Er lægð yfir skyttum....

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
Tf-Óli
Posts: 119
Joined: 08 Mar 2012 21:26
Location: Borgarnes.

Er lægð yfir skyttum....

Unread post by Tf-Óli »

Vefurinn eithvað rólegur um þessar mundir.
Sjálfur er maður hálf ónýtur að fara til veiða. Er þar fyrst og fremst vinnunni um að kenna.

Þó felldi ég nokkrar endur um helgina.
DSCN0899.JPG
DSCN0899.JPG (192.63 KiB) Viewed 4544 times
Og Tikkan er ekki lengur Lite í cal 6.5x55, heldur Lothar Walter varmint í 6.5x284
DSCN0867.JPG


Svo er refakofinn í uppherslu fyrir veturinn, svo að maður er nú með smá lífsmarki.
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
kra
Posts: 115
Joined: 17 May 2012 08:33

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by kra »

Brá mér í gæs í vikunni. Aflatölur voru 17-69-24 ;) Gekk vel, hefði verið gaman á besta deginum að hafa aðra skyttu með sér. Mikið flug þá
Kveðja

Kristján R. Arnarson
Húsavík
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by maggragg »

Er búin að kíkja í önd núna í nokkur skipti í völdum pollum, yfir gerfifuglum og það hefur bara ekkert komið ennþá af ráði. Er ekki kominn með neinn einasta fugl ennþá, en ég er nú ekki stressaður þar sem andatímabilið er rétt byrjað.

Virknin á spjallsvæðinu fer svolítið í bylgjum, stundum dettur allt í dúnalogn, oft tengt helgum, eða ákveðnum tímabilum.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by iceboy »

Ég fór heim í sveitina í smalamennskur og var að sjálfsögðu með vopnin með austur.
Ég skaut 6 gæsir, á ca 150-200 metrum með rifflinum, svo skaut ég einar 14 endur.
Svo skrapp ég aðeins á skarfaveiðar i dag, við náðum 3 skörfum í dag.
Þetta er svona veiðin síðustu 10 daga, hef svosem ekki haft tíma í mikla veiði svona þegar verið er í fjárstússi
Attachments
zorro 30 09 12.jpg
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
Dr.Gæsavængur
Posts: 57
Joined: 05 Jun 2012 15:08

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by Dr.Gæsavængur »

Sælir..

Get sagt fyrir mitt leiti að ég skoða töluvert minna þessar veiðisíður svona yfir háveiðitímann. Ekki það að maður sé samt alltaf svo upptekinn að veiða. Þetta bara atvikast þannig.. Áður en veiðitímabil byrja er spennan mikil og maður eyðir tíma á netinu skoðandi spjallsíður, myndbönd og greinar.. Svo fara menn bara út að skjóta.. er það ekki :)

En ótrúlega flott breyting á Tikkuni TF-ÓLI! Var sjálfur að hugsa eitthvað svipað fyrr á árinu. Nú væri bara flott að sjá hann í nýju skepti :)
Og Tikkan er ekki lengur Lite í cal 6.5x55, heldur Lothar Walter varmint í 6.5x284
Annars hefur maður farið aðeins út með hólkinn. Nú eru Endur, Heiðagæs og Helsingi í frystinum. Hef ekki smakkað Helsingja áður svo það verður gaman! Svo tók félagi minn hreindýr um miðjan sept með rifflinum mínum, góð ferð. Þetta tímabil hefur farið mjög vel af stað..
Kv. Atli Freyr Runólfsson
atlifreyrrunolfsson@gmail.com
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by E.Har »

Er altaf einhvað að brasa.
Ekki komist í alvöru grágæs en búin að vera að fikta við heiðargæs , önd og mink eftir að hreindyratímanum lauk.

Veit einhver hvar ég get fengið ódýrt korn.
Ósýrt og óvalsað má alveg vera ný þreskt. Get alveg þurrkað sjálfur.
Vantar bara smá slatta til að fita endur fyrir veturinn.
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by Veiðimeistarinn »

Til hamingju með nýju Tikkuna Óli, þú ert lang flottastur :D
Það verður gaman að sjá hvernig hun reynist á hreindýrinu á næsta ári 8-)
Það er svona að fá ekki hreindýraleyfi, þá er hægt að setja svona breytingu á fjárlögin hjá sér :lol:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Tf-Óli
Posts: 119
Joined: 08 Mar 2012 21:26
Location: Borgarnes.

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by Tf-Óli »

Takk fyrir góða kveðju Veiðimeistari.
Ég hef það sterklega á tilfinningunni að við munum fara saman til hreindýraveiða næsta haust.

Atli, ég keypti varmint skefti hér á vefnum fyrir lítið og það er verið að bedda lásinn ofaní það í þessum töluðu orðum. GRS er svo framtíðin, en það verður að bíða aðeins.
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by Veiðimeistarinn »

Mönnum hefur orðið tíðrætt um skefti og breytingar á rifflum hér upp á síðkastið, Óli búinn að breyta sinni Tikku úr 6,5x55 í 6,5-284 Lothar Walther með Varmint skefti.
Gísli Snæ. er kominn með GRS skefti á sinn riffil.
Set hérna inn myndir af rifflinum hans Snorra bróður sem er í breytingum, það er Mauser 98 Otterup var 6,5x55 en er nú kominn með Lothar Walther hlaup í 6,5-284 mussle brake eftir Arnfinn sem setti græjuna saman.
Síðan fór Svenni vinur Snorra höndum um Otterupskeftið og shinaði það upp, límdi neðan á pístol gripið og tók úr fyrir þumalvöðvanum (GRS hvað).
Attachments
Fyrir breytingu.
Fyrir breytingu.
Eftir breytingu og yfirhalningu hjá Svenna.
Eftir breytingu og yfirhalningu hjá Svenna.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by Gísli Snæ »

Ekki slæmt, ekki slæmt ;)

Já segðu - GRS hvað :lol:
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Er lægð yfir skyttum....

Unread post by maggragg »

Flott skeptisbreyting, það er mikill munur að skjóta úr riffli sem hefur svona anatomsikt skepti sem passar vel í hendi :)
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Post Reply