Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Þá er komið að því að Berger hleðslubókin er að koma út en búið er að bíða eftir henni í þónokkurn tíma. Fyrir þá sem eru að skjóta Berger kúlum eitthvað þá er þetta málið.
Bókin er 829 bls og fyrir utan mikið af hleðsluupplýsingum er bókin full af fróðlegum greinum, svona dýpri en gengur og gerist í hinum venjulegu hleðslubókum.
Hægt er að forpanta hana að utan en hún kemur út á næstu mánuðum.
Já sá það. Þekki einn sem er með 6.5x47 og hann var eitthvað að tala um að það væri lítið til - ætla að athuga það þegar ég kem í land. Er annars bara búinn að vera að skjóta Scenar og þær hafa verið að koma vel út.