Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Allt sem viðkemur byssum
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Sælt veri fólkið.

Er einhver hérna sem hefur keypt skepti frá Ricahrds microfit ?
Langar að vita frá fyrstu hendi hvernig þau eru, góður viður ? hversu vel er tekið úr fyrir lás ? og hvað er mikil vinna að klára þau útvortis ? svo ef einhver hefur reynslu af þeim þá endilega deilið þeim upplýsingum með undirrituðum

kv
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Já ég á eitt, það er límtrésskefti, með þumalholu. Það er frekar auðvinnanlegt fljótlegt að pússa það með sandpappír og mér finnst það mjúkt og hlýlegt.
Það kom gröffræst fyrir M 98 large ring lás og passaði nánast alveg saman, það var samt frekar stíft svo það þurfti að rýmka það aðeins en það var óverulegt, hins vegar þurfti að taka dálítið mikið fyrir hlaupinu enda er það varmit hlaup flútað af Arnfinni svo það er dálítið svert.
Jói vinur minn Vill fittaði lásin og hlaupið ofan í skeftið og var skotfljótur að því og beddaði það.
Mér sýnist þetta passa vel fyrir þann lás sem það er pantað fyrir.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by iceboy »

Ég er sammála Sigurði.

Smá handavinna við að pússa skeptið en það tekur ekki mjög langan tíma, bara setjast út í skúr og stjúka þessu aðeins :lol:

Ég er með sama skepti og siggi nema i öðrum lit.
Mjög þægilegt og skemmtilegt skepti.

Þegar ég pantaði þá var talað um að það gæti tekið allt að 12 vikur í framleiðslu, og það stóðst alveg, en svo týndi pósturinn í usa pakkanum, það tók semsagt 6 vikur að koma honum frá vesturströndinni að austurströndinni og aldrei var pakkinn skannaður á leiðinni svo það var freka leiðinlegt, en það hefur ekkert með skeptisframleiðandann að gera, en það þarf að gera ráð fyrir góðum tíma fyrir þetta að koma til landsins.
Árnmar J Guðmundsson
Kristmundur
Posts: 75
Joined: 30 Jul 2012 17:18

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by Kristmundur »

Sama sagan hér,er með thumbhole skefti fyrir Win 70 í semi fancy hnotu stóðst allt sem þeir sögðu.
Kveðja.
Kristmundur Skarpheðinsson
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Sælir félagar, og takk fyrir greinargóð svör.

Það er hins vegar uppi sú leiðinda staða að Richards microfit vill ekki selja mér skepti :-( svo ef ég mætti forvitnast aðeins meira, keyptuð beint frá þeim eða í gegnum einhvern aðila ?
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég keypti mitt í gegn um Skyttuna á Akureyri. http://www.skyttan.is/
Attachments
Mitt skefti áður en riffillinn fór ofan í það.
Mitt skefti áður en riffillinn fór ofan í það.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by iceboy »

Ég pantaði beint frá þeim.

Afhverju vilja þeir ekki senda þér
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Ég fékk svo sem enga ástæðu, bara eftirfarandi svar þegar ég ætlaði að panta:

Sir,
Our products can only be sold to customers within The United States.
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Siggi; er langt síðan þú fékkst þitt skepti ?
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by Sveinn »

Hef heyrt að ef sumir byssuhlutir (eins og skefti) kosta meira en 100 USD þá megi ekki senda þá út fyrir USA. Það er misjafnt hvað söluaðilar fara mikið eftir þessu. Boyds sendir t.d. ekki skefti sem kosta meira en 100$ út fyrir USA. Skrýtið hvað mörg skefti kosta 99$ hjá þeim... gott mál.

http://www.boydsgunstocks.com/

Snöggir að senda ef þeir eiga skeftin á lager.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það eru 3 ár síðan!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Jæja, ég spurði um ástæðu þess að ég gæti ekki verzlað hjá RM og fékk það svar að þeir gæti engöngu tekið við kreditkortum sem gefin væru út í bandaríkjunum :(

Sveinn.
Ég var búinn að rekast tilvísun í lagagreinina með þessa $100 reglu á einhverri síðu en man nú ekki hvaða síðu, en þar var slatti af "nema" ákvæðum líka.

