Hvaða riffli mynduð þið mæla með fyrir 100 metra silhouettu skotfimi.
Kröfurnar eru eftirfarandi:
.22lr
Má ekki vera þyngri en 4.6 kg með sjónauka.
Hlaup ekki lengra en 30"
Nákvæmur.
Áræðanlegur.
Já og góður og stillanlegur gikkur...
Silhouettu riffill
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Það er skotið standandi á stálskotmörk, hænu, svín, kalkún og hrúta á færunum 40, 60, 77 og 100 metrum. 40 Skotum alls og 30 sek á skotið. Tekið í 5 skota hollum en það eru 5 stykki af hverju dýri og teknar tvær umferðir. Þetta var stutta útgáfan.
Þetta er alþjóðleg skotgrein og er ein af viðurkenndu skotgreinunum hér á landi. http://www.imssu.org/
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Sæll Magnús, varst þú ekki með .22 riffil með gatasigtum á? Þú ættir að kíkja í heimsókn til okkar í Digranesið með hann og skjóta svo Enska riffilinn með okkur næsta vetur.
Það er besta æfingin sem maður getur fengið fyrir 300 metrana, sem mér sýnist að muni fara í gang næsta sumar, á miða við áhugan.
Jú er með einn með gatasigtum sem ætlunin er að nota í 50 metra riffilinn sem er væntanlega það sama og enski riffillinn. Verð endilega að kíkja á ykkur og læra grunnþættina og æfa sig svolítið Það er svo 50 metra braut væntanleg hjá okkur svo maður stefnir á að stunda þetta eitthvað af ráði ásamt silhouettu þegar það verður klárt Allavega á sumrin
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"