.308 Hreindýrariffill eða ekki
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 4
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Hreindýrariffill
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Sveinbjörn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:250
- Skráður:17 Jun 2012 23:49
Re: Hreindýrariffill
Veiðimeistari: það er riffill sem hentar vel til veiða á hreindýrum.
Magnús Sigmundsson
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 4
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hreindýrariffill
Eigum við að hætta okkur út á hinn hála ís?
Næsta spurning mín yrði nefninlega....Hvað hefur þú mikla reynslu af hreindýraveiðum?
.....En þú þarft ekki að svara þessu frekar en þú vilt
Næsta spurning mín yrði nefninlega....Hvað hefur þú mikla reynslu af hreindýraveiðum?
.....En þú þarft ekki að svara þessu frekar en þú vilt
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Hreindýrariffill
þótt ég sé ekki "veiðimeistari" eins og þú, veit ég nóg um það til að fullyrða að þessi riffill væri mjög hentugur í hreyndyr. Mér finnst innlegg þín vera ómálefnaleg og dónaleg. Ef þú hefur ekki áhuga á að kaupa riffilinn þarftu ekki að senda innlegg.
Magnús Sigmundsson
-
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:109
- Skráður:13 Dec 2012 20:55
Re: Hreindýrariffill
Ég verð nú að taka undir með nafna mínum Sveinbirni
Nei hættu nú alveg félagi Sigurður Aðalsteinsson ..
Menn komast vonandi ekki upp með að skemma auglýsingar svona fyrir öðrum hér !
Þú ert ekki að pósta inn á almennt spjall ...
Nei hættu nú alveg félagi Sigurður Aðalsteinsson ..
Menn komast vonandi ekki upp með að skemma auglýsingar svona fyrir öðrum hér !
Þú ert ekki að pósta inn á almennt spjall ...
Sveinbjörn V. Jóhannsson
Re: Hreindýrariffill
Snýst ekki málið um að Veiðimeistarinn ræður ekki við eðal kaliber sem krefjast kunnáttu af skyttunni og getur bara notað háhraða skotvopn, þá er jú hans besta vörn að skíta út þau kaliber sem hann ræður ekki við. Það þarf töluverða kunnáttu og hæfileika til að reikna út fall á kúlum og miklar æfingar svo þetta fari að koma af sjálfu sér. En að öllu gamni sleptu þá flokka ég svona hegðun undir hroka og yfirlæti.
Kveðja frá Svíþjóð.
Einar P.
Einar P.
Re: Hreindýrariffill
Nú held ég að ísinn hafi brotnað undan Sigga.
Gangi þér vel með söluna Magnús. Þetta er eðalkalíber eins og við báðir vitum.
Gangi þér vel með söluna Magnús. Þetta er eðalkalíber eins og við báðir vitum.
Brynjar Magnússon
Re: Hreindýrariffill
Ég held, að Siggi hafi ekki ætlað sér að skemma auglýsinguna fyrir Magnúsi. oftar en ekki hefur þessi 308 umræða verið gráglettni milli okkar Sigurðar, og mér fannst reyndar athugasemd hans lykta af einmitt gráglettni. Hins vegar er ég viss um að hann er maður til að biðjast afsökunar á ummælum sínum, hafi þau farið fyrir brjóstið á þeim sem auglýsti.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
- Björn R.
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:105
- Skráður:10 Feb 2013 19:10
- Fullt nafn:Björn Jensson
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hreindýrariffill
Breytir því ekki að hinn sjálfskipaði veiðimeistari treður sínum húmor inná söluþráð. Annað mál ef þetta er almenn umræða. En þessi 7 hreindýr sem ég veit að einn ákveðinn Sako, einmitt cal .308 hefur á samviskunni smökkuðust öll svipað vel þrátt fyrir að hafa verið skotin á 70-300m.
Maðurinn biðst bara afsökunar og þá eru allir sáttir
Maðurinn biðst bara afsökunar og þá eru allir sáttir
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 4
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hreindýrariffill
Segið þið svo að það sé dauflegt hérna á spjallinu
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
-
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:285
- Skráður:11 May 2013 21:37
- Fullt nafn:Jens Jónsson
Re: Hreindýrariffill
Við skulum endilega hætta okkur út á hinn hála ís SiggiVeiðimeistarinn skrifaði:Eigum við að hætta okkur út á hinn hála ís?
Næsta spurning mín yrði nefninlega....Hvað hefur þú mikla reynslu af hreindýraveiðum?
.....En þú þarft ekki að svara þessu frekar en þú vilt
Hvað hefur þú mikla reynslu af því að skjóta hreindýr með cal 308
Cal 308 er án vafa mest notaða caliberið til veiða á dýrum af sambærilegri stærð og hreindýr og sennilega mest notaða caliberið til hreindýraveiða á Íslandi.
Jens Jónsson
Akureyri
Akureyri
- maggragg
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1284
- Skráður:02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
- Staðsetning:Hvolsvöllur
- Hafa samband:
Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki
Splittaði þessari umræðu upp þar sem þetta á heima í hreindýraspjalli en ekki söludálki
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki
Jenni ! Þetta er bara ekki rétt hjá þér.....samkv. tölum frá umhverfisstofnun þá er 308win í þriðja sæti yfir mest notaða caliber við hreindýraveiðar með um 13% og hefur verið á því róli í mörg ár. Í öðru sæti er 6.5x55 með um 19% og í fyrsta sæti er 243win með á bilinu 22-23% !!
