Síða 1 af 1

Mig langar að veiða svona dádýr

Posted: 07 Dec 2013 17:00
af Gisminn

Re: Mig langar að veiða svoa dádýr

Posted: 07 Dec 2013 17:12
af sindrisig
Meinar þú að keyra á það og lenda því í faðmi draumadísarinnar....

Dálítið ýkt slys.

Re: Mig langar að veiða svoa dádýr

Posted: 07 Dec 2013 18:15
af Gisminn
Nei aðalega hefði ég haldið að þessi mynd sem sýnd er sé ekki af dádýri heldur af krónhjört en kannski vitleysa nema að krónhjörtur sé karlkyns dádýr :o
En þetta er einstakt slys það má með sanni segja

Re: Mig langar að veiða svona dádýr

Posted: 07 Dec 2013 21:31
af konnari
Dádýr er á fræðimáli Dama Dama eða á ensku Fallow deer ! Þannig að þetta er kolvitlaus mynd með þessari frétt. Krónhjörtur er á fræðimáli Cervus elaphus :D

Re: Mig langar að veiða svona dádýr

Posted: 07 Dec 2013 23:38
af skepnan
Fyrirsögnin náði mér alveg:
Dádýr flaug beint á skokkara.
Ég verð að komast á svona veiðar, þar sem dádýr eru skotin á flugi :lol: :lol:
Lokkar maður þau niður með gerfidýrum :D
Hvernig flautu ætli maður þurfi?
En þegar þau eru í sárum og fella flugfjaðrirnar?
Nei, jólin eru að koma- þetta var bara hann Rúdolf að flýta sér heim úr verslunarferð :lol: :lol:
Orðinn heldur seinn á starfsmannafund hjá Sveinka :D

Kveðja Keli