http://www.visir.is/kindur-stadnar-ad-v ... 3703239941
Hvet menn til að lesa þessa grein, athyglisverð. Man reyndar eftir að hafa lesið um kindur á Hjaltlandseyjum fyrir nokkrum árum sem stunduðu afrán úr hreiðrum.
Gaman væri að vita hvort þessir spóar sem áttu þessi hreiður hafi brugðist við á sama hátt og þegar tófur eða aðrir afræningjar gera sig líklega til að ræna hreiður þeirra.
Ég minnist þess ekki að spóar eða lóur hafi varað við kindum þó þær hafi farið óþægilega nærri hreiðrum þeirra þar sem ég er með grenjavinnslu en fróðlegt væri að vita hvernig þessir fuglar brugðust við þar á þeim slóðum sem greinin er um.