Frettablaðið í dag á bls 16 vonduminkaveiðikallarnir

Allt um veiðar á ref, mink og öðrum vargi
User avatar
E.Har
Póstar í umræðu: 2
Póstar:624
Skráður:27 May 2012 23:26
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:
Frettablaðið í dag á bls 16 vonduminkaveiðikallarnir

Ólesinn póstur af E.Har » 12 Jun 2013 09:25

http://www.visir.is/ExternalData/pdf/fbl/130612.pdf

Tilgangurinn
STJÓRNMÁL helgar meðalið!
uMaðurinn er talinn vera
siðferðisvera og einn af
grunneiginleikum siðferðis
er skynsemi. Dýr eru ekki
talin hafa siðferðisvitund
heldur skynvit og frumhvöt.
Samkvæmt þessu þá er ekki
réttlætanlegt að drepa dýr á
kvalafullan hátt þrátt fyrir
að við teljum rándýrin, sem
drepa skal, vera grimm og
óvægin. Í reglugerðum um
slátrun dýra eiga dýr rétt á
því að vera afl ífuð meðm refa- og minkaveiðar nr.


Refa- og
minkaveiðar
eru hitamál á
Íslandi. Báðar
tegundirnar
eru sagðar
skaðvaldar í
íslensku vistkerfi,
skaði t.d.
fuglalíf. Kröfur
um útrýmingu
minks
eða minnkun
á stofnstærð
refs er ekki megininntak þessarar
greinar heldur veiðiaðferðirnar
sem tíðkast hérlendis og
siðferði þeirra.
Veiðin
Skoðum aðstæður nágranna
okkar Dana, þeir hafa líkt og
við bæði ref og mink í vistkerfi
sínu. Barátta þeirra gegn fjölgun
minksins er líkt og hér mjög
mikilvæg og síðustu ár hafa
þeir verið með verkefni er kallast
„Minkbekæmpelsen1“ eða
baráttan við minkinn.
En það er skýrt í danskri löggjöf
að við veiðar skulu minkar
fá skjótan og sem sársaukaminnstan
dauða. Þeir sem
ganga til veiða með deyðandi
vopn líkt og skotvopn skulu
hafa þreytt veiðipróf, skriflegt
og verklegt. Noti danskur veiðimaður
gildru til veiða verður
gildran að vera þannig útbúin
að skepnan veiðist lifandi. Fari
rangt dýr í gildruna er einfalt
að sleppa því aftur út í náttúruna.
Dauðagildrur á borð við
dýraboga og drekkingargildrur
eru með öllu bannaðar hjá
Dönum. Ein undantekning frá
reglunni er felligildran, nýtt af
fagfólki.
Engar hæfniskröfur eru
gerðar til minka- og refaveiðimanna
hérlendis, það eina sem
þeir þurfa til veiðanna er veiðikort
og skotvopnaleyfi, noti þeir
slíkt. Tegundir leyfðra veiðigildra
hérlendis eru t.d fótbogi
og dauðagildrur3. Dauðagildrur
geta t.d. verið drekkingargildrur
(minkasíur) og dýrabogar.
Skepnur er lenda í fyrrgreindum
gildrum ýmist drepast strax
eða festast. Drepist dýrið ekki
heldur festist, veldur það mikilli
þjáningu fyrir skepnuna
á meðan dauðastríðinu stendur.
Einnig geta önnur dýr lent
í gildrunum. Íslensk reglugerð
um refa- og minkaveiðar
segir að drepa skuli dýrið á
sem skjótvirkastan hátt, en það
getur reynst erfitt samkvæmt
ofantöldu. Rétt er að taka fram
að notkun á fótbogagildrum á
refaveiðum á einungis við um
yrðlinga og að skylt er að hafa
umsjón með bogunum.
Óargadýr drepur
Í umræðunni í dag er minkur
sagður skepna sem engu eiri,
drepi bara til að drepa. Hagsmunaðilar
krefjast þess að fá
leyfi til þess að verja sig og
sín svæði fyrir ágangi minks
og refs, það er skiljanlegt. En
er það virkilega þannig að tilgangurinn
helgi meðalið og að
við getum leyft okkur að drepa
skepnurnar með hvaða tólum og
tækjum sem við viljum? Er réttlætanlegt
að drepa skepnu með
bogagildru eða drekkja henni?
Hver eru siðferðilegu rökin
sem réttlæta að drepa skepnu
á kvalafullan hátt? Skipir það
kannski engu máli hvernig
minkur eða refur er drepinn,
bara að dýrið drepist, því það
er hvort sem er að okkar mati
grimmt og óvægið? Er það réttlætingin?
Maðurinn er talinn vera siðferðisvera
og einn af grunneiginleikum
siðferðis er skynsemi.
Dýr eru ekki talin hafa siðferðisvitund
heldur skynvit og
frumhvöt. Samkvæmt þessu þá
er ekki réttlætanlegt að drepa
dýr á kvalafullan hátt þrátt
fyrir að við teljum rándýrin,
sem drepa skal, vera grimm
og óvægin. Í reglugerðum um
slátrun dýra eiga dýr rétt á því
að vera aflífuð með sómsamlegum
hætti. Á það ekki líka við
um villt dýr?
Til að stöðva illa meðferð
á dýrum þarf góða löggjöf.
Núverandi lög hamla ekki
drekkingum á mink og það gera
nýju lögin (nr. 55/2013) ekki
heldur sem er umhugsunarvert.
Heimildir:
1. Naturstyrelsen, á.á. Minkbekæmpelsen. Skoðað
á vef 23.09.2012: http://www.naturstyrelsen.
dk/Naturbeskyttelse/invasivearter/Myndighed/
Minkprojekt/
2. Bekendtgørelse
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)

