Síða 1 af 1

Hreindýra happdrættið

Posted: 25 Feb 2017 19:05
af petrolhead
Sælt veri fólkið.

Þar sem ég er á sjó og gat ekki horft á útsendinguna hjá UST langar mig að vita hvort það sé einhvers staðar hægt að sjá "úrslitin" út útdrættinum á hreyndýra veiðileyfunum ?? :shock:

MBK
Gæi

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 28 Feb 2017 03:45
af Sveinbjörn V
Sæll kæri vinur. Vonandi ertu lánsamur..

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 28 Feb 2017 07:05
af petrolhead
Sæll Sveinbjörn, langt síðan við höfum heyrst...allt of langt.

Takk fyrir félagi, ég reyndist lánsamur þetta árið og fékk tölvupóst um að ég hefði fengið úthlutað tarf á svæði 2 :D enda svo sem kominn tími til því ég held að þetta sé fimmta skiptið í röð sem ég sæki um og fyrsta sinn sem ég fæ úthlutað.

Svo er bara að heyra í meistara Sigurði og sjá hvort hann er tilbúinn að gæda mann í ferðina ;) þar sem ég á ekki 308win :lol:

Mér finnst þetta hins vegar svolítill galli að UST að birti ekki þennan lista á síðunni hjá sér....ég fann hann að minnsta kosti ekki þar.... svo maður geti gluggað aðeins í þetta og séð hvort einhverjir félagar manns hafa fengið úthlutað líka upp á það að sameinast í ferð oþh. og ef þetta er birt á FB þá finnst mér enn undarlegra að þetta sé ekki á UST síðunni ???

Nú væri líka gaman að heyra frá fleirum......hverjir hafa fengið úthlutað og hverjir ekki :)

MBK
Gæi

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 28 Feb 2017 17:35
af karlguðna
Til lukku :mrgreen: :mrgreen: :mrgreen: eins og þú sérð þá er ég grænn af öfund. :mrgreen:

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 28 Feb 2017 21:17
af Veiðimeistarinn
Sælir !
Ekki málið Garðar minn, bara velja dag !

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 01 Mar 2017 19:51
af petrolhead
Meistari Sigurður; þú átt ES.

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 02 Mar 2017 23:48
af Aflabrestur
Til hamingju kall Loksins :shock: Þannig að jólasteikinni minni er reddað þetta árið ;)
þú kemur svo í kaffi með vorinu og við græjum skotpróf tek ekki annað í mál og þú lætur bara vita ef þig vantar bílstjóra :mrgreen:

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 05 Mar 2017 13:15
af petrolhead
Jú félagi það kom að því að fékk vinning í happdrætti hehe....nema ég hafi verið að fara inn á 5 skipta reglunni....er ekki alveg viss hvað ég er oft búinn að sækja um án þess að fá úthlutað :?:

Hvernig er það eruð þið með próf hjá Markviss ?

En mig vantar bílstjóra þá hóa ég klárlega í þig!!

MBK
Gæi

Re: Hreindýra happdrættið

Posted: 09 Mar 2017 01:09
af Aflabrestur
Já við verðum með próf fyrir okkar fólk, vini og vandamenn ;)