Ég hef líka verið að skoða Boyds aðeins og það verður kannski lausnin hjá manni að kaupa frá þeim. Það sem mig langaði í frá RM heitir Monte Carlo og þá er Prairie Hunter frá Boyds líkast en mér líst mikið betur á lögunina á gripinu á Monte Carlo skeptinu....EN auðvitað aldrei alveg að marka að sjá þetta bara á mynd.
En það er rétt hjá þér Sveinn það er skondið hvað mörg skepti hjá Boyds kosta $99 :-)

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by E.Har »

Er hægt að greiða þeim með paypal?
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Nei Einar, þeir virðast ekki bjóða upp á það.

Hér er linkur á Ordering and terms síðuna þeirra.
http://www.rifle-stocks.com/Ordering%20&%20Contact.htm

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
krossdal
Posts: 51
Joined: 19 Mar 2012 11:40
Fullt nafn: Kristján Krossdal
Location: Egilsstaðir
Contact:

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by krossdal »

Hvernig fór þetta hjá þér Garðar? Náðiru skepti frá þeim eða fórstu í Boyds? Hef verið skoða hjá Richards og langar í skepti frá þeim. Er einhver með töfralausn til að ná frá þeim skepti?
Kristján Krossdal
Árskógum 5
700 Egilsstaðir
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Sæll Kristján.

Neibb, ég náði ekki skepti frá Richards Mic. Verslaði PH frá Boyds.
Ég sé ekki aðra leið til að ná skepti frá RM en að eiga kunningja í USA sem gæti verslað fyrir mann og sent svo hingað :(
Ég er á hinn bóginn vel sáttur við skeptið sem ég fékk frá Boyds, kostaði ekki nema $69 og er vel unnið.
Ég að vísu moddaði það eftir minni sérvisku :ugeek: og er sjálfur hæst ánægður með árangurinn....hvað sem öðrum á eftir að finnast :o
Set inn mynd af því um leið og ég er búinn að olíubera það.

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Þá er fyrsta umferð af olíu komin á spítuna.

Minn góði félagi Aflabrestur útvegaði mér eðal timbur til að setja neðan á gripið og á framendann....Bestu þakkir Jón :D

MBK
Gæi
Attachments
WP_20140531_018.jpg
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Já góðan daginn!!!! Kvörnin eftir að verða flott í nýu spítunni, vengan kemur betur út en ég þorði að vona helv dökkur og fínn þótt skeftið sjálft hefði mátt vera örlítið ljósara fyrir minn smekk en samt flottur kontrast, nú er bara 15-20 ferðir af olíu og svo bedda. Fékstu púðan með?
Verst að ná ekki að berja þetta augum í eigin persónu fyrr en í næstu inniveru.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Freysgodi
Posts: 58
Joined: 20 Sep 2013 22:46
Fullt nafn: Jón Valgeirsson

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by Freysgodi »

Sæll Kristján,

Útflutningur byssuskefta er leyfisskildur í USA og bölvað vesen. Skeftið gæti verið gert upptækt ef upp kemst að einhver stingi því í töskuna og reyni að fljúga því heim fyrir þig. Shopusa eru mjög liðlegir í innflutningi ( þau hafa flutt inn fyrir mig högl, forhlöð og hylki ofl) en eg held að hættan sé lika til staðar þar að þú gætir misst skeptið í hítina hja US customs. Mer skilst af internetinu að þeir skili ekki slíkum varningi. Mer bauðst dyrindis vinstri handar skefti a haglabyssuna mina (premium grade - notað a undir halfvirði) en eg fann enga örugga leið til landsins og gafst upp.

Eg myndi hringja i Richards og reyna að semja við þá um að þeir flytji þetta löglega til þin - eða heyra i Hlað hvort þeir geti haft milligöngu um þetta.

Kveðja

J o n V a l g e i r s s o n
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Þekkið þið skepti frá Richards microfit ?

Unread post by petrolhead »

Félagi Aflabrestur: Já vengan kemur vel út :-D Ég er reyndar sammála þér, ég hefði kosið að hafa meiri litarmun...en er þó vel sáttur við þetta.
Stóðst ekki mátið að stinga járninu aðeins í spítuna og taka mynd til að setja hér inn.

Í framhaldi af orðum Freysgoða þá átti ég í nokkrum e-mail samskiptum við stúlku eina hjá Richards Microfit og út úr því kom að þeir geta hvorki sent út úr USA né tekið við greiðslu af kreditkorti sem ekki er bandarískt :-( en N.B. það er kannski líklegra til árangurs að hringja í kanann en senda honum e-mail.
Það að fá Hlað í milligöngu með þetta er samt trúlega besti kosturinn.

MBK
Gæi
Attachments
kvörn í boyds
kvörn í boyds
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Post Reply