VHF stöðvar frá Kína

Allt um græjur og búnað sem tengjast byssum, beint eða óbeint.
Sveinn
Póstar í umræðu: 3
Póstar:166
Skráður:07 May 2012 20:58
VHF stöðvar frá Kína

Ólesinn póstur af Sveinn » 06 Nov 2015 21:02

Sælir/ar
Hafa menn reynslu af VHF handtalstöðvum frá Kína? Vefsíður bjóða upp á vatnsheldar 10W VHF/UHF stöðvar með mic/spkr tengjum á 5x lægra verði en sambærilegar stöðvar í spekkum í búðum hér. Kaupa 2 og treysta á að önnur virki? Var með viðurkennt merki í talstöðvum í UHF um síðustu helgi á rjúpnaveiðum sem dó á óheppilegum tíma...
Síðast breytt af Sveinn þann 06 Nov 2015 21:55, breytt í 1 skipti samtals.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson

Sveinn
Póstar í umræðu: 3
Póstar:166
Skráður:07 May 2012 20:58

Re: VHF stöðvar frá Kína

Ólesinn póstur af Sveinn » 06 Nov 2015 21:05

Sömu kínversku framleiðendur btw framleiða mikið af græjum fyrir viðurkennda framleiðendur t.d. Vertex og Motorola...
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: VHF stöðvar frá Kína

Ólesinn póstur af Gisminn » 07 Nov 2015 17:56

Passaðu bara að þær séu CE merktar annars fá þær ekki að koma til landsins ég lenti í því
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

Sveinn
Póstar í umræðu: 3
Póstar:166
Skráður:07 May 2012 20:58

Re: VHF stöðvar frá Kína

Ólesinn póstur af Sveinn » 07 Nov 2015 20:42

Er svona að spá og spekúlera, vil heyra reynslu manna af talstöðvardóti frá Kína, sporin hræða... En já, þær eru CE merktar. Myndi taka inn nokkrar til vara til að koma í stað einhverra bilaðra ef menn vilja versla. Verðið yrði ca 13-14 þús ISK hingað komið pr stk. VHF á að duga betur á fjöllum. Helstu spekkar:
VHF/UHF dual band
vatnsheldar/rykþéttar skv. IP67 staðli
10 W út
2200 mAh batterí
Hleðsla dugar ca 20 tíma við venjulega notkun
hleðslustöð
mic/speaker tengi, hægt að fá vatnsheldan lögguhnapp (combó mic/speaker á kraga) aukalega
Enginn skjár en uppl um hleðslu o.fl. með enskum skilaboðum
VOX (voice activated sending)
og svo fullt af öðrum spekkum sem ég get sent á menn ef þeir hafa áhuga.
Sendið mér ES eða póst á sveinn@primordia.is ef áhugi er á hóppöntun.
Hef kaupendur að ca 4-6 stk en þarf ca 6 í viðbót a.m.k., þeim mun fleiri þeim mun betra verð.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson

Einar P
Póstar í umræðu: 1
Póstar:45
Skráður:24 Apr 2012 18:53
Staðsetning:Svíþjóð

Re: VHF stöðvar frá Kína

Ólesinn póstur af Einar P » 07 Nov 2015 20:51

Ég er með 155 mhz stöðvar frá Baofeng UV-8HZ og þær virka mjög vel.
Kveðja frá Svíþjóð.
Einar P.

Konni Gylfa
Póstar í umræðu: 1
Póstar:69
Skráður:24 Oct 2012 19:01

Re: VHF stöðvar frá Kína

Ólesinn póstur af Konni Gylfa » 08 Nov 2015 21:13

Sælir. Mig langar nú mest að kaupa mér garmin rino 650N sem er gps og vhf.
Hefur einhver hér reynslu af þeim tækjum?
Það er amk dýrt að kaupa vandaðar vhf stöðvar hér heima en ef það væri hægt fyrir ca 15-20 þús þá væri það gott mál. langar að skipta út garmin tækinu mínu og fara í nýrra og þá væri upplagt að taka rino tækið og hafa talstöð með í sama tæki.

Kv Konni
Konráð Gylfason konni.mve(hjá)gmail.com
8494968

User avatar
maggragg
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1284
Skráður:02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
Staðsetning:Hvolsvöllur
Hafa samband:

Re: VHF stöðvar frá Kína

Ólesinn póstur af maggragg » 08 Dec 2015 21:30

Hef nýlega fjárfest í Baofeng UV-5R stöð frá Kína. Eru á mjög góðu verði og forritanlegar. Eru yfirleitt í 4w en til í 8w útgáfum. Eru ekki vatnsheldar en að öðru leyti nokkuð nettar og skemmtilegar.

Er ekki kominn með mikla reynslu af þessari stöð, en sem neyðarstöð myndi ég sennilega fá mér einfalda vatnshelda eins og Sveinn er að spá í. Læt kannski frétta hvernig þetta reynist en eina tíðninn sem maður má nota er 45 nema vera í klúbbum eins og 4x4.

Er að skoða hvort að Skotfélagið fá sér tíðni fyrir sína félagsmenn.
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"

Svara