Gunnar Júlíusson
-
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:285
- Skráður:11 May 2013 21:37
- Fullt nafn:Jens Jónsson
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Það gæti líka verð hægt að fá tommubita í Fossberg eða skrúfur sem eru fyrir Tors
En ef menn ætla skipta um skrúfur þá er líklegt að þetta séu tommu gengjur það er allavega betra að hafa með sér sýnishorn og þetta gæti líka verð sterkari skrúfur en venjulegar það er 10-9 eða 12-9
En ef menn ætla skipta um skrúfur þá er líklegt að þetta séu tommu gengjur það er allavega betra að hafa með sér sýnishorn og þetta gæti líka verð sterkari skrúfur en venjulegar það er 10-9 eða 12-9
Jens Jónsson
Akureyri
Akureyri
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Hvernig er það félagar er þetta tæki alveg nauðsinlegt ??? var að fatta að kíkirinn á tikkunni var orðin laf laus og hittnin eftir því ,,, hann var nú samt settur á af byssusmið sem hefur fúskað
eitthvað við djobbið og ekki verið að ónáða sig með svona herslumæli,,,,
eitthvað við djobbið og ekki verið að ónáða sig með svona herslumæli,,,,
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
BKV. Karl Guðna.
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Þarf ekki að vera byssusmið að kenna, þessar skrúfur geta losnað með tímanum, sérstaklega á léttum byssum með góðu bakslagi. Sérstaklega ef þetta eru álhringir, þar eru menn feimnari að herða. Margir mæla með bláu (non-permanent) Loctite á gengjur.
Almenn hersluviðmið fyrir álhringi er á bilinu 1,1-2,3 Nm, fyrir stálhringi 1,7-2,8 Nm. Betra að byrja neðar og sjá hvernig það heldur. Sumir framleiðendur gætu verið neðar, aðrir ofar. Ódýrir kíkjar þola varla þessi hærri mörk. Birt algerlega án ábyrgðar
Almenn hersluviðmið fyrir álhringi er á bilinu 1,1-2,3 Nm, fyrir stálhringi 1,7-2,8 Nm. Betra að byrja neðar og sjá hvernig það heldur. Sumir framleiðendur gætu verið neðar, aðrir ofar. Ódýrir kíkjar þola varla þessi hærri mörk. Birt algerlega án ábyrgðar
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Þetta er Tikka Varmint 270 w, skotin ca 40 skotum þegar þessar lélegu grúbbur gerðu vart við sig en var bara ekki að fatta að kíkirinn væri laus ,,, fynnst það ekki viðunandi að dótið hristist í sundur eftir nokkur skot,,, rándýrir basar og hryngir undir 170 þús. kr. kíki,,, ef þetta er eitthvað sem má búast við er þá ekki rétt að nota gengjulím ???
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
BKV. Karl Guðna.
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Rétt, þetta er engin ending á herslu. Hvaða basa og hringa ertu með?
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
þekki það ekki en er frá ellingsen og var sagt vera mjög góðir basar og hryngir ,,, en hvernig er það er ekki í góðu lagi að nota gengjulím ???
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
BKV. Karl Guðna.
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Þá eru þetta Tikka basar og Sako optilock hringir en með gengjulímið er spurning ég hef ekki lent í veseni með mínar svona samsetningar en ég reyndar er ekki með herslu lykil heldur herði bara þétt með lengri endanum á lyklinum og svo 1/6 úr hring í viðbót með styttri endanum og svo ath ég þetta þegar ég þríf með lengri endanum ekki enn verið laus skrúfa en ég geri þetta samt.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?
Tikka mælir með þessari herslu á Optilock (hef ekki upprunaheimild við hendina en er 100% viss):
hringi á basa: max 5,2 Nm
(held að það sé miðað við Optilock 2pc basa, ekki rail eins og á Tikku Varmint, ætti þá að vera minna eða ca 2,5 Nm)
Hringir: 1,7 - 1,9 Nm
Ekki verra að nota blátt Locktite en það á ekki að þurfa.
Rétt, færð varla betri festingar.