Wilson Dæjar / Arbor Pressur

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Wilson Dæjar / Arbor Pressur

Unread post by maggragg »

Nú væri gaman að vita hvað það er nákvæmlega sem gerir Wilson Dæja svona góða samanborið við hefðbundnar pressur og dæja.

Það er ekkert launungarmál að (allir) sem eru í nákvæmnisskytterí nota Wilson dæja og sverja við þá og efast ég ekki um að þeir séu að skila betri hylkjum, en hvað er það sem munurinn er fólginn í? Er það smíðinn á dæjanum sjálfum eða aðferðin sjálf við að sæsa hylkið sem um munar.

Hverjir eru kostir/gallar á wilson með arbor pressu og svo hefðbundnum dæjum með hefðbundinni pressu?

ImageImageImage
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Wilson Dæjar / Arbor Pressur

Unread post by Stebbi Sniper »

Reyndar eru ekki allir sem nota Wilson die-a, því t.d. framleiðir Redding dia sem eru örugglega af sömu gæðum (Redding competition type-s dies). Það sem Wilson hefur framyfir er einfaldleikinn og hversu auðvelt er að taka þessar græjur með sér til þess að hlaða og prófa mismunandi kúlusetningar þegar þú ert komin út á völl.

Þetta er ótvíræður kostur þegar þú ert t.d. Benchrest skytta. Ég Ímynda mér að Ameríkanar keyri oft nokkuð langar leiðir til þess að komast á skotvöll og þá þarft þú ekki að taka með þér stóra og klunnalega pressu til að ýta kúlunum neðar. Kíkiði á vídeóin frá Hjalta Stefáns youtube (Poldinn á hlað vefnum). Þar er hægt að sjá Wilson í action.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Post Reply