Sobbeggi
Póstar í umræðu: 1
Póstar:17
Skráður:23 Ágú 2012 04:45

Re: Frettablaðið í dag á bls 16 vonduminkaveiðikallarnir

Ólesinn póstur af Sobbeggi » 14 Jun 2013 18:33

Ég sé ekki að verið sé að amast við því að minnkar séu veiddir yfirhöfuð, aðeins því þegar það er gert á ómannúðlegan hátt.
---

Birgir Baldursson
sobbeggi@gmail.com

Veiðum fallega

User avatar
E.Har
Póstar í umræðu: 2
Póstar:624
Skráður:27 May 2012 23:26
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:

Re: Frettablaðið í dag á bls 16 vonduminkaveiðikallarnir

Ólesinn póstur af E.Har » 14 Jun 2013 21:21

Pistalhöfundur fer í nokkurnvegin öllu með rangt mál.
1 Svipaðar kröfur eru gerðar a öllum norðurlöndunum, varðandi skotvoppnaleyfi og veiðikort.
2 Fótbogar eru bannaðir!
3 Svipaðar gildrur eru notaðar á öllum norðurlöndunum, glefsur ( fennt mk 4) oh ihjell sem er sænsk
4 það er rangt að þessar gildrur aéu bannaðar í Danmörku, þær uppfylla evróputilskipun!
5 Verstu og ómannúðlegustu gildrurnar eru lífgildrur, hvað á svo að gera við greiin hálf sturluð af hungri? fara með þau til dýralækknis í svæfingu!

Höfundur er starfsmaður dýraverndarfélagsinns ef ég man rétt
hefur verið að taa fyrir friðun á ref og mink og hinum viðbjóðslega ómannúðlegu lifgildrum!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Frettablaðið í dag á bls 16 vonduminkaveiðikallarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 15 Jun 2013 00:16

Kannski að breyta umræðuni aðeins svona fyrir þá sem lesa þetta og skilja ekki alveg um hvað málið snýst.

Mínkur er vandamál og það er reynt að útrýma honum en því miður þá ganga siðferðislegar aðferðir ekki alltaf upp þegar á reynir.Sogleg staðreynd
Hvað virkar ?
Mínkasíur virka vel ef rétt er að staðið.
Minkahundar eru líka góðir í baráttuni.Oftast bannaðir við að elta uppi bráð en eru leyfðir sem undanþága við mink.
Lífgildran er bara frestun fyrir minkinn að vera skotinn.
Og að lokum fyrir þá sem ekki skilja meinsemd minks þá er ekki í boði að láta hann í friði því miður.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

Svara