Rjúpnabyssa

Allt sem viðkemur byssum
MKA
Posts: 4
Joined: 28 Aug 2012 15:04

Rjúpnabyssa

Unread post by MKA »

Sælir.

Mig langar af einhverjum ástæðum í u/y til þess að nota í rjúpnaveiðar, fyrir á ég Browning Phoenix sem ég er mjög sáttur við en mig langar svolítið að prófa að nota tvíhleypu við rjúpnaveiðar.

Ég er með tvær spurningar.

1) Í hvaða tegundum gerir maður bestu kaupin þ.e verð vs gæði.

2) Hefur tvíhleypa eitthvað forskot fram yfir hálfsjálfvirka við rjúpnaveiðar.


Raunverulegur tilgangur þessa pósts er að fá álit fróðari/reyndari manna og að sannfæra sjálfan mig um að ég þurfi nauðsynlega að eignast aðra byssu því mig virðist vanta endalaust af þeim :lol:
Magnús K. Ásmundsson
Browning Phoenix
Browning B525
User avatar
Stefán_Jökull
Posts: 76
Joined: 28 May 2012 10:41
Location: Skagafjörður

Re: Rjúpnabyssa

Unread post by Stefán_Jökull »

Jahh, ég á 11-87 járnkarl sem ég er hættur að nota í rjúpu, nota núna Remington 812 einhleypu (varð seinna CBC), af því hún er léttari og þægilegri að bera hana. Ég skal ekki segja um verð VS. gæði. Er ekki mikið inni í því, en þó veit ég að byssa sem heitir TOZ er búin að vera í notkun í kringum mig í nokkur ár við góðan orðstír, nema hvað það varð að laga annan skotpinnan í henni nýrri (einhver galli, þær voru nokkrar svona). Hún er þægileg að skjóta úr henni og fer vel með.

Í öðru lagi þá er enginn maður haglabyssuskytta nema hafa átt og veitt með tvíhleypu, það er bara svoleiðis. ;-)
Kv. Stefán Jökull
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Rjúpnabyssa

Unread post by Gisminn »

Smá framhjá spurning en tengt umræðunni.
Slær ekki tvíhleypan töluvert meira en sjálvirku eða pumpur ?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Stefán_Jökull
Posts: 76
Joined: 28 May 2012 10:41
Location: Skagafjörður

Re: Rjúpnabyssa

Unread post by Stefán_Jökull »

Ekki töluvert, en eitthvað. Hálfsjálfvirkar fara yfirleitt mun betur með axlirnar á manni en pumpur, ein- og tvíhleypur. En það er bara að leyfa henni að berja og taka höggið, kemst fljótt upp í æfingu.
Kv. Stefán Jökull
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Rjúpnabyssa

Unread post by Sveinn »

Það er til miklu fróðari menn en ég um tvíhleypur en einn af kostunum við tvíhleypu miðað við hálfsjálfvirka er að þú getur haft sitthvora þrenginguna í hlaupunum, t.d. fyrsta skot er úr víðri þrengingu og seinna skotið, þegar fugl fjarlægist, þá hefurðu þrengri þrenginguna til að ná honum. Tvíhleypur eru yfirleitt eitthvað þyngri en hálfsjálfvirkar þannig að með rjúpnaskot (36 gr) þá eru þær ekki að slá teljandi meira. Annars er hægt að fá mjög léttar tvíhleypur, alveg á pari við léttar hálfsjálfvirkar (ca 3 kg).

Aðalkosturinn við hálfsjálfvirkar er þriðja skotið - en það þýðir ekki endilega að þú veiðir meira, menn eyða oftast bara fleiri skotum. En gott að vita af því.

Varðandi merki þá fer það alveg eftir því við hvern þú talar og í öðru lagi hvaða pening þú vilt setja í þetta. Mér hefur fundist Marocchi hjá Hlaðmönnum gefa mikið fyrir peninginn, hvort sem eru tvíhleypur eða hálfsjálfvirkar, tvíhleypur á verðbilinu ca 125 upp í tæplega 500 þús. Ættir að finna eitthvað við hæfi. Baikal menn eru líka mjög sáttir. Beretta og Browning eru með fínar tvíhleypur og ef þú finnur góða notaða þá eru það yfirleitt mjög góð kaup. Sá eina Browning (held B525) hjá Vesturröst um daginn sem mér fannst girnileg, ca 230 þús, notuð.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
MKA
Posts: 4
Joined: 28 Aug 2012 15:04

Re: Rjúpnabyssa

Unread post by MKA »

Takk fyrir þetta Sveinn.

Það er eitt annað sem brennur á mér, en ég er rétthentur en ég er að tapa sjón á hægra auga þannig að ég sé alltaf tvöfalt hlaup þ.e tvo punkta á enda hlaupsins og það mjög óskýrt, þetta er eitthvað sem ekki er hægt að laga eða bæta hvorki með linsum eða gleraugum.
Ég ætla því að skipta yfir í vinstri þ.e skjóta örfhentur, ætti það ekki að ganga upp með flestum standard u/y byssum að því gefnu að skeptið sé ekki sérstaklega sniðið fyrir rétthenta ?

bkv.
MK
Magnús K. Ásmundsson
Browning Phoenix
Browning B525
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Rjúpnabyssa

Unread post by E.Har »

Ég nota mest 11-87 87 árgerð :-)
Nota aðeins í rjúpu Y/U Browning 325
Veiðfélaginn notar Y/U Tikku

Persónulega þá líkar mér vel við remman, kostir við tvíhleypuna eru auðvitað mismunandi þrengingar og svona gæjaleg græja.

Gæðin á tvíhleypum eru svona nokkuð í samræmi við verð og góður hólkur kostar sitt.
Evrópa (blaser, beretta, browning .......... )eða t.d japan (Miraku) Frekar en kaninn.
Annars er þetta mest spurning um hvað þér líkar, eða hvað má detta niður á notað.

Skeftin eru oftast sveigð fyrir þá öxl sem þú skítur af.
Jói ofl hafa sveit þau yfir en það er soldið bras.
Sumar tvíhleypur eru nokkuð beinar!

Gangi þér vel.
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Post Reply