Síða 1 af 1

Íslandsmótið í Bogfimi Utanhús 2013

Posted: 05 Ágú 2013 20:05
af Bowtech
Annað Íslandsmótið utanhúss verður haldið að Laugum í Reykjadal laugardaginn 10. ágúst þar sem keppt verður í sömu flokkum og á innanhúsmótinu ef næg þátttaka fæst. Í Sveigbogaflokki verður keppt á 70 metra færi og skotið 2*36 örvum. Í Trissubogaflokki verður keppt á 50 metra færi og skotið 2*36 örvum. Útsláttarkeppni verður eftir undankeppnina eins og verið hefur á Íslandsmótinu innanhúss. .

Sjá nánar á http://bogfimi.net/index.html