Kæru gæsaáhugamenn.
Nú er gæsaveiðitímabilið að hefjast á morgun og líkt og undanfarin ár þá munum við safna vængjum af gæsum og öndum til aldursgreininga á veiðinni. Út frá gæsa- og andavængjum úr veiðinni má lesa hlutfall unga frá sumrinu og þannig fá hugmynd um hvernig varp og ungaframleiðsla veiðistofnanna hefur tekist. Við leitum því enn á ný til veiðimanna eftir því að fá að skoða vængi af öllum tegundum gæsa og anda. Annað hvort getum við mætt á staðinn þar sem fuglarnir eru, ef því verður við komið, og aldursgreint aflann eða þið getið sent til okkar annan vænginn af þeim fuglum sem þið skjótið. Vinsamlegast hafið samband við Arnór Þ. Sigfússon í síma 4228000 og 8434924 eða ef þið eruð á Austurlandi þá hafið samband við Halldór W. Stefánsson í síma 4712553 og 8465856. Þið getið einnig sent okkur tölvupóst á ats@verkis.is og doco@mi.is
Ef vængir eru geymdir og sendir þá má ekki geyma þá í plasti lengi því þá úldna þeir fljótt. Best er að leyfa þeim að þorna og setja svo í pappakassa. Ef vængir eru höggnir af þá sendið alltaf vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Látið fylgja með nafn, síma, heimilisfang og/eða netfang og hvenær gæsirnar og endurnar voru veiddar og gjarnan á hvaða veiðisvæði skv. veiðidagbók veiðistjórnunarsviðs. Við sendum ykkur svo til baka aldurshlutfall í aflanum ykkar.
Með ósk um gott samstarf.
Bestu kveðjur
Arnór þ. Sigfússon
Ad blocker detected:Our website is made possible by displaying online advertisements to our visitors. Please consider supporting us by disabling your ad blocker on our website.
Beiðni til gæsaveiðimanna!!!
Gæsir, endur, rjúpa, svartfugl og allt sem tengist veiðum á fuglum
Ólesinn póstur af Gæsamálefni » 20 Ágú 2010 08:40
Fara á
- Skotfélagið
- ↳ Starfsemin
- ↳ Verkefni
- ↳ Vefurinn - Spjallsvæðið
- Byssur og græjur
- ↳ Byssur
- ↳ Endurhleðsla
- ↳ Græjur
- ↳ Sjónaukar
- Skotveiði
- ↳ Allt um veiði
- ↳ Fuglar
- ↳ Hreindýr
- ↳ Vargur
- ↳ Verkun og eldamennska
- ↳ Veiðihundar
- ↳ Veiðar erlendis
- Skotíþróttir
- ↳ Haglabyssugreinar
- ↳ Riffillgreinar
- ↳ Skammbyssugreinar
- ↳ Bogfimi
- Kannanir
- Leiðbeiningar
- Sölutorgið
- ↳ Til sölu
- ↳ Óska eftir
- ↳ Kostakjör
- ↳ Veiðileyfi - Veiðlendur