Er með mms/gprs myndavél sem sendir bara á hreyfingu. Get þó stillt hana með sms en þar sem hún snýr ekki að húsinu sést ekkert hvort ljósið er kveikt eður ei.
Ég valdi sellu sem er svona over-size út af þessu. Sellan er gefin upp 55w en hún er að hlaða um 2,5-3A þegar hún fær sem mesta sól. Ég geri ráð fyrir 2 - 2,5 A í sól, þar sem sellan er lóðrétt og svo snýr hún í suðvestur þannig að hún nær ekki fullum afköstum.
Ljósið er að nota 0,25A þannig að ef maður gerir ráð fyrir 18 tíma í skammdegi sem er ekki fjarri lagi yfir dimmasta tíman er ljósið að nota um 4Ah á hverri nóttu. Ég þarf því tvo tíma af sól til að hlaða það sem uppá vantar eftir nóttina.
Geymirinn er um 55Ah en hann er orðinn lúin þannig að það er eitthvað minna, auk þess þá læt ég stýringuna slökkva á ljósinu fari geymirinn undir 11.1v. Ég gæt trúað að ég hafi svona 20 - 25AH upp á að hlaupa á geyminum. Hann gæti því haldið ljósinu gangandi í um viku án allrar sólar. Það þyrfti svo 10 tíma í sól til að fullhlaða geyminn. Maður verður að gera ráð fyrir dögum án sólar, skýjað, en þá er sellan að hlaða mjög litlu, kannski 0,1 - 0,5A.
Verður spennandi að sjá hvernig þetta verður í vetur og hvort þetta dugar

Svo er reyndar myndavélin tengd líka, en hún notar mjög litla orku, 0,15 mA í standby og kannski 0,5A í nokkrar sekúndur meðan hún er að senda myndir.
Hafði hugsað mér að tengja multimeter við geyminn í nokkra daga og skoða svo min/max voltin á geyminum til að átta mig á því hvað er að gerast og hvort að sellan sé að duga, en ég held að hún ætti að gera það á móti 3w ljósinu.