ein öflug

Allt um veiðar á ref, mink og öðrum vargi
User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós
ein öflug

Ólesinn póstur af Gisminn » 16 Feb 2016 13:54

Þessi er góður

Refshalabragur

Við refshala ráð sitt binda
rannsóknar teymi gleið.
Vörn þar um varga mynda,
víkja þar hvergi af leið.
Lífsrétti lamba og kinda
leyfa ekki kjörin greið.
Leggja til leiðsögn blinda,
lofandi falskan seið !

Makráðar menntahræður
mæna í gegnum rör.
Heimskan þar hugsun ræður,
hyllir öll villusvör.
Andlegar innistæður
eru þar hvergi í för.
Því hefur skolli skæður
skínandi vaxtarkjör !

Þarf ekki það að efa,
þar með er stefnt í grand.
Kerfið með krepptum hnefa
kýlir svo margt í strand.
Sérfræðin sést þar vefa
svikræðis vistarband.
Sælulíf radíó-refa
rækta skal vítt um land !

Eykur á meinsemd marga
myglunnar kerfishús.
Hjörðin sem ver þar varga
villunni þjónar fús.
„Refum er ráð að bjarga,
rétt eins og smæstu lús.“
Dómsorð þau djarft vill garga
dulítil hagamús !

Vargsháttur villukerfa
víst er þeim fylgja þjál.
Fast mun að sveitum sverfa,
syrta um strönd og ál.
Æðarvarpsbændur erfa
alls konar vandamál.
Rjúpur í refinn hverfa,
rándýrin léku á Pál !

Lögmál er ljótt að brjóta,
leiður er varga þys.
Eitt vill þar öðru hóta,
allt fer þar góðs á mis.
Lífkeðjan heill mun hljóta
hendi hana ekki slys.
Náttúran þarf að njóta
nærandi jafnvægis !

Býður ei lausnar lykla
lyginnar flækjusvar.
Spóla þó víða og sprikla
sponsaðir aumingjar.
Þarf ekki um stórt að stikla,
stefnt er til bölvunar.
Marshall-aðstoðin mikla
mælist á núlli þar !

Lýsingar enginn ýkir
af því sem reyndin ber.
Rétthugsun svikul sýkir
samfélagsandann hér.
Þingmenn af þótta ríkir
þvaðra og dilla sér,
dýrbítum ljótum líkir,
leggjast á hvað sem er !

Íslenskir vargavinir,
vábeiður kvikusands,
verða aldrei vaxtarhlynir,
vindhanar hrokastands.
Hugar og hæfnislinir
halda þeir beint til grands,
hálfu verri en hinir
heimskingjar þessa lands !

Sérfræði sumra manna
sjálfkrafa vinnur spjöll.
Skynsemin skýra og sanna
skelfist þar dæmin öll.
Er milli allra tanna
andsetin kerfishöll.
Mótmæli sveina og svanna
svelli um Austurvöll !

Rúnar Kristjánsson

(Ort að kveldi 12.2.2016. eftir lestur góðrar greinar Indriða Aðalsteinssonar frá Skjaldfönn í Bændablaðinu) )
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

Svara