270 cal

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
marin
Posts: 72
Joined: 17 May 2012 04:42

270 cal

Unread post by marin »

Sælir snillingar og takk fyrir góðan vef.
Ég er algjör byrjandi í þessu sporti, en er búinn að fá mér riffil og kiki, og nú ætla ég að hella mér út í endurhleðsluna, er komin með leyfið og er búinn að fá mér græjur, er með browning x bolt 270cal og er að spekúlera hvaða kúlu á ég að byrja með og þá hvaða púður, er bara að hugsa um pappa til að byrja með, sótti ekki um hreindýr ár en skaut hreindýr í fyrra,(hrikalega gaman).
Er búinn að lesa mér til bæði hérna hjá ykkur og svo líka á hlaðvefnum, líst bara betur á svörin hérna megin, finnst of mikið um bull og rifrildi hinu megin oft á tíðum.
kv Árni
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: 270 cal

Unread post by gylfisig »

Sæll.
130 grs. kúluþyngd er heppileg. Farðu ekki í léttari kúlu en það.
Síðan spurning hvað tegund af kúlu er heppileg í pappann. Líklega eitthvað frá Sierra, eða td Nosler bt.
N-165 púður gæti dugað við þessa þyngd af kúlu, og kringum 60,0 grs.sem max hleðsla.
þannig að þú byrjar neðar en 60 grs. en fikrar þig hægt upp.
Ágætt að byrja kannski í 57 grs. 60.0 grs skutu 130 grs Hornady Interbond nokkuð vel úr Sauer rifflisem ég var með. Tek það fram að Interbond kúlan er mjög dýr, og er ekki hönnuð sem markkúla, heldur mjög sterk veiðikúla.
Last edited by gylfisig on 17 May 2012 11:12, edited 1 time in total.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: 270 cal

Unread post by Veiðimeistarinn »

Árni, Þú hefur valið gott kaliber, ég er sammála Gylfa um að nota 130 gr. kúlur í riffilinn, það virðist vera nánast algilt að not 130 gr. kúlur í þetta kaliber hérna á klakanum, hef ekki séð þyngri kúlur notaðar í hann fram að þessu.
En ég og bræður mínir og mágur höfum aðeins verið að prufa okkur áfram með að nota 110 gr. kúlur í þetta kaliber (riffilinn hans pabba) reyndar hafa fleiri sem veiða með mér verið að reyna þetta, og það hefur komið bísna vel út, en verður að hitta á réttan stað í hreindýrið, þær geta farið ansi hratt. Bróðir minn keypti einhverjar kúlur úti í Kanada og pabbi bætti meiru við þegar hann fór í Cabelas í haust, annars veit ég að það er hægt að fá þessar kúlur í Honady V-MAX og ég hef aðeins verið að hlaða með þeim fyrir vini mína.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
GBF
Posts: 31
Joined: 25 Apr 2012 19:57

Re: 270 cal

Unread post by GBF »

Sæll Árni,
mér hefur líkað ágætlega við Nosler BT í 130gr og enn betur við NBT 140gr og Hornady SST í 140gr. Bak við þessar nota ég N-560 púður öðru fremur. N-560 gefur betri ákomu í mínum riffli en bæði 160 og 165. Ég nota þessar kúlur meira en aðrar.
Hornady IB í 130gr hefur komið ágætlega út og einnig Sierra GK í 130gr.

Georg
Georg B. Friðriksson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: 270 cal

Unread post by gylfisig »

Ég sé ekki betur einn af allra bestu pennum annars vefs sé kominn hér inn.
Vonandi er hann kominn til að vera :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
marin
Posts: 72
Joined: 17 May 2012 04:42

Re: 270 cal

Unread post by marin »

Sælir.
Þessi svör eru alveg í takt við það sem ég hélt í sambandi við kúlu, en hver er stærsti munurinn á N 160 eða N 560 og hvaða hylki er best að nota.
Ég keypi mér einn pakka af Reminton skotum um leið og riffilinn og ætla að byrja að hlaða í þau.
En nú er kíkirinn kominn og allt að smella saman.
Á ég að halda mig við Reminton skotin, eða á ég að splæsa í eitthvað flottara.

kv Árni
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: 270 cal

Unread post by iceboy »

Ég keytpi mér norma skot í hlað, 110 gr hörð kúla.
Það var reyndar ódyrara að kaupa þau 50 stk ( selst 50 stk í pakka) en að kaupa 50 patrónur:-)

og ég er mað samskonar riffil og þú
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: 270 cal

Unread post by skepnan »

Sæll Árnmar, ertu ekki að tala um 130gr full metal jacket skotin sem eru á um 9000 kallinn fyrir 50stk í Hlað? Þau eru fín og góð hylki líka.
140 metrar, 6-7ms hliðarvindur
140 metrar, 6-7ms hliðarvindur
IMG2011- 700.gif (58.33 KiB) Viewed 3115 times
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
marin
Posts: 72
Joined: 17 May 2012 04:42

Re: 270 cal

Unread post by marin »

Sælir.
Takk fyrir svörin, nota pottþétt eitthvað af þessum upplýsingum.
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð
Post Reply