Jæja, loksins er hann tilbúinn og fyrstu 5 skeytin flugu úr honum áðan.
Notaði Norma 120gr FJ verksmiðjuhlaðin þar sem ég er ekki búinn að hlaða neitt í hann.
Verð ég að segja að það er ótrúlega mjúkt að skjóta úr honum og fyrsta grúbban lofar góðu.
Riffillinn er Tikka t3. Var áður lite 6.5x55 en er eftir breytingar er hann 6.5x284.
Lothar Walter hlaup, twistið er 1 í 9. Muzzle brake og önnur vinna við hlaupið er unnin af Arnfinni. Skeftið er Tikka varmint og sá Jói Vill um að bedda lásinn í skeftið.
Sjónaukinn er líka nýr, en það er Meopta Meopro 6-18x50.
Góður, maður fer að verða feiminn við að fara með ykkur meisturunum með ykkar sérsmíðuðu græjur en uppfærsluverkefnið mitt er að fara á fullt aftur og er þá ekki stefnt á eitt ríkis gat sama hversu mörg skeytin verða
Til lukku með gripinn Óli Er með einn ekki ósvipaðann en þar er einmitt draumurinn að fara úr 55 í 284 auk flútunar og bremsu (eða deyfi, ef það verður einhvertíman aðgengilegt).
Nei Gísli, ég keypti hann í bænum. En ég þurfti að bíða í mánuð eftir honum því að þeir seldust upp í haust.
Varð reyndar pínu pirraður því að ég hringdi á föstudegi og þá var hann til, "ekkert mál komdu bara á mánudaginn".... en svo greip ég í tómt þegar ég kom. Ég ákvað samt að bíða eftir næstu sendingu því að ég var búinn að bíta það í mig að þetta væri rétti sjónaukinn fyrir mig. Skoðaði líka flotta sjónauka frá Minox og Weaver en meopro varð fyrir valinu.
Minn Mauser 6,5-284 er líka snúin 1 í 9 og ég nota eigöngu 100 gr. ball. tip í hann og 95 gr. V-Max með 60 gr af N560 púðri og fæ út 3400 fet á sekúndu, það er fantanákvæmt hjá mér.
En nú er ég að hætta með N500 línuna og ætla að fara yfir í sama hraða í annað hvort N160 eð N165, vegna sótmyndunarinnar þegar N500 línan er notuð eins og fram hefur komið hérna nýlega í tveimur þráðum.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Takk Gylfi Hugmyndin er að þetta sé veiðiverkfæri sem líka er gaman að leika sér með.
Ég myndi þiggja Húsvíkskar hugmyndir að hleðslum.
Hefur þú hlaðið Barnes ttsx 120 gr?
Vaðbrekkuhleðslan kemur bara vel út félagi, bæði á 100 og 200 nema einn flyer á 200 metrunum.
Allt innan marka á haus, samkvæmt minum kokkabókum áttu að vera nokkuð öruggur með þessa hleðslu á haus út í 270 metra en upp úr því fer kúlan að hægja svo á sér að hún springur ekki eins verklega svo það verður að hitta betur til að dýrið falli örugglega.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Svona riffill á örugglega að geta skotið 0,5 tommu grúppur eða minni, á 100 metrum. Jalonen rifflarnir hafa gert það auðveldlega.
Haus á tófu er lítið skotmark, og til að hitta hann, við kannski aðstæður sem eru ekki eins og að skjóta í mark, af borði, þá þarf riffilinn að vera nákvæmur, og hleðslucomponentar sð vera þannig að þeir séu það sem byssan vill.
Ég myndi tvímælalaust nota aðeins þyngri kúlu.
Nosler BT 120 grs.
Lapua Scenar 123 grs
Hornady A max 123 grs.
Það sem ég hef hlaðið í Riffla í þessu kaliberi er:
53-54 grs Norma MRP
Primer;CCI (ekki magnum)
Nosler BT 120 grs.
Þessi hleðsla hefur verið að skjóta mjög vel úr Jalonen rifflum í cal 6,5-284 .Þeir riffla voru allir með Lothar Walther hlaup.
Hver er munurinn á fallinu samkv töflu á 100 gr. ballistic tip með 60 gr. af N560 púðri á 3500 fetum samkvæmt mæli annarsvegar og þessum kúlum hjá þér Gylfi, Nosler BT 120 grs. Lapua Scenar 123 grs
Hornady A max 123 grs. með 53-54 grs af Norma MRP púðri ég veit ekki hraðann, hjá þér hinsvegar.
Á 200 m. og 300 m.?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Já Veiðimeistari, Vaðbrekkuhleðslan er komin til að vera. Tomma yfir á hundrað, á punktinum á tvöhundruð og sirka 10 - 12 sm undir á 300. Helvíti gott.
Ætla að eiga líka góða 120 gr hleðslu. BT eða Barnes. (Bara svona ef maður lendir í ísbirni )
Ef einungis er verið að eltast við fall, þá er ég bara í allt öðru dæmi en þið.
Ég er fyrst og fremst að fá riffla til að skjóta nákvæmt, en ekki að leita eftir minnsta fallinu. Þá myndi ég einfaldlega leita að léttustu kulunni sem fáanleg er í viðkomandi kaliber.
Tæknilega fellur hún minnst út á eitthvað x færi. Þegar færin lengjast, þá er þyngri kúlan hentugri í alla staði. Ég hef farið milliveg í 6,5-284 og valið 120-125 grs. Mér fannst 140 grs kúlur of þungar fyrir það sem ég var að nota riffilinn í. Prófaði þessar léttari einnig. 100- 108 grs. Ekki vantaði nú hraðann á þær, en nákvæmnin var ekki eins og ég vildi hafa hana.
Varðandi spurningu Sigurðar um fall á þessum þyngdum, þá setti ég hleðslurnar inn í QL forritið en það vildi ekki þennan hraða sem Siggi gaf upp. Með 61 grs af N-560 þá er hraðinn gefinn tæp 3300 ft með 100 grs Nosler bt.
Miðað við zero @ 100 m. þá fellur sú kúla 7,1 cm @ 200m og 29,3 cm @300m.
Hraðinn á hleðslunni sem ég nota mest er 3015 ft með Nosler Bt 120 grs. Mælt með hraðamæli.
Miðað við zero @100 m þá er fall á 200 m 8,7 cm
Á 300 m er fallið 33 ,1 cm.
Vonandi svarar þetta spurningu Sigga að hluta til, en forritið samþykkti alls ekki þennan hraða sem Sigurður gefur upp, þannig að ég setti 1,0 grs meira í hleðsluna og fékk 3300 ft hraða með 100 grs kúlunni.
Það er lítið mál að læra á fallið, og ég tel það milku hentugra að nota þá kúlu sem flýgur nákvæmast, heldur en að eltast við ofurhraða. Að sjálfsögðu væri það ágætt, ef ofurhraðakúlan gatneglir, en það er bara ekki mín reynsla með þessi hlaup, og þetta twist (1-9).