Vöfflukaffi hjá Jóa byssusmið
Posted: 27 Sep 2019 20:36
Á morgun laugardag 28 september opnar Jói byssusmiður kl 12:00. Slegið verður í vöfflukaffi og oftar en ekki gera menn betri kaup á vöffludögum. Það er að sjálfsögðu mér að þakka og malar byssusmiðurinn eins og köttur þegar hann er búinn að gæða sér á vöfflum. Þá er upplagt að segja sem svo. Hvað fæ ég þessa byssu á.