Óska eftir riffilsjónauka. Kominn með !!!!!!!
Er spenntastur fyrir Meopta ZD 3-12x50 og háum turnum / Zeiss Conquest 4,5-14x50 eða 6,5-20x50 og
þá einnig með háum turnum. Annað kemur til greina. Skilyrði að sjónaukinn líti vel út.
þá einnig með háum turnum. Annað kemur til greina. Skilyrði að sjónaukinn líti vel út.
Síðast breytt af hpþ þann 18 May 2013 13:12, breytt í 1 skipti samtals.
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Sæll vinur varð bara að benda á þennan
http://www.eshop.is/skyttan/VaraInfo.as ... nCatID=317
Ekki dýr miðað við gæðin en ég veit ekki hvaða útlits smekk þú hefur mér finnst þeir fallegir
http://www.eshop.is/skyttan/VaraInfo.as ... nCatID=317
Ekki dýr miðað við gæðin en ég veit ekki hvaða útlits smekk þú hefur mér finnst þeir fallegir
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Sælir strákar, Sightron segirðu, þyrfti að fá að kíkja í gegnum einn, slíkur kæmi til greina.. hef bara heyrt vel látið af þeim. Artemis er ekki það sem ég er að leita að hins vegar, veit að þeir eru góðir þar sem ég á einn fyrir En sá sem ég er að leita að þarf að vera með markturnum, mega samt vera lokaðir.
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Hvar á landinu ert þú Halldór ? Og ég hef átt 6-24x50 og svo núna 8-32x56 Sightron og er bara rífandi ánægður með þá báða og mér finnst þeir hjá Skyttan bara frábærir og traustir.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Ég er í Mosfellsbæ Þorsteinn, sé að þú ert á Blönduósi, eða hvað?
Það væri kannski rétt að reyna að nálgast einn slíkan til að kíkja í gegnum. Eins og ég sagði áður þá hef ég bara heyrt gott af þeim.
Hvernig er glerið þegar farið er að slá á birtu, er hann að tapa mikilli skerpu á 24x stækkun?
Það væri kannski rétt að reyna að nálgast einn slíkan til að kíkja í gegnum. Eins og ég sagði áður þá hef ég bara heyrt gott af þeim.
Hvernig er glerið þegar farið er að slá á birtu, er hann að tapa mikilli skerpu á 24x stækkun?
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Ég á Sightron 8-32x56 er hann mjög góður en ég á líka Night Force 8-32x56 og er hann betri en Sightroninn, en hann er líka helmingi dýrari en sennilega ekki helmingi betri Svo hafa menn verið með mikla standpínu yfir Vortx sjónaukunum sem hlað er að selja, ég hef ekki skoðað svoleiðis grip en eftirspurnin virðist vera langt á undan framboðinu og eru þeir uppseldir i hlað og að mér skilst biðlistar í kanalandinu.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Sæll það er ótrúlegt hvað hann er bjartur þegar birtu fer að bregða.Eina örugga dæmið sem ég persónulega get borið saman en það var Leupold 4-10 stækkun en ég bara man ekki hver linsan var stór en hann var á 8x og það var komið kvöldhúm en í ca 200 metrum frá voru tré sem hann sá ekki lengur. En minn á 8x sá enn gras sinuna við tréin og laufin á þeim en það getur verið að hann hafi haft minna ljósop en svo á vinur minn annan polda með 14x max stækkun en við bárum þá saman á 8x stækkun og komumst að því að 8x stækkun er ekki það sama og 8x stækkun. Minn stækkaði meira og að mínu mati skýrar en allavega vorum við sammála með að minn væri með betri stækkun þá poldin væri góður.
Og jú ég er á Blönduósi en það eru nokkrir nálægt þér á spjallinu sem geta örugglega leift þér að horfa í gegn nú ef ekki þá verð ég á Akranesi á laugardæginn næsta með tíkina í veiðiprófi og gæti gripið græjuna með
Og jú ég er á Blönduósi en það eru nokkrir nálægt þér á spjallinu sem geta örugglega leift þér að horfa í gegn nú ef ekki þá verð ég á Akranesi á laugardæginn næsta með tíkina í veiðiprófi og gæti gripið græjuna með
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Sæll Steini, LSP-inn er með 45mm linsu
En minn er 4,5-14x50 og það munar um þessa auka 6mm sem að þinn hefur fram yfir
En þetta er nokkuð sem að ég hef tekið eftir að stækkun er ekki það sama og stækkun á milli merkja.
Ég hef horft í gegnum mismunandi sjónauka með jafn stóru safngleri fremst en á sömu stækkun er stækkunin ekki sú sama Þetta hefur oft vafist fyrir mér og virðist ekki vera staðlað eins merkilegt og það nú er, ætli þetta hafi eithvað með yarda gagnvart metrum að gera?
En að aðalatriðinu, þá er vel hægt að mæla með Sightron en ég neita samt að hann sé betri en Leupoldinn minn Nei-nei þú verður ekki svikinn af Sightron það er alveg á tæru, ég mæli eindregið með því að þú horfir í gegnum sem flesta og finnur þann sem að hentar þér best og spáir líka í hvaða krossi þér líkar best við. Það er bara gaman að velta þessu fyrir sér og spá og spekúlera
Kveðja Keli

Er enn að leita að rétta sjónaukanum.
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
ég gét mælt með þessum , verulega góður en ég hef nú ekki mikla viðmiðun við önnur alvöru merki.
þAð er alveg þess virði að kíkja á hann í búðinni.
http://www.ellingsen.is/verslun/vorur/f ... vara/73324
e.þ. þessi er nú ekkert slor heldur að mér sýnist.
http://www.hlad.is/netverslun/sjonaukar ... d5-5-25x50

Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
BKV. Karl Guðna.
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Já Zeissinn er örugglega góður, þessi nýi Conquest lofar góðu, búinn að kynna mér hann aðeins og skoða í Hlaði.
Takk fyrir ábendingarnar Karl og þið hinir.
Takk fyrir ábendingarnar Karl og þið hinir.
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Sæll vinur minn er að selja þennan.......og hann er meira að segja í Mosó
af oliar » 21 Mar 2013 08:44
Er að auglýsa fyrir vin minn Khales Helia C 3-12x56 með kross no 4.
http://www.kahles.at/eng/products/helia-c/
Sex ára gamall í óaðfinnanlegu ástandi.
Verðhugmynd er 160.000 krónur og allar upplýsingar veitir Arnar í síma 8957563
Ath. Ekki senda svör hér, hringið í manninn !

Kveðja. Óli Þór Árnason
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Enn að leita að rétta sjónaukanum.
Re: Óska eftir riffilsjónauka.
Takk fyrir sýndan áhuga, er kominn með sjónauka.
Re: Óska eftir riffilsjónauka. Kominn með !!!!!!!
Sæll Halldór, má maður vera með frekju og forvitnast um hvers konar sjónauka þú fékst þér að lokum?
Kveðja Keli
Kveðja Keli
Re: Óska eftir riffilsjónauka. Kominn með !!!!!!!
Sæll Þorkell, já þú mátt alveg vera forvitinn, ég komst yfir Zeiss Conquest 4.5-14x50 með markturnum,
eða nákvæmlega það sem ég ætlaði mér.
eða nákvæmlega það sem ég ætlaði mér.