prófaði í fyrsta skipti að skjóta á svona skífu og tímamældi sjálfan mig mjög óformlega en hélt ég væri að renna út á tíma og flýtti mér ógurlega enda ekkert meistara skor sem kom.
Verkfæri = sími með skeiðklukku,Sako 6,5x55 sightron 8-32x56 ofaná honum og Harris tvífótur.
Aðstæður 6 m/s ekki alveg beint á móti skotið liggjandi á gömlum skeiðvelli með stóra grasbrekku með reyndar mikklum snjó sem kúlustoppara
Aðferð.Riffli stilt upp og mark skoðað með bolta opinn. Svo var klukkan sett í gang og ég tók 5 skot uppúr kassa og setti í magasínið og svo í riffilinn,Fann skotmarkið og lokaði boltanum og skaut endurtók hratt og vel í 4 skipti enda þegar ég stoppaði skeiðklukkuna með riffilinn opinn var tíminn 2,27 mínútur og skorið 38 stig 9. 2x8, 7 og svo 6.Kúlurnar voru snnafærandi í kringum hringin nema ein sem var á 6 til hægri og grunar mig skrattakoll að hafa kipt í æsingnum.
En niðurstaða að prófið hefði verið staðið en ég get gert betur með að vanda mig því að ég hef alveg greinilega góðan tíma eftir sem hægt er að nota betur og hafa fallegra skor
![Wink ;)](./images/smilies/icon_e_wink.gif)