Nýtt veiðigler

Allt sem viðkemur riffillsjónaukum og handsjónaukum
User avatar
Stefán_Jökull
Póstar í umræðu: 2
Póstar:76
Skráður:28 May 2012 10:41
Staðsetning:Skagafjörður
Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af Stefán_Jökull » 27 Jun 2012 17:27

Sælt veri fólkið.

Nú er svo komið að mig langar í veiðikíki. Mig langar í eitthvað undir 40.000 krónum, með sæmilega stækkun, 7 til 10 sinnum 40 eða 50.

Hafið þið einhverja reynslu af t.d. celestron sjónaukum? Þeir eru nefnilega glettilega ódýrir.

Með bestu kveðjum,

Stefán Jökull.
Kv. Stefán Jökull

User avatar
skepnan
Skytta
Póstar í umræðu: 2
Póstar:256
Skráður:01 Apr 2012 12:35

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af skepnan » 27 Jun 2012 23:35

Sæll Stefán Jökull, ég þekki ekki Celestron sjónauka en ég veit að menn hafa náð góðum árangri á mótum nú nýverið með Nikko Stirling sjónauka. Ég myndi allavega gefa honum séns. Veiðihornið er með 4,5-14x50 á 38,980 ríkiskrónur á vefnum hjá sér.

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð

User avatar
Aflabrestur
Póstar í umræðu: 1
Póstar:490
Skráður:25 Feb 2012 08:01
Staðsetning:Sauðárkrókur

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af Aflabrestur » 27 Jun 2012 23:56

Sæll félagi.
Geti ráð fyrir að þú sért að spá í handsjónauka ég mundi líta alvarlega á Olympus glerin í kaupfélaginu okkar góða, koma verulega á óvart og verðið er þannig að þú færð 2-3 á þennan aur.
Svo veistu náttúrulega að ef það fæst ekki í kaupfélaginu þá þarftu það ekki....
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af Gisminn » 27 Jun 2012 23:57

Sæll keli ég held að Stefán sé að leita að handsjónauka :roll:
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
skepnan
Skytta
Póstar í umræðu: 2
Póstar:256
Skráður:01 Apr 2012 12:35

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af skepnan » 28 Jun 2012 00:47

Nú þá bara bullaði ég út í eitt, það er ekkert nýtt :lol:
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð

Gísli Snæ
Póstar í umræðu: 1
Póstar:475
Skráður:12 Apr 2012 21:37

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af Gísli Snæ » 29 Jun 2012 19:41

Athugaðu hvort að Hlað sé komið með Vortex handsjónauka, og þá Vortex Dimondback. Þeir hafa verið að fá góða dóma. Hef reyndar bara horft í gegnum dýrari Vortex sjónauka (bæði riffil og handsjónauka) og þeir voru frábærir. Keypti fyrir félaga minn Vortex Viper HD 10x42 og hann var alveg magnaður. Ef Hlað er ekki komið með þetta prufaðu þá bara að panta þá frá USA.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is

User avatar
gkristjansson
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:250
Skráður:02 May 2012 14:21
Staðsetning:Ungverjaland

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af gkristjansson » 29 Jun 2012 19:49

Hef einn Celestron sjónauka (keypti hann handa konunni þar sem hann var svo ódýr).

Sannast sagna get ég persónulega ekki mælt með þessu gleri til veiða en er ágætur ef maður er að leika túrista og þarf ekki að sjá smálhlutina......
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson

User avatar
TotiOla
Póstar í umræðu: 1
Póstar:406
Skráður:07 Mar 2012 21:21
Staðsetning:210 Garðabæ

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af TotiOla » 29 Jun 2012 20:20

Sælir

Hef ekki mikla reynslu en hef þó litið í gegnum nokkra Bushnell, einn Celestron og svo einn lítinn Zeiss.

Ég keypti mér svo þennan í vor. Gæti ekki verið sáttari. Mjög skýr og góður. Þó töluvert utan budgets.

Mæli með Vortex og því að þú athugir hjá Hlað eða með að panta að utan eins og Gísli kom inn á.

Mynd

http://theopticzone.com/products-page/b ... -hd-10x42/
Mbk.
Þórarinn Ólason

iceboy
Póstar í umræðu: 1
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af iceboy » 29 Jun 2012 22:26

Skoðaðu þessa síðu.

http://www.opticsplanet.com/binoculars.html

Ég mæli með að panta frá þeim. Ég pantaði sjónauka á riffilinn frá þeim og það tók 4 eða 5 daga að fá hann.

Mjög góð þjónusta.

Svo geturu skoðað þarna á síðunni og valið hvert erki fyrir sig, t.d eru 38 gerðir af vortex þarna :)
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Stefán_Jökull
Póstar í umræðu: 2
Póstar:76
Skráður:28 May 2012 10:41
Staðsetning:Skagafjörður

Re: Nýtt veiðigler

Ólesinn póstur af Stefán_Jökull » 01 Jul 2012 12:40

Ég þakka fyrir hjálpina. Nú er bara að velja og hafna.

Svo er gamla settið að fara í möndulveldareisu í október svo að þar gæti reynst drjúgur akur að plægja.

Bestu þakkir aftur.
Kv. Stefán Jökull

Svara