Þá er maður kominn heim eftir frábæran túr austur, og langar mig að deila með ykkur upplifuninni af þessum stórskemmtilega túr. Þar sem ég var með tarf á svæði sex þetta árið var ekið á sunnudag í Breiðdalinn þar sem við gistum, en við vorum tveir með dýr, ég með tarf og félgi minn með kú. Við tókum daginn snemma á mánudag og var ræs kl, 04:00 enda áttum við stefnumót við leiðsögumanninn okkar Hann Rúnar Ásgeirsson á Ásunnarstöðum í Breiðdal kl 05:00. Ókum við með Rúnari upp á Öxi því þar var ætlunin að veiða enda hafði frést af dýrum þar, en í stuttu máli þá sá Rúnar dýr mjög fljótlega en það voru menn komnir á undan okkur í þau, (greinilega fleiri sem vakna snemma ) og áttum við ekki séns á að fara í þá hjörð þar sem við misstum af henni þegar að þeir sem voru á undan okkur voru búnir að skjóta. Þá hófst mikil leit af af dýrum en í stuttu máli sáum við ekki dýr fyrr en um kl 11:00. og voru það þrír tarfar sem voru í töluerðri fjarlægð frá okkur og var tekin ákvörun að freista þess að ná einum af þeim. Hófst þá mikill eltingarleikur niður í dalbotn yfir á og svo upp hinum megin til að komast fram fyrir tarfana, eftir um ca. 30 mín hlaup komst ég í færi og náð að fella minn gaur, og var hann tekinn á 330 metrum. Reyndist þetta hinn vænsti tuddi og vigtaði hann 101kg þegar búið var að flá og snyrta.
Þá hófst leitin af beljunni og fundum við ekki beljuhjörð fyrr en kl.18:00 og var þá búið að brölta miklar vegalengdir, voru menn að verða svartsýnir að beljan myndi ekki fynnast þann daginn. En það gékk mjög hratt fyrir sig að ná beljunni, og var búið að fella hana innan við 30 mín frá því hjörðin sást fyrst, myndarkú sem vgtaði 40kg þegar búið var að flá og snyrta, en beljan var tekinn á 80 metrum sléttum. Komum við svo niður á verkunarstað um kl. 23:00 þar sem dyrin voru fláð og vigtuð.
Rifflarnir sem notaðir voru í þessar veiðar voru rem 700 6mm.284 á tarfinn og svo lánaði ég félaga mínum sako75. 243 á beljuna.
Hreindýrið 2013 fallið.
- Viðhengi
-
- beljan ´13.jpg (29.28KiB)Skoðað 2144 sinnum
- beljan ´13.jpg (29.28KiB)Skoðað 2144 sinnum
-
- tarfur ´13.jpg (26.07KiB)Skoðað 2144 sinnum
- tarfur ´13.jpg (26.07KiB)Skoðað 2144 sinnum
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Hreindýrið 2013 fallið.
Magnaðir kallar.
En ég vil samt benda á, að " hreindýrið 2013 " var fellt á fyrstu mínútu veiðitímans.
En ég vil samt benda á, að " hreindýrið 2013 " var fellt á fyrstu mínútu veiðitímans.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hreindýrið 2013 fallið.
Flottur Þórður!
Hvaða kúlu ertu að nota í 6-284? Ertu með c.a. hlauphraða og fall út á 330 metrum með þessu cal?
Þetta eru mjög fín dýr sem þið hafið náð í. Manstu c.a. hvar þið fellduð þau (örnefni)?
Hvaða kúlu ertu að nota í 6-284? Ertu með c.a. hlauphraða og fall út á 330 metrum með þessu cal?
Þetta eru mjög fín dýr sem þið hafið náð í. Manstu c.a. hvar þið fellduð þau (örnefni)?
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Hreindýrið 2013 fallið.
Já drengir ég ætlaði nú ekki að hljóma hrokafullur, en vitanlega átti fyrirsögnin að hljóma "hreindýrið MITT 2013 fallið" en varðandi hraðann þá er ég ekki alveg með hann á hreinu en gæti trúað að við hlaup sé hann einhversstaðar í kring um 3300 fet á sek. Hann er ca á núlli á 300metrum með því að skrúfa krossinn tvær moa upp en riffilinn er uppsettur hjá mér þannig að hann er núllaður á 200 metra fyrir nosler BST 70 grs. Kúlan sem ég notaði var nosler portition 100grs. Fyrra skotið fór full neðarlega í bóginn þannig að hann féll ekki strax setti ég þá aðra í hann og fór hún í hausinn.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Hreindýrið 2013 fallið.
Ég meinti það nú ekki þannig... einungis að " hreindýrið 2013" er fallið.
Það tókst víst að fella það, fyrir rest
Það tókst víst að fella það, fyrir rest
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Re: Hreindýrið 2013 fallið.
Þar sem mér finnst alltaf gaman þegar menn nenna að setja inn myndir og myndbönd má ég til með að deila með ykkur augnablikinu þegar ég tók í gikkinn. Þess skal getið að tarfurinn er kominn í kistuna og voru etnir hreindyrahomborgarar á mínu heimili ég gærkvöldi
http://www.youtube.com/watch?v=M_qhdhtR ... e=youtu.be
http://www.youtube.com/watch?v=M_qhdhtR ... e=youtu.be
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Hreindýrið 2013 fallið.
Til hamingju Þórður minn og ég var að fá mitt frá ekki smá góðum kjötskurðarmeistara sem fær 110% í enkunn og verðið bara hæódýr meigi hún hafa bestu þakkir fyrir.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson