Síða 1 af 1

Um refaveiðar

Posted: 29 Apr 2014 11:56
af oskararn

Re: Um refaveiðar

Posted: 29 Apr 2014 12:45
af Gisminn
Þetta er hið besta mál ef þetta verður gert með skipulagi þannig að peningarnir nýtist sem best

Re: Um refaveiðar

Posted: 01 May 2014 19:17
af karlguðna
en hvað er nú þetta :?: :!: :?: :!: http://www.visir.is/aukin-veidi-fjolgar ... 4705019923
veiðar fjölga refum :?: :?: :?: :?: er ekki eitthvað skrítið við þennan útreikning. :roll: :roll:
við ættum að fá hana til að reikna út veiðidagana á rjúpuna ,,, það mætti fjölga þeim svoldið ef menn skilja eftir eins og eina brauðsneið af nestinu fyrir hverja rjúpu sem veiðist :mrgreen:

Re: Um refaveiðar

Posted: 01 May 2014 22:33
af Stebbi Sniper
Vil þessi ágæta kona láta taka sig alvarlega? Mér er það til efs.

Hún hjólar í refaveiðimenn með því að segja óbeint að það sé verið að dæla í þá peningum til einskins.

Hvernig er með refinn á Hornströndum, er stanslaust verið að bera í hann? Er honum að fjölga?

Þessar tilgangslausu getgátur hennar hafa bara einn tilgang... Reyna að soga til sín þá peninga sem á að setja í refaveiðina!

Veiðimenn eru að senda henni hræ af refum sem þeir skjóta svo hún geti ransakað hvað þeir eru að éta... Getur verið að niðurstöðurnar úr þeim ransóknum séu að hún éti nánast enga rjúpu???

Þessir refir eru jú vel flestir skotinir við Lamba- og Hrossahlaðborð!!! LOL... Bravó Ester!

Re: Um refaveiðar

Posted: 03 May 2014 02:13
af Gisminn
Nú segir hún án þess að blikna að það séu aðeins 10.000 dýr á landinu.
http://www.ruv.is/frett/refum-fjolgar-t ... rir-veidar
en hvernig í ósköpunum fær það staðist þegar við tökum tæp 8000 dýr á ári
http://ust.is/einstaklingar/veidi/veiditolur/
Þessi stofn þætti í útrýmingarflokk allstaðar annarstaðar miðað við að skilja bara 2000 einstaklinga eftir

Re: Um refaveiðar

Posted: 03 May 2014 14:58
af Morri
Ég er orðinn veikur, spendýralífræðingapest heitir það.
Blaðagreinar í fjölmiðlum, þar sem vitnað er í Ester Rut hafa komið upp þessari nýju veiki.

Ætli séu til tölur yfir hvað margir hausa vantar af fjalli árlega hjá sauðfjárbændum? Ég tel nokkuð öruggt að þeir skipta þúsundum á landsvísu. Við vitum líka hvar innyfli úr öllum þeim 1000-1200 hreindýrum sem skotin eru hér árlega enda. Hross drepast í líka í nátturunni, þar sem þau ganga í lausagangi. Gæsir og rjúpur sem særast og drepast síðar enda í refamaga.

Ester segir að 500 manns stundi vetrarveiði, hún gætir ekki að því að margir þeirra bera ekki út æti.
Auðvitað bera alltaf einhverjir út æti en vitja þess ekki, þeir eru kannski max 200?? það er til óbóta ég segi það ekki, en hvort að það sé það sem skiptir sköpum í heildar myndinni? Ekki séns!

Vetrarveiði en mjög mikilvæg, þar nást refirnir sem síður nást á grenum. Læðan og yrðlingar nást yfirleitt alltaf, það er frekast að refurinn sleppi annað slagið. Þeir nást á veturnar, mikið hærra hlutafall af refum heldur en læðum í vetrarveiði.

Nenni ekki að skrifa meira

Re: Um refaveiðar

Posted: 03 May 2014 15:52
af Stebbi Sniper
Einhver myndi nú segja að enginn stofn þoli 80 % veiðiálag, eru virkilega svona fáir hérna sem finnst þetta skrítið?

Ég hafði nú smá álit á þessari ágætu konu, en nú virðist hún hafa ákveðið að opna muninn og tekið af allan vafa um, þið vitið hvað!

Þessi kona er eins og aðrir vísinda og fræðimenn lobbyisti af verstu sort. Hún gefur sér niðurstöður fyrirfram og ransóknirnar snúa svo að því að sanna það sem hún hélt í upphafi.

Ég geri ráð fyrir því að sjá fréttatilkynningu frá SKOTVÍS fljótlega þar sem þeir hakka þessi orð hennar í sig!

Þegar vegið var ómaklega að Jóni vini mínum þá kom hann í fjölmiðla og svaraði fyrir sig. Vonandi er eitthver dugur í skotvís til þess að svara þessari vitleysu!

Re: Um refaveiðar

Posted: 07 May 2014 11:32
af Gisminn
Jæja stefán hér kemur svarið og vonandi líkar öllum vel tók smá tíma að vinna þetta en hér er þattqa allavega :-)
http://skotvis.is/frettatilkynningar/fr ... riki%C3%B0