Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Hátíðni hreinsun er að ryðja sér til rúms við að hreinsa hylki en núna er komið ný gerð af hylkahreinsun og er það með ryðfríu stáli. Þessi aðferð þarfnast þvottavélar sem heldur vatni og því duga ekki gömlu góðu vibrador hreinsararnir. Notaðir eru stálpinnar sem fara í gegnum hvellettugöt og hreinsa hylkin jafnvel betur en hátíðnihreinsarar.
Framleiðandin segir að aldrei þurfi að skipta um stálpinnana, þeir skemmi ekki hylkin og aðeins þarf að nota venjulegt vatn og uppþvottalög. Þetta hljómar spennandi ekki satt.