Drag-dúkur
Sælir
Getur einhver leiðbeint mér með það hvað sé best í þeim efnum? Allar ábendingar vel þegnar.
Veit svo sem ekki hvort það á eftir að koma að notum en ég er að fara á svæði 4 í fyrsta skipti og skilst að það sé erfitt að komast yfir það svæði á vélknúnum ökutækjum.

Mbk.
Þórarinn Ólason
Þórarinn Ólason
Re: Drag-dúkur
Var ekki Málmtækni með svoleiððis annars má notast við margt eða sleppa því
Hver fer með þig?
Hver fer með þig?
E.Har
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Drag-dúkur
Ef þú ert með Tudda þá hefur reynst mér ágætlega að taka hann í tvennt og hafa e-h með mér til að halda á hinum helmingnum! Þá er oft gott að taka bringubeinið (rifjahylkið) úr frampartinum og þá verður þetta eins og að fara í jakka! Afturparturinn ætti að leggjast nokkuð vel á herðarnar!
Ef þú ert með belju þá svipparu henni bara upp á herðarnar og heldur á henni heilli!
Ef þú ert með belju þá svipparu henni bara upp á herðarnar og heldur á henni heilli!
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Drag-dúkur
Sæll Toti Ola. ég á sk hreindýramottu, úr stinnu plasti og með götum til að binda dýrið á. á svæði 4 er víða mjög bratt og grýtt, en kannski getur þú notað slíka mottu. Þú getur fengið mína, en ég er í Neskaupstað, ég varð að hluta dýrið sundur og bera það upp frá fellistaðnum. Notaði stóra bakpoka. Hafðu samband ef þú vilt skoða málið. Kveðja Gunson
Með kærri kveðju
Sigurður Rúnar Ragnarsson
Neskaupstað
Sigurður Rúnar Ragnarsson
Neskaupstað
Re: Drag-dúkur
Sæll EinarE.Har skrifaði:Var ekki Málmtækni með svoleiððis annars má notast við margt eða sleppa því
Hver fer með þig?
Helgi Jensson fer með mig að öllu óbreyttu. Ég hef samband við Málmtækni og sé hvað þeir eiga. Takk fyrir ábendinguna
Sæll StefánStebbi Sniper skrifaði:Ef þú ert með Tudda þá hefur reynst mér ágætlega að taka hann í tvennt og hafa e-h með mér til að halda á hinum helmingnum! Þá er oft gott að taka bringubeinið (rifjahylkið) úr frampartinum og þá verður þetta eins og að fara í jakka! Afturparturinn ætti að leggjast nokkuð vel á herðarnar!
Ef þú ert með belju þá svipparu henni bara upp á herðarnar og heldur á henni heilli!
Ég er með Tarf og hef því nokkrar áhyggjur af því hvernig ég á að koma honum til byggða. Auk þess er ég ekki vanur í skurðaðgerðum en fæ vonandi með mér menn sem eru mér vanari í því auk þess sem leiðsögumaðurinn hefur líklega einhverja reynslu af slíku. Takk fyrir leiðbeiningarnar
Sæll SigurðurGunson skrifaði:Sæll Toti Ola. ég á sk hreindýramottu, úr stinnu plasti og með götum til að binda dýrið á. á svæði 4 er víða mjög bratt og grýtt, en kannski getur þú notað slíka mottu. Þú getur fengið mína, en ég er í Neskaupstað, ég varð að hluta dýrið sundur og bera það upp frá fellistaðnum. Notaði stóra bakpoka. Hafðu samband ef þú vilt skoða málið. Kveðja Gunson
Takk fyrir boðið. Ætla aðeins að líta í kringum mig og reyna að fá upplýsingar frá mér vitrari mönnum um það hvort þetta sé eitthvað vit. Verð í bandi ef ég ákveð að versla mér dúk.
Mbk.
Þórarinn Ólason
Þórarinn Ólason
- Halldór Nik
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:17
- Skráður:27 Jun 2012 23:26
Re: Drag-dúkur
Sæll Þórarinn
Ef Málmtækni á ekki til Pólýetýlen plötur þá á Fást þær alveg örugglega!
http://fast.is/?c=webpage&id=56&lid=55&option=links
Ef Málmtækni á ekki til Pólýetýlen plötur þá á Fást þær alveg örugglega!
http://fast.is/?c=webpage&id=56&lid=55&option=links
Mbk.
HN
HN
Re: Drag-dúkur
Sæll Halldór
Takk fyrir ábendinguna. Ég skoða þetta ef ég fæ ekki tilbúinn dúk
Takk fyrir ábendinguna. Ég skoða þetta ef ég fæ ekki tilbúinn dúk
Mbk.
Þórarinn Ólason
Þórarinn Ólason
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Drag-dúkur
Svona lítur þessi dragdúkur út upprúllaður, sumir kalla þetta líka töfrateppi
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is