Skarfur

Gæsir, endur, rjúpa, svartfugl og allt sem tengist veiðum á fuglum
karlguðna
Póstar í umræðu: 2
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason
Skarfur

Ólesinn póstur af karlguðna » 27 Jan 2017 16:37

http://www.visir.is/dilaskarfur-hopast- ... 7170129076 er þetta eðlileg hegðun ??
géra þeir þetta kannski að vetri ef vötn eru auð ??
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

User avatar
Sveinbjörn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:250
Skráður:17 Jun 2012 23:49

Re: Skarfur

Ólesinn póstur af Sveinbjörn » 27 Jan 2017 20:17

Skarfur er sá fugl sem ég hef séð hvað mest af snýkjudýrum í. Því tel ég þetta óheillavænlega þróun sem heppilegast væri að snúa við sem fyrst.
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson

User avatar
sindrisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:313
Skráður:09 Oct 2010 08:45
Staðsetning:Neskaupstaður

Re: Skarfur

Ólesinn póstur af sindrisig » 28 Jan 2017 17:45

Uppáhalds fæða skarfs er marhnútur og sprettfiskar. Spurning hvort viðkomubrestur hafi orðið þar á bæjum. Annars er það rétt að skarfur er mikill spreðari snýkjudýra en mörg þeirra virðast ekki ná að lifa í vatnafiski, s.s. selormur. En svona til að verja skarfinn þá eru þessi snýkjudýr hans meira innvortisvæn, þ.e. eru ekki í kjötinu. Það er ekki hægt að segja það sama með endur, þær dreifa ormum sem hreiðra um sig í kjötinu og gera matinn vægast sagt ólystugan.
Sindri Karl Sigurðsson

karlguðna
Póstar í umræðu: 2
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason

Re: Skarfur

Ólesinn póstur af karlguðna » 29 Jan 2017 10:41

Hann er greinilega orðin leiður á marhnúta soðningunni :D http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/ ... f_heillar/
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

Svara