Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Hvernig er það félagar ,eru þið að þrífa dæjana reglulega ?? og ef svo hvernig og með hvaða efnum ?
Ég hafði ekkert spáð í þetta fyrr en í dag að klúbbfélagi fór að tala um vandræði sem hann hafði lent í með uppsöfnun af sóti og ollið ónákvæmni skota. endilega koma með smá fræðslu
Sæll ég byrja alltaf að taka nýja Dia og taka þá í sundur og þrífa með bremsuhreinsi svo ef ég á Diana nógu lengi þá þríf ég eftir ár eða svo ca 400 skot.Ég lendi lítið í drulluveseni og held kannski af því að ég þíf hylkin að utan með WD40 og klút og bursta hálsinn að innan áður en ég set í Diann.
Þegar ég keypti Wilson die-ana þá var mér bent á að nota þetta til að þrífa þá. Þeir voru allir löðrandi í geymslu feiti sem hvarf alveg þegar maður sprayaði þessu á og strauk af með Olís tork.
Nú nota ég þessa aðferð alltaf til að þrífa þá og þeir eru alltaf tandurhreinir.