Hryðjuverkamaðurinn ÉG

Allt sem viðkemur riffillsjónaukum og handsjónaukum
iceboy
Póstar í umræðu: 1
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:
Hryðjuverkamaðurinn ÉG

Ólesinn póstur af iceboy » 05 Jan 2013 20:13

Ég var að panta mér sjónauka úr Ameríkuhreppnum.
Það er svosem ekki í frásögur færandi, ég hef gert það 2 sinnum áður úr sömu verslun með góðum árangri.

Ein mistök gerði ég þó núna og það er að ég pantaði þetta á meðan ég er í vinnunni, úr minni fartölvu en þar sem að tölvan er tengd við netið hérna þá fæ ég víst IP adessu í Noregi (eða eitthvað svoleiðis, allavega sjá þessar elskur þarna í hreppnum að þetta er pantað frá Noregi)

Og af því að ég er að panta þetta í einu landi og ætla að láta senda þetta í annað land þá fékk ég þetta mail frá þeim.

Please answer the following questions (by responding to this email) to aid in processing your order:

1) Who is the end user of the product(s) you have ordered?

2) What is the end use of the product(s) you have ordered?

3) Where is the final destination of the product(s) you have ordered? (Please respond with a city and country)

4) Why was your order placed from Norway, if it's shipping to Iceland?


Ég veit að það er eitthvað sem heitir "End user sertificat" en ég hélt nú að það væri bara fyrir vopnasala og svoleiðis.

Mér finnst þetta nú bara frekar hlægilegt þar sem ég er nú bara að versla kikji á veiðiriffil.

Mig langaði bara að deila þessum raunum mínum með ykkur ef þið vilduð hlægja aðeisn að óförum annara til að létta lundina á laugardagskvöldi :P

Ég er nú bara að hugsa um að hætta við þessa pöntun og panta aftur á mánudaginn þegar ég er kominn á klakann :lol:

Að öðruleiti er bara gaman að þessu, ég að komast heim á mánudaginn í 4 vikna frí :P Þannig að það er bara að skella sér á skotsvæðið og skjóta helling :P
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
E.Har
Póstar í umræðu: 1
Póstar:624
Skráður:27 May 2012 23:26
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:

Re: Hryðjuverkamaðurinn ÉG

Ólesinn póstur af E.Har » 06 Jan 2013 02:08

:mrgreen: :mrgreen: svona er þetta allt að verða :geek: :mrgreen:
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)

Svara