Sælir félagar,
Hefur einhver heyrt eitthvað um hvort eða hvenær kvótinn fyrir 2015 verður gefinn út og hvenær verður opnað fyrir umsóknir?
Ég man að í fyrra þá var þetta í enda Janúar með bara nokkurra vikna umsóknartíma, verður það sama uppi á teningnum í ár?
Bara forvitinn.
Verða veiðar 2015
- gkristjansson
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:250
- Skráður:02 May 2012 14:21
- Staðsetning:Ungverjaland
Kveðja,
Guðfinnur Kristjánsson
Guðfinnur Kristjánsson
-
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:109
- Skráður:13 Dec 2012 20:55
Re: Verða veiðar 2015
Þetta hefur verið svona undanfarin ár, svo þú mátt búast við svipuðum tíma.
Síðast breytt af Sveinbjörn V þann 13 Jan 2015 01:27, breytt í 1 skipti samtals.
Sveinbjörn V. Jóhannsson
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Verða veiðar 2015
Já, Guðfinnur mínar heimildir segja það sama, opnað fyrir umsóknir seint í janúar og umsóknarfrestur til 15. febrúar
Þetta hljómar allt svona ,,copy paist" frá síðasta ári, hvað sem öllu regluverki líður
Fjöldi veiðleyfa svipaður og undanfarin ár, ívið fleiri kýrleyfi en í fyrra samt og aðeins fleiri leyfi í nóvemberveiði en þá, spái ég
En hafa ber í huga ,,enginn er spámaður í sínu eigin föðurlandi", eins og þar stendur

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Sveinbjörn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:250
- Skráður:17 Jun 2012 23:49
Re: Verða veiðar 2015
það er nokkuð ljóst að einhverjir ætla að sækja um veiðileyfi og eru menn farinir að spá í búnað og annað sem við á.
Auk þess hef ég verið inntur eftir því hvort að Veiðimeistarinn sé væntalegur á svæði 101 Reykjavík til þess að mæla með vörum.
það er ekki ólíklegt að það verði 6-hjól í camo til sýnis með hækkandi sól alveg sérstaklega fyrir Veiðimeistara.

Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
Sveinbjörn Guðmundsson
Re: Verða veiðar 2015
Vegna þess að síðasti ræðumaður minntist á sexhjól. Nú velti ég því fyrir mér hvers vegna enginn fer á venjulegu fjórhjóli til að sækja fellt hreindýr. Hvergi í reglugerðinni sem leyfir sókningu á vélknúnu ökutæki er tekið fram að hjólin sex, sem skylt er að séu undir slíkum grip, skuli vera á þremur öxlum. Nú er til dæmis alkunna að vörubílar eru gjarnan á sex hjólum en þau eru jafnan á tveimur öxlum og þykir eðlilegt.
Nú fyndist mér með öllu eðlilegt að einhverjir þeir sem hagsmuna ættu að gæta í þessum málum létu á það reyna enda alkunna hversu tveggja öxla dvergjeppar eru ódýrari en þriggja öxla og lítið kapítal í því að tvöfalda hjólin að aftan og jafnvel framan líka.
Mér datt þetta svona í hug.

Þorvaldur frá Hróarsdal