Tvíhleypur - Bettinsoli Vs. Beretta Vs. Marocchi?

Allt sem viðkemur byssum

Með hvaða tvíhleypu mælir þú? (Athugasemdir og ráðleggingar óskast hér að neðan)

Beretta 686 Silver Pigeon I MC
8
62%
Bettinsoli Diamond 12/70
0
No votes
Marocchi Model Zero 3 Sporting
1
8%
Marocchi Model Zero 3 Field
1
8%
Marocchi First 12 Gauge
0
No votes
Baikal - Tvíhleypa 27 EM-M
3
23%
Annarri tegundir (Vinsamlegast takið fram hér að neðan)
0
No votes
 
Total votes: 13

User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Tvíhleypur - Bettinsoli Vs. Beretta Vs. Marocchi?

Unread post by TotiOla »

Sælir skotáhugamenn

Nú velti ég fyrir mér hvort einhver hérna inni hefur sökkt sér í tvíhleypufræðin? Mig langar nefnileag að fjárfesta í minni fyrstu tvíhleypu og hyggst nota hana að mestu í Skeet en einnig til veiða á rjúpu og önd. Ég óska því eftir ráðleggingum, og jafnvel viðvörunum, vanra manna í þessum efnum.

Fjármagnið til umráða er 100-200 þús. eins og er, en ef í ljós kemur að það er ekki nóg fyrir góðum hólki þá annað hvort bíður maður og safnar eða fjármagnar með sölu.

Eins og fram kemur í skoðanakönnuninni þá eru hér að neðan þær tvíhleypur sem ég hef haft augastað á en reyndar ekki gefið mér tíma til þess að fara og "máta". Ég geri mér grein fyrir því að "mátunin" skiptir miklu máli og mun það ráða úrslitum þegar ég er búinn að gera upp hug minn um 2-3 góðar tvíhleypur, vonandi með ykkar hjálp :mrgreen:

http://www.veidimadurinn.is/Default.asp ... 42&vID=746
http://www.hlad.is/index.php/netverslun ... -sporting/
http://www.ellingsen.is/verslun/vorur/f ... vara/73428
http://www.hlad.is/index.php/netverslun ... o-3-field/
http://www.hlad.is/index.php/netverslun ... -12-gauge/
Last edited by TotiOla on 03 Sep 2012 10:25, edited 1 time in total.
Mbk.
Þórarinn Ólason
MKA
Posts: 4
Joined: 28 Aug 2012 15:04

Re: Tvíhleypur - Bettinsoli Vs. Beretta Vs. Marocchi?

Unread post by MKA »

Frábær póstur, ég er í nákvæmlega sömu stöðu.
Vonandi miðla menn ráðleggingum sínum og reynslu hér.
Magnús K. Ásmundsson
Browning Phoenix
Browning B525
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Tvíhleypur - Bettinsoli Vs. Beretta Vs. Marocchi?

Unread post by TotiOla »

Ég verð að viðurkenna að ég var farinn að hallast svolítið mikið að Marocchi Zero 3 Field tvíhleypunni en miðað við álit manna þá virðist eina vitið vera ódýr Beretta.

Væri alveg frábært ef mögulegt er að fá rökstuðning manna við vali sínu. Þ.e.a.s. Hvers vegna telja þeir réttlætanlegt að eyða t.d. 100 þús. til viðbótar í Berettu frá Zero 3 Field. Hafa menn þá slæma reynslu af þessum ódýrari tvíhleypum?
Mbk.
Þórarinn Ólason
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Tvíhleypur - Bettinsoli Vs. Beretta Vs. Marocchi?

Unread post by konnari »

Tóti !
Þú verður örugglega ekki svikinn af Marocchi byssunni......hef bara heyrt talað vel um þær....svo er spurning hvað maður vill vera flottur á því....auðvitað er Beretta eitthvað sem alla dreymir um en með Marocchi þá fær maður gott verkfæri fyrir aurinn.
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Tvíhleypur - Bettinsoli Vs. Beretta Vs. Marocchi?

Unread post by maggragg »

Ég hef einmitt verið í þessum pælingum lengi. Spurningin er hvort maður vill safna sér lengur og fá sér grip til frambúðar eða byrja á ódýrri og kaupa svo dýrari seinna. Berettan er draumurinn hjá mér en ég gæti hugsað mér Marocchi til að byrja á, en ég veit að ég mun fá mér Berettu fyrr eða síðar...

Ætla mér að nota tvíhleypu í skeet og svo öndina. Bara spurning hvenær ég læt verða af því að fara út í þetta.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Tvíhleypur - Bettinsoli Vs. Beretta Vs. Marocchi?

Unread post by TotiOla »

Já, þið segið það. Ég fór einmitt og mátaði þessa áðan. Leyst ágætlega á hana. Veit svo sem ekki nákvæmlega hverju maður á að vera að leita að í tvíhleypu en hún virtist vera mjög vönduð, kom vel upp og var ekki mjög þung.

Image

Ætli maður sleppi því ekki bara að máta Berettuna og Bettinsoli. Þá hefur maður eitthvað til þess að láta sig hlakka til að eignast ef manni líkar tvíhleypu-skytteríið vel ;)
Mbk.
Þórarinn Ólason
Post Reply