Skyttan.is Akureyri

Tilboð, góð verð, góð þjónusta, góð kaup og annað sem tengist verslun.
User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós
Skyttan.is Akureyri

Ólesinn póstur af Gisminn » 21 Dec 2012 21:10

Sælir ég vildi bara deila með ykkur þessari frábæru mönnum þarna á Akureyri sem eru bakvið skyttan.is sem eru með umboðið á Sightron sjónaukunum.
Málið er að mig langaði að uppfæra úr 6-24x50 í 8-32x56 en fjárráðin hafa verið frekar bág upp á síðkastið svo ég ákvað að selja 6-24x50 sjónaukan og fjárfesta svo bara í vor í einum 8-32x56 milrad þegar venjulegum harðindum líkur og leggja rifflinum þangað til.Nema að ég spurðist fyrir hjá þeim hvort ég þyrfti að leggja inn pöntun fyrir gripnum og slíkt og sagði þeim hvað ég væri að spá.
Nema það er skemst frá því að segja að þer gerðu mér greiðslutilboð uppá 1/3 út ef ég seldi hinn og rest eftir getu með loka greiðslu í Júní.Ég spurði næstum hvort þeir væru að grínast en þeir sögðust bara þekkja mig af góðu og treystu mér og að sjónaukinn á rifflinum hjá mér seldi miklu betur ef ég væri ánægður heldur en uppi í hillu.
Og það er skemst frá því að segja ég fór í dag að núlla og var það auðvelt verk.
Fyrsta skot á 100 metrum á lóðlínuni en 18 cm fyrir ofan punkt svo með milrad þýddi það 18 klikk niður og ánægjuhrollur! það var í miðju á tommu punktinum og auðvita skaut ég aftur til að vera viss og takk fyrir í sömu hæð en ekki gat í gat enda er hleðslan ekki það fullkomin :-)
Á 32 stækkuni var ekkert mál á 100 metrum að labba burt koma aftur og finna A4 blað strax.
Ef maður talar um birtuna og gefur 8 stækkun 100 kerti þá er 32 svona 60-70 en tærleikinn er samt hreinn og skýr.
Varð bara að segja frá þessu.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

Gísli Snæ
Póstar í umræðu: 1
Póstar:475
Skráður:12 Apr 2012 21:37

Re: Skyttan.is Akureyri

Ólesinn póstur af Gísli Snæ » 21 Dec 2012 22:03

+ í kladdann.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is

User avatar
maggragg
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1284
Skráður:02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
Staðsetning:Hvolsvöllur
Hafa samband:

Re: Skyttan.is Akureyri

Ólesinn póstur af maggragg » 22 Dec 2012 11:55

Hef verslað við þá, bæði Berger kúlur og ýmislegt smálegt og svo Sightron sjónauka og ég get bara gefið þeim góða umsögn. Gott að eiga við þá samskipti og frábær þjónusta. Get mælt með þeim, og auðvitað Berger og Sightron líka :)
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"

User avatar
Stefán_Jökull
Póstar í umræðu: 1
Póstar:76
Skráður:28 May 2012 10:41
Staðsetning:Skagafjörður

Re: Skyttan.is Akureyri

Ólesinn póstur af Stefán_Jökull » 22 Dec 2012 12:49

Gott að heyra svona fréttir.
Kv. Stefán Jökull

Svara