Spurning um blámun málma

Allt sem viðkemur byssum
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Spurning um blámun málma

Unread post by petrolhead »

Sælir félagar.
Er einhver hér sem getur sagt mér, með fullri vissu, hvort silfurkveiking eða slaglóðun taki bláma :?:

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Spurning um blámun málma

Unread post by sindrisig »

Það er nokkuð á tæru að silfur tekur ekki bláma í þeim skilningi. Það oxast aftur á móti og verður svart, þannig að jú blámun hefur örugglega áhrif á það. Áttu ekki gamla silfurskeið sem er hvorki fugl né fiskur? Prófaðu bara annan hvorn endan á henni, getur alltaf pússað það í burtu með silvurhreinsi eða sambærilegu efni.

Ef þú ert að spá í hvort að það verði svart, þá er svarið já.

kv
Sindri Karl Sigurðsson
joivill
Posts: 46
Joined: 26 Jun 2012 20:01

Re: Spurning um blámun málma

Unread post by joivill »

Sælir
Silfur og tin taka ekki bláma
Kv Jói byssusmiður
Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður
www.icelandicknives.com
j.vilhjalmsson@simnet.is
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Spurning um blámun málma

Unread post by petrolhead »

Jói;
Takk kærlega fyrir svarið, Mig grunaði reyndar að svona væri en nú hef ég það á hreinu og frá fyrstu hendi ef svo má segja :)

Sindri;
Þetta er áhugaverður þanki hjá þér, litarmunurinn gæti orðið það lítill að þetta væri ásættanlegt, best að prófa að kveikja saman 2 járnbúta og sjá hvernig útkoman verður. Nú ef það gengur ekki þá verð ég bara að bíta á jaxlinn og bæta hæfileika mína í TIG suðu :?

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Post Reply