Ætlaði einmitt að fara að spyrja um það sama.iceboy skrifaði:Hefur einhver hérna fengið leyfi í hendurnar í ár?
Umhverfisstofnun
-
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:7
- Skráður:15 Mar 2015 18:15
- Fullt nafn:Ingvi Þór Sigurðsson
- Staðsetning:Akureyri
Ingvi Þór Sigurðsson
Re: Umhverfisstofnun
Það hefur ekkert komið enn til mín frá þeim höfðingjunum í UST. En ég er með leyfi á kú svo ég anda með nefinu. Væntanlega hafa allir sem fengu tarf nú þegar fengið leyfið sitt, erþaggi?
Með góðri kveðju,
Grímur Lúðvíksson
Selfossi
Beretta A303,Browning A5,
Marlin 22mag,Browning X-Bolt 243,Sauer 101 XT 6.5x55
Vortex Viper PST 6-24x50, Zeiss 5HD 5-25x50,Weaver 4-16x44,tasco 3-9x32
Grímur Lúðvíksson
Selfossi
Beretta A303,Browning A5,
Marlin 22mag,Browning X-Bolt 243,Sauer 101 XT 6.5x55
Vortex Viper PST 6-24x50, Zeiss 5HD 5-25x50,Weaver 4-16x44,tasco 3-9x32
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Umhverfisstofnun
Ég held að það sé svo knappur tími til að úthluta leyfunum sem komu inn eftir skotprofsfrestinn 1. júlí, fyrst nokkrir dagar að safna saman skotprófunum, svo það er rétt gefst tími til að ganga frá tarfaleyfunum fyrir 15. júlí, þess vegna er gengið frá kýrleyfunum þegar tarfaleyfin eru farin út hef ég grun um.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Umhverfisstofnun
Það er líklegt að beðið sé með kýrnar þar til tarfarnir eru búnir, það breytir því að vísu ekki að þeir sem búnir eru að fá staðfestingu á skotprófi og búnir að borga leyfin, ættu að fá veiðileyfin send um hæl.
Hlýtur að vera auðveldara að vinna þetta jafnóðum í stað þess að hrúga þessu upp.
Hlýtur að vera auðveldara að vinna þetta jafnóðum í stað þess að hrúga þessu upp.
Sindri Karl Sigurðsson
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Umhverfisstofnun
Það er nota bene bara einn maður að vinna við þetta
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Umhverfisstofnun
Leyfið mitt er komið. Kom í morgun 17.júlí.
Með góðri kveðju,
Grímur Lúðvíksson
Selfossi
Beretta A303,Browning A5,
Marlin 22mag,Browning X-Bolt 243,Sauer 101 XT 6.5x55
Vortex Viper PST 6-24x50, Zeiss 5HD 5-25x50,Weaver 4-16x44,tasco 3-9x32
Grímur Lúðvíksson
Selfossi
Beretta A303,Browning A5,
Marlin 22mag,Browning X-Bolt 243,Sauer 101 XT 6.5x55
Vortex Viper PST 6-24x50, Zeiss 5HD 5-25x50,Weaver 4-16x44,tasco 3-9x32
-
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:285
- Skráður:11 May 2013 21:37
- Fullt nafn:Jens Jónsson
Re: Umhverfisstofnun
Ég hef aldrei fengið nema rúmlega fyrsta flokks þjónustu þegar ég hef þurft á einhverju að halda viðvíkjandi veiðileyfi og miða við hve mörg endurúthlutunarleyfi voru komin á varaumsókn 31 maí þá hlítur að hafa verið töluvert að gera við endurúthlutun.Veiðimeistarinn skrifaði:Það er nota bene bara einn maður að vinna við þetta
Jens Jónsson
Akureyri
Akureyri
- Dr.Gæsavængur
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:57
- Skráður:05 Jun 2012 15:08
Re: Umhverfisstofnun
Ég fékk úthlutuðum Tarf á svæði 7 þann 12. júní. Ég sá samt ekki póstinn fyrr en mánudaginn 22. júní þar sem ég var ég var ekki nógu duglegur að skoða pósthólfið, enda há sumar og svona Ég var líka farinn að halda að ég þyrfti að bíða eftir að skotpróf kláruðust, 1.júlí, eftir að eitthvað færi að gerast með biðlistann.
Ég borgaði leyfið samdægurs 22.júní og hafði frest til 1. júli að taka skotpróf. Ég var á leið í frí þann 26.júní svo ég tók eina æfingu og svo beint í próf á fimmtudegi 25.júní. Daginn eftir var komin staðfesting á skotprófinu í maili.
2. Júlí kom til mín póstur um að ég ætti eftir að greiða veiðikort sem ég þyrfti að gera til að hægt væri að senda mér leyfið. Ég gleymdi að borga kortið strax eftir skotprófið, en það var mér að kenna því ég ætlaði ekki að kaupa veiðikort nema ég fengi úthlutuðu hreindýri þetta árið þar sem ég missi alfarið af veiðitímabilinu hér heima, er að flytja erlendis.
Ég var í fríi úti á landi til 7. júlí og sá ég þá póstinn um ógreitt veiðikort sem ég greiddi strax. Ég fæ allan póst sendan heim til foreldra minna, og þegar ég kem þangað í kaffi föstudaginn 10. júlí eru leyfin komin í pósti
Ég get alls ekki kvartað undan þessu. Eins og ég hef áður sagt hefur UST alltaf staðið sig vel gagnvart mér í öllu því sem ég hef þurft á að halda. Það er bara allt einsog það á að vera. Ég er kannski ekki típan sem situr og bíður við bréfalúguna, enda flokkast ég líklega sem rólegur. Það hefur líka að ég held alveg örugglega enginn misst af því að veiða dýrirð sitt af því veiðileyfið var ekki komið
Annars eru menn orðnir alveg rosalega spenntir! Ekki nema vika í áætlaða brottför austur á veiðar Ætla að kíkja á meistarana í Hlað á eftir og láta þá hlaða fyrir mig nokkur skot, mun líklega freta út öllu sem ég á í æfingar um helgina..

Kv. Atli Freyr Runólfsson
atlifreyrrunolfsson@gmail.com
atlifreyrrunolfsson@gmail.com