FUD gervigæsir

Gæsir, endur, rjúpa, svartfugl og allt sem tengist veiðum á fuglum
bjarniv
Póstar í umræðu: 1
Póstar:32
Skráður:04 Mar 2013 20:59
Fullt nafn:Bjarni Valsson
FUD gervigæsir

Ólesinn póstur af bjarniv » 03 Oct 2013 18:34

Sælir,

Hafa menn eitthvað verið að nota FUD gervigæsirnar, langaði að vita hvernig þetta er að koma út. Þá aðallega hvort að fuglinn leiti jafn mikið í þær og venjulegar gervigæsir.
Kveðja Bjarni Valsson

User avatar
sindrisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:313
Skráður:09 Oct 2010 08:45
Staðsetning:Neskaupstaður

Re: FUD gervigæsir

Ólesinn póstur af sindrisig » 03 Oct 2013 18:39

Ég á heiðagæsir í FUD og finnst snilld að nota þær, sérstaklega í kvöldflugi. Fljóta án vandræða ekkert mál að ferðast með þær og ég hef ekki séð gæsir fljúga neitt sérstaklega hraðar í burtu frá þeim en öðrum gerfigæsum.

Notað þær í tún líka en þá ávallt með öðrum harðskelja gæsum. Engin sérstök ástæða fyrir því, eru bara uppfylling í gervigæsahópinn.

kv.
Sindri Karl Sigurðsson

Haglari
Póstar í umræðu: 2
Póstar:125
Skráður:03 Oct 2013 20:27
Fullt nafn:Óskar Andri Víðisson
Hafa samband:

Re: FUD gervigæsir

Ólesinn póstur af Haglari » 03 Oct 2013 20:30

Ég get tekið undir það að það er yndislegt að bera þessa gerfifugla á heiðagæsaveiðum samanborið við flotgæsir!

Kv.
Óskar Andri

User avatar
Sveinbjörn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:250
Skráður:17 Jun 2012 23:49

Re: FUD gervigæsir

Ólesinn póstur af Sveinbjörn » 03 Oct 2013 21:09

Þegar þú notar þetta sem flotgæsir tekur þú þá festijárnið af?
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson

Haglari
Póstar í umræðu: 2
Póstar:125
Skráður:03 Oct 2013 20:27
Fullt nafn:Óskar Andri Víðisson
Hafa samband:

Re: FUD gervigæsir

Ólesinn póstur af Haglari » 04 Oct 2013 09:16

Nei, það er ekki ætlast til þess að festijárnið sé tekið af FUD gæsunum. Mér finnst hinsvegar að ef það er hvast þá er betra að vefja bandinu einn hring utanum hausinn í stað þess að hafa bundið í ankerið undir fuglinum (sýnt í leiðbeiningum hvernig þetta er gert). Ef það er bundið í járnið/ankerið sem er undir fuglinum þá finnst mér hann "synda" asnalega í hvössu veðri. Lóðið mætti alveg vera þyngra en ég hef bara stungið því ofaní botnin á vatninu ef það er mjög hvasst.

Svara