Nýjar myndir

Allt um veiðar á ref, mink og öðrum vargi
Garpur
Póstar í umræðu: 5
Póstar:88
Skráður:26 Mar 2012 17:50
Staðsetning:Skagafjörður
Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Garpur » 23 Oct 2012 09:22

Sælir, ég var að tékka á vélinni sem ég er með við ætið.
Þetta virðist lofa góðu, allavega svona til að byrja með.

http://www.youtube.com/watch?v=Bk6Hvxr9mXY&feature=plcp
http://www.youtube.com/watch?v=0tbyUKpx9Gk
http://www.youtube.com/watch?v=bMtxSyTqxtY&feature=plcp

Tímastimpillinn er ekki réttur, ég var ekki búinn að uppfæra minniskortið áður en ég setti það í :oops:
Kv. Garðar Páll Jónsson

User avatar
hpþ
Póstar í umræðu: 1
Póstar:38
Skráður:24 Ágú 2012 12:06

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af hpþ » 23 Oct 2012 10:01

Stórskemmtilegt, þetta er tekið nýlega sé ég. Sú mórauða aðeins farin að grána í vöngum. :)
Í hvaða landshluta er þetta tekið og á hvernig vél er þetta tekið ?

Gangi þér annars vel með framhaldið. ;)
Kveðja,

Halldór P. Þrastarson
halldor@gks.is

Garpur
Póstar í umræðu: 5
Póstar:88
Skráður:26 Mar 2012 17:50
Staðsetning:Skagafjörður

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Garpur » 23 Oct 2012 10:13

Sæll, þetta er tekið í Skagafirðinum ekki langt frá mér, vélin er Acorn.
Þetta er ekki við skothúsið, heldur var ég að prófa að draga út þarna, mikil umferð af dýrum.
Við liggjum svo yfir þessu undir berum eða í jeppanum.
Kv. Garðar Páll Jónsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 3
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Gisminn » 23 Oct 2012 11:01

Þetta er svakalega flott og það er samt altaf aðdáunarvert að sjá hve vör hun er um sig
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
T.K.
Póstar í umræðu: 1
Póstar:166
Skráður:03 Sep 2010 20:54

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af T.K. » 23 Oct 2012 11:17

skemmtilegt. Takk fyrir að sýna okkur þetta.
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn
Þórir Kristinsson

User avatar
E.Har
Póstar í umræðu: 1
Póstar:624
Skráður:27 May 2012 23:26
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af E.Har » 23 Oct 2012 12:43

Glæsilegt.

Hvaða myndavél ertu með?
Finnst þér betra að taka video, hef mína venjulega styllta á myndir .-)
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)

Garpur
Póstar í umræðu: 5
Póstar:88
Skráður:26 Mar 2012 17:50
Staðsetning:Skagafjörður

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Garpur » 23 Oct 2012 13:43

Sælir, þetta er Acorn vél, ég er með tvær vélar önnur er basic en hin sendir sms og myndir ef vill.
Ég notaði hana aðeins í vor við að ná erfiðum dýrum.
Ég hef vélarnar stilltar á þrjár myndir og video. Það hefur komið fyrir að videoupptakan nær ekki dýrunum ef þau hlaupa framhjá í einhverri fjarlægð en þá hef ég mynd af þeim.
Það hefur reynst vel til að vita tímann á styggum kvikindum.
Kv. Garðar Páll Jónsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 3
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Gisminn » 23 Oct 2012 16:17

Hvaða myndavélar senda sms mig vantar svoleiðis svo ég geti bara lagst og slappað af og fengið svo sms ef dýrið er fyrir utan.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
maggragg
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1284
Skráður:02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
Staðsetning:Hvolsvöllur
Hafa samband:

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af maggragg » 23 Oct 2012 19:27

Það er fjallað um þetta eitthvað hér: vargur/hreyfiskynjarar-og-veidimyndavelar-t119.html

M.a. linkur á eina sem sendir mms skilaboð :)
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 3
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Gisminn » 23 Oct 2012 21:09

Takk
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
Morri
Póstar í umræðu: 1
Póstar:116
Skráður:03 Oct 2012 22:07
Staðsetning:Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Morri » 23 Oct 2012 21:29

Sæll Garðar

Þetta eru flott myndbönd.

Þú verður að setja inn myndir þegar þau eru fallin, þessi dýr :D

Ég prófaði mína aðeins í sumar.... fékk aldrei nema rollur ímynd á grenið sem ég stillti á.... en hún er alveg farin að virka, með sms og myndir.

Ómar
Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is

Hvert skott er sigur

Bc3
Póstar í umræðu: 1
Póstar:156
Skráður:15 Jun 2012 16:15
Staðsetning:Grindavík

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Bc3 » 23 Oct 2012 23:51

Er þetta nálægt hofsósi?
Kv Alfreð F. Bjōrnsson

Garpur
Póstar í umræðu: 5
Póstar:88
Skráður:26 Mar 2012 17:50
Staðsetning:Skagafjörður

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Garpur » 24 Oct 2012 09:17

það er ekkert langt í Hofsós, einhverjir kílómetrar.
Gott að vita að þetta virkar hjá þér Ómar, ég hafði það aldrei af að setja vélina á greni í sumar.
Vonandi hefst það næsta vor.
Kv. Garðar Páll Jónsson

User avatar
Dr.Gæsavængur
Póstar í umræðu: 1
Póstar:57
Skráður:05 Jun 2012 15:08

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Dr.Gæsavængur » 24 Oct 2012 13:22

Glæsilegar myndir! Gaman af þessum dýrum..
Hef lengi langað að prufa yfirlegu á ref en búsetan í bænum hefur gert það aðeins erfiðara fyrir. Ég vil ekki leggja út æti ef ég get ekki sinnt því.. Þeas. Skjóta kanski einn,tvo eða þrjá refi en fóðra aðra 10 með ókeypis hlaðborði.

Mínar pælingar eru semsagt þær: Ef ég færi í að leggja út æti hversu lengi er ætið látið liggja? Væri t.d. hægt að leggja út á segjum miðvikudegi og koma svo og liggja yfir helgina eftir? Fjarlægja svo hræið svo það verði ekki bara frítt fóður.. Bara pælingar..
Kv. Atli Freyr Runólfsson
atlifreyrrunolfsson@gmail.com

Garpur
Póstar í umræðu: 5
Póstar:88
Skráður:26 Mar 2012 17:50
Staðsetning:Skagafjörður

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Garpur » 24 Oct 2012 13:28

Sæll, það er rosalega misjafnt hvað ætið liggur áður en hún fer að ganga í, stundum eru tveir-þrír dagar nóg, stundum vika, stundum lengur. Það fer eftir fæðuframboði á svæðinu og gæðum ætis ef svo má segja á hvorn vegin sem er hvort þitt er betra en annað sem hún veit af osfr., en ef þú verður var við mikla umferð og finnur góðan stað eiga þessar pælingar hjá þér alveg grundvöll.
En getur verið betra fyrir þig að liggja úti yfir þessu og þá er að hitta á gott veður og skygni.
Kv. Garðar Páll Jónsson

User avatar
Stefán_Jökull
Póstar í umræðu: 1
Póstar:76
Skráður:28 May 2012 10:41
Staðsetning:Skagafjörður

Re: Nýjar myndir

Ólesinn póstur af Stefán_Jökull » 28 Oct 2012 12:07

Góðar myndir, mikill munur að sjá þetta svona.
Kv. Stefán Jökull

Svara