Eitt greni í ár?

Allt um veiðar á ref, mink og öðrum vargi
User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Eitt greni í ár?

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 14 Jul 2014 21:10

Það virðist bara ætla að verða eitt greni hjá okkur félögunum mér og Sveini Pálssyni í ár, tófa lá í Bakkastaðahnjúk, búið að fara á flest önnur greni og hvegi far nema í einu greni sem hún virðist hafa flutt úr.
Hins vegar er eftir að fara á nokkur greni inn á öræfunum en þau eru nýkomin undan snjó svo við búumst ekki við neinu þar, en hver veit.
Þeir lögðust á hnjúkinn Sveinn og Aðalstein sonur minn á föstudaginn og gekk vægast sagt illa eftirtekjan var rýr, aðeins 2 hvolpar sem voru kallaðir út og skotnir, og feilskot á bæði dýrin og fleiri en eitt á refinn :twisted:
Síðan kom ég til þeirra upp úr hádeginu á laugardag, Aðalsteinn var þá á greninu en Sveinn farinn að leita á öðrum grenjum.
Ég lá á greninu fram að klukkan 2 á aðfaranótt sunnudags þegar Aðalsteinn kom aftur og tók við.
Ég varð einskis var nema síðasti hvolpurinn í greninu fór að kalla um klukkan 21 um kvöldið, sem var undarlegt í meira lagi þar sem refurinn kom heim í annað sinn klukkan 7 um morguninn öskrandi viðvörunar öskur, það nægir venjulega til þess að hvolpar bæra ekki á sér næstu 2 sólahringana, hann var þá hrakinn burt með viðvörunarskoti :lol:
Þegar hvolpurinn var búinn að kalla smá stund sá ég læðuna í svip en kom ekki á hana skoti og hún hvarf sýnum, kom ekki skoti heldur á hvolpinn þó hann væri að hlaupa á milli munna.
Aðalsteinn tók svo við greninu milli kl: 2 og 3 um nóttina og læðan kom aftur kl 4:30 eftir að hvolpurinn hafði kallað aftur og þá skaut Aðalsteinn hana með rifflinum mínum.
Hvolpinn var síðan farið að lengja eftir læðunni og hann kom út að gá kl: 5:30 og Aðalsteinn skaut hann með rússanum sínum og leirdufuskoti enda færið ekki nema 14 metrar.
Ég fór svo aftur til hans um kl 8 um morguninn og við vorum þarna til kl: 10 þá ákváðum við að gefa þessu líf enda ekkert eftir nema refurinn sem hafði ekki látið sjá sig í rúman sólarhring , kannski ekki nema von eftir trakteringarnar sem hann fékk.
Það má segja að Aðalsteinn hafi fengið sína eldskírn í grenjavinnslu þarna á sínu fyrsta greni og stóðst hana með mikilli prýði, hann stóð sig ekkert síður en við Sveinn sem var með honum fyrsta sólarhringinn.
Hann hefur að vísu farið einu sinni á greni með mér áður fyrir nokkrum árum úti og yfir í Þórfelli, en þá tók bara fjóra tíma að fullvinna grenið en hann skaut þar einn eða tvo hvolpa.
Mé finnst alltaf sérstaklega gaman að vera þátttakandi í því að miðla nýjum mönnum af reynslu minni og ekki spillir fyrir að það skuli vera sonur minn :D
Viðhengi
IMG_1400.JPG
Aðalsteinn Sigurðarson með fenginn eftir síðustu nóttina á greninu, með Rússann í hægri hendi og Mauserinn minn í þeirri vinstri. Í ól á bakinu hangir Guðmundur heilskeftur Sako cal. 222 Rem. sem hann er nú orðinn vörslumaður fyrir, eftir Guðmund Þorsteinsson frá Lundi langafabróðir sinn.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

User avatar
gylfisig
Póstar í umræðu: 2
Póstar:598
Skráður:22 Feb 2012 13:03

Re: Eitt greni í ár?

Ólesinn póstur af gylfisig » 14 Jul 2014 21:54

Skemmtilegt, Siggi.
Væri gaman að vera með í svona, en vinnan leyfir það víst bara ekki.

En ein spurning samt: Sonur þinn er með Mauserinn þinn. Er sonurinn líka handstór ? :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Eitt greni í ár?

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 14 Jul 2014 21:55

Já, okkur passar saman :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

User avatar
gylfisig
Póstar í umræðu: 2
Póstar:598
Skráður:22 Feb 2012 13:03

Re: Eitt greni í ár?

Ólesinn póstur af gylfisig » 14 Jul 2014 22:11

Ja.. það er eins gott. :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík

karlguðna
Póstar í umræðu: 1
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason

Re: Eitt greni í ár?

Ólesinn póstur af karlguðna » 14 Jul 2014 22:35

gaman af þessu :D :D :D
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

Svara