Gæsaskot

Gæsir, endur, rjúpa, svartfugl og allt sem tengist veiðum á fuglum
iceboy
Póstar í umræðu: 2
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:
Gæsaskot

Ólesinn póstur af iceboy » 19 Jul 2015 19:46

Bara smá forvitni hérna.

Hvaða skot ætlið þið að nota á gæsina í haust?
Árnmar J Guðmundsson

karlguðna
Póstar í umræðu: 1
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af karlguðna » 19 Jul 2015 20:52

42gr. 3,3 mm högl,, :P
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

Aron Kr Jónsson
Póstar í umræðu: 1
Póstar:29
Skráður:24 Ágú 2012 23:17

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Aron Kr Jónsson » 19 Jul 2015 21:16

FIOCCHI 42g 3,3mm :)
Kveðja
Aron Kristinn Jónsson

User avatar
Sveinbjörn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:250
Skráður:17 Jun 2012 23:49

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Sveinbjörn » 19 Jul 2015 21:32

Remington Hevi-Shot Nitro Magnum.
Þyngra en Blý og hraðinn 1450 FPS

500kr stykkið og trúlega bestu skotin sem hafa verið flutt inn til Íslands fyrr eða síðar.
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson

User avatar
sindrisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:313
Skráður:09 Oct 2010 08:45
Staðsetning:Neskaupstaður

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af sindrisig » 19 Jul 2015 22:14

Það hlýtur að vera Bismuth í þessu ef þyngdin er meiri en blý. Verðið gefur líka til kynna að það gæti verið gullhúðað haglið.
Sindri Karl Sigurðsson

Freysgodi
Póstar í umræðu: 2
Póstar:58
Skráður:20 Sep 2013 22:46
Fullt nafn:Jón Valgeirsson

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Freysgodi » 19 Jul 2015 22:22

Mun nota mína eigin framleiðslu - 42g 3.3mm og 50g 3.5mm, með og án buffer. Nota alla jafn IC þrengingu þar sem bufferlausu skotin dreifast vel (IC) en síðasta skotið er með buffer og dreifist eins og IM/F.

Eftir miklar vangaveltur, lestur og bréfaskriftir undanfarin ár þá er ég farinn að efast um mikilvægi haglastærðar, a.m.k innan einhverra eðlilegra marka. Stærðir 0 til 5 eru líklega allar í góðu lagi þegar færi eru góð - á löngu færunum eru stóru höglin of fá og litlu höglin of máttlaus og - mér virðist US stærð númer 3 (3.5mm) vera fínn millivegur á Grágæs en mun nota 3.3mm á heiðagæsina - en eins og áður sagði þá munar líklega ekki miklu á þessu.

Nýjasta pælingin er hvort maður sé að vanmeta áhrif bakslagsins á næsta skot og hvort léttari hleðslur myndu skila sér í meiri nákvæmni og hraða í næsta skot. Spurning um að útfæra eitthvert test á slíku.

Kveðja

J o n

Freysgodi
Póstar í umræðu: 2
Póstar:58
Skráður:20 Sep 2013 22:46
Fullt nafn:Jón Valgeirsson

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Freysgodi » 19 Jul 2015 22:23

Það er tungsten (wolfram) sem gerir hevishot svona dýr og hörð og góð.

User avatar
Aflabrestur
Póstar í umræðu: 1
Póstar:490
Skráður:25 Feb 2012 08:01
Staðsetning:Sauðárkrókur

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Aflabrestur » 19 Jul 2015 23:02

Sælir.
Sama og síðustu 7-8 árinn hlað Orginal 42 gr. fjarka og kænski bland skotin tvist/fjarka þegar líður á haustið, sameina allt sem ég þarf, byssan fer vel með þau, drepa það sem ég hitti og ég hitti þokkalega með þeim og er farinn að þekkja þau vel eftir öll þessi ár, fást á flestum stöðum og ekki dýr. Hef notað þau í flest nema helst svartfugl og er sáttur.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 19 Jul 2015 23:51

Ég ætla engin skot að nota, ég skýt aldrei gæsir á haustin...... :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

iceboy
Póstar í umræðu: 2
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af iceboy » 20 Jul 2015 09:13

Hvaða skot notaðiru þá í VOR Siggi :lol: svona fyrst þú skýtur þær ekki á haustin þá hlítur að gefa augaleið að þú skýtur þær á öðrum tíma :lol: :lol: Annars hefðiru bara sagt að þú skjótir EKKi gæsir :D
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Sveinbjörn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:250
Skráður:17 Jun 2012 23:49

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Sveinbjörn » 20 Jul 2015 09:42

Síðast liðið haust sá ég hvar gæs flaug á línu sem liggur þvert yfir árfarveg rétt fyrir neðan íbúðarhúsið á Vaðbrekku.

Því má ættla að Landsnet sjá Sigga fyrir gæsum eftir þörfum og leysi hann undan því oki að standa í útgjöldum á haustdögum.

Það má vera að það sé bjarnargreiði að segja frá þessu og hlunnindanefnd vís með að skattleggja allar jarðir sem hafa orðið þeirra gæfu aðnjótandi að fá línur þvert yfir sitt land.
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 20 Jul 2015 15:07

Árnmar, sagði ég haustin :o 222 Rem ;)
Sveinbjörn, já þessi raflína hefur fært mér ófáan kjötbitann :)
Utan við gæsirnar veiðir hún líka eina og eina álftarrússu 8-)
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

User avatar
257wby
Póstar í umræðu: 1
Póstar:193
Skráður:21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn:Guðmann Jónasson
Staðsetning:Blönduós

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af 257wby » 20 Jul 2015 22:05

RC Camoflage 42 gr nr 2-4.
http://byssur.is/products-page/rc
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.

Haglari
Póstar í umræðu: 1
Póstar:125
Skráður:03 Oct 2013 20:27
Fullt nafn:Óskar Andri Víðisson
Hafa samband:

Re: Gæsaskot

Ólesinn póstur af Haglari » 21 Jul 2015 10:25

stefni á að nota sem mest 136 graina lapua scenar í hinu klassíska veiðikaliberi 6.5x55. Ef èg nenni að tilla mèr við einhvern poll með ítalska skítadreifaranum mun hann líklegast vera hlaðinn með hlað patriot 42/4.

Svara