Veiði á Grænlandi

Allt um veiðar erlendis
BrynjarM
Póstar í umræðu: 4
Póstar:70
Skráður:12 Jun 2012 13:16
Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af BrynjarM » 10 Dec 2014 00:53

Sælir kappar
Nú hefur mig lengi langað til Grænlands á veiðar. Hef aldrei þangað komið og langar bara að sjá þetta nágrannaland okkar. Miðað við ásóknina í hreindýr hér heima þá er maður að fá úthlutað leyfi á 2-4 ára fresti svo ekki er ósennilegt að maður horfi til Grænlands.
Mig langar að spyrja hvort þið þekkið til hverjir eru að fara með veiðimenn til Grænlands eða eru með operation þar? Þá hvaða reynslu menn hafa af því og aðstöðu hjá þeim? Kostir og gallar?
Veit að Lax-á er með camp þar og býður upp á veiði en eru ekki fleiri?
Það væri gaman að heyra einhverjar reynslusögur líka.
Brynjar Magnússon

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af Gisminn » 10 Dec 2014 23:14

Sæll ég hef bara heyrt gott frá veiðimönnum sem hafa farið á vegum lax-á en ég er nú smá tengdur þeim er gæd hjá þeim :-)
En þessir bjóða líka upp á veiði á Grænlandi
http://www.huntingiceland.com/
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

BrynjarM
Póstar í umræðu: 4
Póstar:70
Skráður:12 Jun 2012 13:16

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af BrynjarM » 12 Dec 2014 16:57

Takk fyrir það Þorsteinn. Einhvern tíman hef ég heyrt Bjarna Olsen nefndan varðandi veiði á Grænlandi en google sem allt veit fann enga síðu hjá honum en fann hann nefndan hjá Lax-á.
Hafa spjallvinir veitt á Grænlandi?
Brynjar Magnússon

karlguðna
Póstar í umræðu: 1
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af karlguðna » 13 Dec 2014 10:53

er ekki bara ódýrara að fara til Grænlands en að veiða hér ???? tala nú ekki um ef illa gengur hér heima ,, bíða af sér þoku ,,, auka dagar með gæt o.s.f. er ekki bara málið að hætta að spila í lottóinu hér og panta miða ????? ég segi eins og Brynjar,, mig hefur lengi langað að kíkja til Grænlands 8-)
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

User avatar
Björn R.
Póstar í umræðu: 1
Póstar:105
Skráður:10 Feb 2013 19:10
Fullt nafn:Björn Jensson
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af Björn R. » 13 Dec 2014 17:03

Hvernig er það með hreindýraveiði í Grænlandi. Eru ekki takmörk fyrir því hvað má koma heim með af kjöti?
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af Gisminn » 13 Dec 2014 17:40

Jú og nei. Þú mátt koma með 10kg (var 15kg en var mínkað í fyrra)með þér heim en getur fengið rest senda seinna frysta og vottaða en það er því miður ekkert tryggt að þú sért að fá kjötið af þinni skepnu.
Mennn hafa þessvegna bara verið að taka bestu bitana.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 14 Dec 2014 14:37

Já Brynjar ég tek það til mín þegar þú segir ,,Sælir kappar", takk fyrir síðast.
Ég þekki vel til hjá Stefáni í Ísortoq.
Ég var að vinna við slátrun hjá honum fyrir nokkrum árum, þá lóguðum við 1.300 dýrum á hálfum mánuði.
Hann hefur byggt upp veiðibúðir ásamt Árna í Lax-á skammt frá Ísortoq þar sem er er topp aðstaða fyrir veiðimenn, það er eingum á kot vísað sem fer þangað og hittir Stefán hann er hafsjór af fróðleik og segir skemmtilega frá.

