Köttur í æti
Sælir spjallverjar
Það er kattarskratti að ganga í ætið hjá mér en rebbi vill ekki sjá það, hefur bara einu sinni komið á mynd hjá mér en fór ekki í það.
Hafið þið einhverja reynslu af því að rebbi vilji ekki ganga í ef köttur merkir við ætið?
Með kveðju
Reynir

- Viðhengi
-
- 100_0066.jpg (45.59KiB)Skoðað 6551 sinnum
- 100_0066.jpg (45.59KiB)Skoðað 6551 sinnum
-
- 100_0023.jpg (57.4KiB)Skoðað 6551 sinnum
- 100_0023.jpg (57.4KiB)Skoðað 6551 sinnum
Með kveðju
Reynir Þorsteinsson
Reynir Þorsteinsson
Re: Köttur í æti
Ég fékk þessa tilgátu um daginn þegar ég var að barma mér yfir áhugaleysi rebba, hef skotið kött við æti og hann virtist ekki hafa nein áhrif á matarlystina hjá tófunni. Ef til vill er hrúturinn ekki lystugur þó ég hafi fláð hann áður en ég bar hann út.
Með kveðju
Reynir Þorsteinsson
Reynir Þorsteinsson
Re: Köttur í æti
Helst ástæður fyrir að rebbi vill ekki í æti eru þessar
1 Hundur markaði svæðið
2,Það er boðið betra í nágrenninu oftast hross
3 Dýrirð sem notað er í æti drapst af völdum sjúkdóms og hafði fengið pensilín (pestarlykt eða bragð)
Oft ruglast við og kallað húslykt og talið að tófa langi ekki í fé af húsi en það er miskilningur.
4. Ætið kynt of seint að vetri eins og ég myndi telja ef verið væri að bera út núna tófan er búin að finna sér fæðulindir sem hún treystir og gengur í þær nú. Gæti komið lota um mánaðarmótin Mars-apríl og síðan algjört stopp þegar læðan legst á greni.
Kannski hjálpaði þetta pínu.

Síðast breytt af Gisminn þann 04 Feb 2014 22:11, breytt í 1 skipti samtals.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Köttur í æti
Þetta er rétt hjá þér Þorsteinn og það sem þú telur upp, munurinn á hundum og köttum við æti er sá að hundurinn lyktarmarkar með þvagi eins og refurinn en það gerir kötturinn ekki og hann merkir yfir höfuð ekki neitt.
Kettir eru pempíur og vilja enga lykt og eyða löngum stundum í að þrífa sig hátt og lágt, það er aðeins ef þeir verða ofsa hræddir sem þér míga til að verja sig og þá kemur vond lykt svo um munar.
Munurinn á húsalykt og pestarlykt = lyfjalykt aðalega pesilín, er sá að húsalyktin veðrast af tiltölulega fljótt en penseínlyktin ekki, þó dýr sem er borið út hafa drepist pestardauða skiptir það yfirleitt ekki máli nema ef reynt hefur verið að lækna skepnuna með lyfjum, þess vegna er réttara að tala um lyfjalykt en pestarlykt

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Köttur í æti
Þakka ykkur fyrir þetta, var ekki alveg að kaupa kenninguna með köttinn en maður gefur hlutunum sjéns og veltir þeim fyrir sér. Það eru fáir refir á ferðinni þar sem ég er með þetta skothús og fæðuframboðið gott, stórir bygg og lúpínuakrar sem hann sækir í, eflaust nóg af mús þar. Sá hvítann ref um daginn í lúpínuakri þar sem hann og ugla voru ekki sátt hvort við annað, bæði að leita að sömu bráðinni. Er ekki farinn að örvænta ennþá, seinnipartur mars og byrjun apríl hafa alltaf reynst mér best.
Með kveðju
Reynir Þorsteinsson
Reynir Þorsteinsson
Re: Köttur í æti
Burtséð frá köttum og öðrum ófögnuði sem er að aféta refinn, hafa menn góða reynslu af myndavélum við æti? Var sjálfur að versla eina fyrir stuttu og get ekki sagt annað en að hún sé að virka vel. Sumar myndirnar mættu vera skýrari, þessi t.d. sem kom í kvöld er aðeins hreyfð, ekki gott að sjá hvort þetta er helv. kötturinn eða rebbi.
- Viðhengi
-
- 100_0025.JPG (45.15KiB)Skoðað 6394 sinnum
- 100_0025.JPG (45.15KiB)Skoðað 6394 sinnum
Með kveðju
Reynir Þorsteinsson
Reynir Þorsteinsson
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Köttur í æti
Þetta er rebbi það er ekki spurning
Það sést á fótastöðunni
Það sést á fótastöðunni
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Morri
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:116
- Skráður:03 Oct 2012 22:07
- Staðsetning:Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu
Re: Köttur í æti
Þetta eru leiðindi... köttur í æti...
Kettir og hundar á flakki eru til vandræða alltaf.
Á síðustu myndinni, klárlega refur
Kettir og hundar á flakki eru til vandræða alltaf.
Á síðustu myndinni, klárlega refur
Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is
Hvert skott er sigur
morri(at)kopasker.is
Hvert skott er sigur