Tekinn
Posted: 02 Sep 2016 22:23
Jæja,, nú var mér pakkað saman,,, ég á mér mitt athvarf þar sem ég hef frið og gét hlaðið skot ,, hlustað á tónlist og bara verið venjulegur hillbillí ,,,,, en viti menn konan var óvenju mjúk og frekar hvatti en latti til bjórdrykkju, ég taldi mig mjög góðan og fékk meira fyrir bragðið,,, svo kom skvísan inn í mitt greni og þóttist fíla tónlistina ég einfaldur sveita strákur var ekki á varðbergi, og hvar sit ég núna?????? ég skal segja ykkur það !!! nú sit ég í tandurhreinu greninu og er smá fegin en samt er nauðsinlegt að plata fólk bara fyrir hreinlætið ????? hafa fleiri lent í svona hremmingum ???