Karratalningar koma vel út.

Gæsir, endur, rjúpa, svartfugl og allt sem tengist veiðum á fuglum
User avatar
E.Har
Póstar í umræðu: 1
Póstar:624
Skráður:27 May 2012 23:26
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:
Karratalningar koma vel út.

Ólesinn póstur af E.Har » 08 May 2014 14:47

Karratalningar eru að koma vel út.

Hver skildi opinberaskýringin vera.
A Áralöng friðun að skila sér?
B Minna truflun þar sem færri veiðimenn gengu um heiðar um helgar!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)

User avatar
Stebbi Sniper
Póstar í umræðu: 1
Póstar:492
Skráður:09 Jun 2012 00:58
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:

Re: Karratalningar koma vel út.

Ólesinn póstur af Stebbi Sniper » 08 May 2014 15:56

C: frekari rannskóknir þarf til að skýra þessa óvæntu fjölgun.
D: of mikill útburður til refa svo nú eru þeir hættir að leggja sér rjúpur til muns.

:lol: :lol: :lol:
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs

Jenni Jóns
Póstar í umræðu: 1
Póstar:285
Skráður:11 May 2013 21:37
Fullt nafn:Jens Jónsson

Re: Karratalningar koma vel út.

Ólesinn póstur af Jenni Jóns » 08 May 2014 16:32

E: Meiri snjór í fjöllum.
F: Rjúpan er farin að éta útburðinn með refunum sem dugar til að koma þeim í gegnum vorhretin
Jens Jónsson
Akureyri

User avatar
TotiOla
Póstar í umræðu: 1
Póstar:406
Skráður:07 Mar 2012 21:21
Staðsetning:210 Garðabæ

Re: Karratalningar koma vel út.

Ólesinn póstur af TotiOla » 08 May 2014 17:27

Stebbi Sniper skrifaði:C: frekari rannskóknir þarf til að skýra þessa óvæntu fjölgun.
D: of mikill útburður til refa svo nú eru þeir hættir að leggja sér rjúpur til muns.

:lol: :lol: :lol:
D liður fellur náttúrulega um sjálfan sig þar sem allir fræðimenn vita að refir borða ekki rjúpu :ugeek: enda hafa rannsóknir á refum frá refaskyttum sýnt að magainnhald þeirra samanstendur eingöngu af útburðar-skepnum :roll: og því eintóm vitleysa að halda því fram að refir geti hætt að borða eitthvað sem aldrei hefur verið sýnt fram á að þeir borði.

:P :P :P
Mbk.
Þórarinn Ólason

User avatar
Jón Pálmason
Póstar í umræðu: 1
Póstar:177
Skráður:16 Ágú 2010 21:54
Fullt nafn:Jón Pálmason
Staðsetning:Sauðárkróki

Re: Karratalningar koma vel út.

Ólesinn póstur af Jón Pálmason » 08 May 2014 21:41

G...komnir með betri gler á nebbann :D
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði

User avatar
sindrisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:313
Skráður:09 Oct 2010 08:45
Staðsetning:Neskaupstaður

Re: Karratalningar koma vel út.

Ólesinn póstur af sindrisig » 11 Jun 2014 17:12

Finnst mönnum ekki skrítið hvernig þessi frétt er matreidd? http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... a_um_land/

Það er nánast helmingsaukning á rjúpu en samt er einblínt á að það sé fækkun. Samt sem áður er um að ræða hærri talningu í ár en síðustu ár. Síðan er ein mesta fjölgunin á svæðum sem hafa verið undir mestu veiðiálagi undanfarin ár...

Margt skrítið í kýrhausnum.

kv.
Sindri Karl Sigurðsson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Karratalningar koma vel út.

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 14 Jun 2014 09:37

Já það er margt skrítið í kýrhausnum, ég sá viðtal við Ólaf í Mogganum að mig minnir þar sem hann þakkar fjölgunina friðun undanfarið!
Ég var í sumarbústað á Úlfsstöðum á Völlum fyrir hálfum mánuði óg þá komst ég ekki hjá því að taka þátt í karratalningunni, taldi strax einn.......hann stóð vörð löngum stundum á mæni sumarhússins sem við vorum í og fylgdist með okkur í heita pottinum.
Ég hef séð óvenju mikið af körrum þetta vorið svo ég held að útkoman verði góð þetta árið, en rjúpu gefur verið að fjölga að því mér finnst hérna fyrir austan síðustu árin.
Einn karra sá ég líka sem hafði lent fyrir bíl við Kollstaðagerði skammt fyrir innan Egilsstaði sömu helgi.
Ég vona samt að það komi ekki að sök fyrir framgang rjúpnastofnsins austur hér!
Viðhengi
IMG_8798.JPG
Karrinn fylgdist vel með öllu sem fram fór, nokkurskonar siðgæðisvörður yfir heita pottinum!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

Svara