Hérna er kynning og myndir
http://lax-a.is/index.php/onnur-lond/greenland

Hér er allt auglýst nema verðið 8-)
http://www.agn.is/veidistadir1.asp?elem ... at_id=1242
Viðhengi
IMG_6850.JPG
Þetta er eina dýrið sem ég hef skotið í Grænlenskri náttúru, (skaut nokkur í sláturhúsinu en það telst valla með) væn ung hreinkú geld um 50 kg fall, veiðiriffillinn cal. 22 magnum.
DSC00141.JPG
Mynd úr sláturhúsinu hjá Stefáni.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

Bjarki_G
Póstar í umræðu: 1
Póstar:15
Skráður:10 Sep 2014 10:56
Fullt nafn:Bjarki Gylfason

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af Bjarki_G » 15 Dec 2014 15:13

Hann heitir Bjarni Olesen, ekki olsen. Það gæti hafa strítt þér í leitinni

Síðan hans er þessi hér http://www.bohunting.is/

Kveðja.
Bjarki Gylfason
Tikka T3 cal 243
Browning Gold Hunter SL

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 15 Dec 2014 17:00

Þessi heimasíða 8-) ,,virðist hvorki fugl né fiskur" :o :shock: :?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

BrynjarM
Póstar í umræðu: 4
Póstar:70
Skráður:12 Jun 2012 13:16

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af BrynjarM » 15 Dec 2014 17:17

Sælir félagar og takk fyrir þetta. Já og takk fyrir síðast Siggi. Það er ágætt að hafa Grænland í bakhöndinni ef maður kemst ekki í Jökuldal á næsta ári :-) Annars vorum við að spá í að athuga með gæsaveiðar fyrir austan næsta haust. Sé að það er þráður um það líka.
Það eru sem sagt amk þrír íslenskir aðilar með veiðiferðir til Grænlands. Set mig í samband við þá. Þetta virðast nokkura ára gamlar síður hjá Bjarna og Icelandic hunting club, eru þeir ekki samt ennþá starfandi á Grænlandi?
Hafa spjallvinir reynslu af veiðum með Bjarna og Icelandic hunting club?
Brynjar Magnússon

BrynjarM
Póstar í umræðu: 4
Póstar:70
Skráður:12 Jun 2012 13:16

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af BrynjarM » 27 Feb 2015 22:32

Datt í hug að bæta við þennan þráð þar sem ég er búinn að heyra í Bjarna Olesen og honum Bóbó byssusmið, Jóhanni Norðfjörð. Ég var nú eiginlega kominn á það að fara með Bjarna á sauðnautaveiðar á Grænlandi þegar ég heyrði í honum fyrir áramót. Heyrði í honum aftur fyrir stuttu og það er farið að verða nokkuð þéttbókað og lítið laust.
Sá svo á skotveiðispjalli á facebook núna í vikunni að Bóbó er að fara með hóp á hreindýraveiðar í byrjun september og nokkur sæti eru laus. Það er víst á svipuðum slóðum og Stefán og Lax-á eru. Verðið er nú bara eins og að veiða tarf hér heima.
Þetta frestast nú hjá mér fram til næsta árs eins og svo oft áður. Sé þó að maður þarf bara að negla þetta niður og bóka um áramótin. Ekki bíða með að athuga hvort maður fái úthlutað hér heima og hafa Grænland sem varaval þó það virðist vissulega vera möguleiki á að detta þar inn með litlum fyrirvara.
Brynjar Magnússon

User avatar
Morri
Póstar í umræðu: 1
Póstar:116
Skráður:03 Oct 2012 22:07
Staðsetning:Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu

Re: Veiði á Grænlandi

Ólesinn póstur af Morri » 28 Feb 2015 19:17

Helvíti flott sláturhús þarna að sjá á myndum. Og tveir meistarar í mynd, veiðimeistarinn og Mari meistari.

Það er á dagskrá að fara í skotveiði til Grænlands, en spurning hvaða ár maður kemur því við.
Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is

Hvert skott er sigur

Svara