Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Sveinn »

Nosler auglýsti í haust að fyrirtækið myndi setja á markað nýtt 6,5 mm hylki, 26 Nosler. Hylkið átti að þeyta 129 gr AccuBond LR á 3400 fps og vera eitt flatasta hylkið í flórunni, Max Point Blanc Range (MPBR) upp á 415 yd (374 m). Engar frekari upplýsingar voru gefnar í haust en hylkið var kynnt á SHOT sýningunni í Vegas í vikunni. Búið að samþykkja hylkið hjá SAAMI en engar almennilegar upplýsingar um hylkið gefnar nema lítið málsett teikning.

Menn eru að giska á að þetta sé blendingur af 300 Rem Ultra Mag (RUM) og 30-06, allavega sama OAL eins og 30-06. Vatnsrúmmál 26N er 93 gr þannig að þetta er Magnum hylki án beltis, í 30-06 lengd.

Frekari upplýsingar á http://www.26Nosler.com sem var opnuð í vikunni. Menn nokkuð vissir að þetta verði duglegur hlaupbrennari... Nosler kynnti líka riffil (þeir framleiða nokkrar týpur í dýrari kantinum) fyrir þetta hylki. Nosler framleiðir kúlur, brass og riffla þannig að það eru einhverjar líkur að þetta hylki nái einhverri útbreiðslu.
26N vs 300rum vs 30-06 S.jpg
26N vs 300rum vs 30-06 S.jpg (36.77 KiB) Viewed 5063 times
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by gylfisig »

Hmm,,, örugglega flatt.. örugglega hlaupabrennari.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
agustbm
Posts: 38
Joined: 31 May 2012 16:52

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by agustbm »

Sælir,
Hér má sjá samanburðinn á 6.5x47 vs 26 Nosler :
Attachments
26 N.2.PNG
26 N.2.PNG (35.51 KiB) Viewed 4856 times
Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki Magnússon
agustbm
Posts: 38
Joined: 31 May 2012 16:52

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by agustbm »

Og með helstu málsetningum :
Attachments
26 N.3.PNG
26 N.3.PNG (32.68 KiB) Viewed 4854 times
Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki Magnússon
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Veiðimeistarinn »

Er þetta ekki svipað og 6,5-06 A I
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
agustbm
Posts: 38
Joined: 31 May 2012 16:52

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by agustbm »

Sælir,
Kannski slagar AI hylkið eitthvað uppí þetta. Þó er þetta heldur stærra.

kv,
Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki Magnússon
Kristmundur
Posts: 75
Joined: 30 Jul 2012 17:18

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Kristmundur »

Virðist vera byggt á .404 Jeffrey eins og flest þessi nýju og sveru hilki.
Kveðja.
Kristmundur Skarpheðinsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Veiðimeistarinn »

Kristmundur, hver er þá munurinn á þessu hylki, 26 Nosler og 6,5-06 AI ?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Kristmundur
Posts: 75
Joined: 30 Jul 2012 17:18

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Kristmundur »

Munurinn á 26 Nosler og 6.5-06 AI er mikill ef eins og eg held að það sé byggt á Jeffrey hylkinu.
Þá tekur Nosler hylkið um 85+ grains af vatni á móti ca.72 í 06 hylkinu.
Kveðja.
Kristmundur Skarpheðinsson
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Sveinn »

26 Nosler er 13,5 mm í þvermál (botn) borið saman við 12,01 mm á 6.5-06AI, lengdin á 26N er 65,8 mm miðað við 63,3 mm á 06 hylkinu. 6.5-06AI er með 40° halla en ég hef ekki séð axlahalla á 26 Nosler. Ef það er byggt á 300 RUM hylkinu (sem aftur er byggt á 404 Jeffery) þá ætti hallinn að vera 30°.

Samkvæmt 26Nosler.com er vatnsrýmdin 93 gr í 26N en ca 68 gr í 6.5-06AI.

Mynd af nokkrum hylkjum til samanburðar:
26-Nosler vs 7 rum.jpg
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Veiðimeistarinn »

Mitt 6,5-284 hylki sýnst bara ,,sjortari" við hliðina á 26 Nosler á þessari mynd 8-)
Ég er sennilega barasta kominn í stubbafélagið með Gylfa og Stefáni :lol:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by Stebbi Sniper »

Veiðimeistarinn wrote:Mitt 6,5-284 hylki sýnst bara ,,sjortari" við hliðina á 26 Nosler á þessari mynd 8-)
Ég er sennilega barasta kominn í stubbafélagið með Gylfa og Stefáni :lol:
Ha ha ha... :lol: Góður

Það er bara spurning hvort við tökum við þér í stubbafélagið... Við Gylfi sættum okkur ekki svo glatt við einhverja meðalmensku... :lol: :D
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
ivarkh
Posts: 16
Joined: 28 Aug 2012 18:09
Fullt nafn: Ívar Karl Hafliðason

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler

Unread post by ivarkh »

Þeir sem vilja skoða 26 Nosler geta kíkt á http://www.26nosler.com/ en þar eru þeir með smá kynningu á þessu... Kemur fram að hægt er að ná 380m dauðahring sem er ótrúlega gott. Spurning hver verður fyrstur til að prófa þetta hérna heima.
Kv Ívar Karl
Post Reply