Við þetta má bæta að 270win hefur verið á stöðugri uppleið undanfarin ár og á ekki langt í land með að ná 308win í vinsældum og mun örugglega taka þriðja sætið eftir nokkur ár
Við þetta má bæta að 270win hefur verið á stöðugri uppleið undanfarin ár og á ekki langt í land með að ná 308win í vinsældum og mun örugglega taka þriðja sætið eftir nokkur ár
Kv. Ingvar Kristjánsson
-
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:285
- Skráður:11 May 2013 21:37
- Fullt nafn:Jens Jónsson
Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki
Ég biðst auðmjúklega afsökunar á að hafa ekki kynnt mér staðreyndir um notkun á 308 win við hreindýraveiðar á Íslandi.
13% er ágætis árangur hjá caliberi sem er undir massífum áróðri um að vera ónothæft til hreindýraveiða.
125 gr Nosler kúlan úr rifflinum hjá mér á 3150 fps virka fínt út á 600 metra en eru töluvert viðkæmar fyrir vindi.
185 gr Berger er á 2700 fps hef skotið þessum kúlum á mark á 800 metrum með ágætum árangri og samkvæmt útreikningum á http://jbmballistics.com eru Berger kúlurnar á meira en 1340 fps við 900 metra markið
308 riffillinn hjá mér er með 600 mm löngu hlaupi.
það væri áhugavert að sjá sambærilegar tölur fyrir 6,5x55 og 243

- gkristjansson
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:250
- Skráður:02 May 2012 14:21
- Staðsetning:Ungverjaland
Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki
Bara forvitinn, hvar hjá umhverfisstofnun er hægt að nálgast þessar upplýsingar?konnari skrifaði:Jenni ! Þetta er bara ekki rétt hjá þér.....samkv. tölum frá umhverfisstofnun þá er 308win í þriðja sæti yfir mest notaða caliber við hreindýraveiðar með um 13% og hefur verið á því róli í mörg ár. Í öðru sæti er 6.5x55 með um 19% og í fyrsta sæti er 243win með á bilinu 22-23% !!
Við þetta má bæta að 270win hefur verið á stöðugri uppleið undanfarin ár og á ekki langt í land með að ná 308win í vinsældum og mun örugglega taka þriðja sætið eftir nokkur ár
Kveðja,
Guðfinnur Kristjánsson
Guðfinnur Kristjánsson
Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki
Þetta er skemtileg umræða sem á heima hér sem skemtun.
Málið er að 308 með léttri kúlu er alveg á pari við 6,5*55 út á svoan 250 metra.
Flestir eru að skjóta á mun styttra færi. Vinddrift er íka skárra en td 243.
Við eigum allir að vera með heitar hleðslur og léttar kúlur í 300 baukum eða 7 mm stw eða einhvað sem er að nálgast 4000 fet 'i raun skiptir þetta engu máli, ef veiðimaðurinn veit hvað hann er með í höndunum. Trýsti td lítt vanri skyttu betur á 150 m. með 308 (Og stáltá ) en 300 win mag óhræsið hanns Tóta þar sem líkur eru á að skyttan væri búinn að loka augunum og snúa sér undan áður en togað væri í gikkin á þeirri fallbyssu. Allavega ef hann væri búi að skjóta henni áður.
Annars get ég alveg tekið undir með Sigga að flatari hleðslur og þá léttari kúlur henta oft á tíðum betur hér, sérstaklega upp á heiðum. Þar sem færin lengjast gjarnan og enginn gróður sem þung kúla þarf að riðjast í gegnum. Siggi veit alveg feril 308 eða 125 gr b.tipp eða 150 gr kúlu. Og gerir sér alveg grein fyrir hvað 6,5-55 með búðarskotum 165 gr kúlu hönnuðum fyrir hólka frá því fyrir fyrra strið getur
Höfum bara gaman að þesasu. Og auðvitað verða öll hreindýr að vera felld með Blaser í 6,5-284 (Nefnilega hætt að framleiða þetta hlaup og ég held ég eigi það eina á ísl)

E.Har
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki
Ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta snérist um kaliberið 308. Hélt að verið væri að dissa riffilin sem ég væri að selja og reyna að gera lítið úr mér persónulega.
Hvaða kaliber vill veiðimeistarinn sjá á hreyndýraveiðum? 6,5x55? Það eru fleiri að bersjast við þessa sömu deilu http://www.shootforum.com/forum/viewtop ... 20&t=10154
Hvaða kaliber vill veiðimeistarinn sjá á hreyndýraveiðum? 6,5x55? Það eru fleiri að bersjast við þessa sömu deilu http://www.shootforum.com/forum/viewtop ... 20&t=10154
Magnús Sigmundsson
Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki
Magnús ! Það var hvorki verið að dissa þig eða riffilinn sem þú ert að selja !! Þessi umræða hvort 308win henti til hreindýraveiða er orðin býsna gömul en alltaf jafn skemmtilegMagnus skrifaði:Ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta snérist um kaliberið 308. Hélt að verið væri að dissa riffilin sem ég væri að selja og reyna að gera lítið úr mér persónulega.
Hvaða kaliber vill veiðimeistarinn sjá á hreyndýraveiðum? 6,5x55? Það eru fleiri að bersjast við þessa sömu deilu http://www.shootforum.com/forum/viewtop ... 20&t=10154
Guðfinnur....upplýsingarnar er að finna á ust.is
Kv. Ingvar Kristjánsson