Hreindýrakvóti 2013

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
kra
Posts: 115
Joined: 17 May 2012 08:33

Hreindýrakvóti 2013

Unread post by kra »

Hefur einhver séð eða heyrt af kvóta næsta árs ?

Heyrði að kvótinn yrði 1200-1300 dýr. Og mikil aukning á svæði 7. Einnig einhver pæling um að sá kvóti yrði veiddur sunnan Hamarsár :shock: Og þá líklega einhver breyting á svæði 6..

Spyr sá sem ekki veit ! lítill fugl hvíslaði þessu að mér um daginn..
Kveðja

Kristján R. Arnarson
Húsavík
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hreindýrakvóti 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég hef ekki heyrt neitt um fjöldann, en ég hef heyrt svipaðar sögur og kvíslað hefur verið að þér Kristján.
Ég hef líka heyrt að það verði fjölgun á svæði 1 og það verði ekki tengt svæði 2 eins og verið hefur, það er að það verður að veiða kvótann á 1 á svæði 1.
Síðan hefur verið kvíslað í mitt eyra að mjög fá leyfi verði á svæði 2, einhverjar örfár kýr kannski, kvótinn þaðan fari á svæði 1 og svæði 6 og kannski yfir á 7 eitthvað líka eftir hvernig á það er litið, þetta er það smáfuglatíst sem ég hef heyrt.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
kra
Posts: 115
Joined: 17 May 2012 08:33

Re: Hreindýrakvóti 2013

Unread post by kra »

Kannski er eitthvað til í þessu litla tísti !
Og hvernig verður þá með veiðimeistarann sjálfann.. fá dýr veidd næsta sumar á heimaslóðum þínum :roll:
Kveðja

Kristján R. Arnarson
Húsavík
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hreindýrakvóti 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Svæði 1 er líka á mínum heimslóðum.
Þó ég sé nú fastur fyrir, þrójóskur og sérvitur með köflum, svona hálfgerður tréhestur, er ég nú samt færanlegur þegar því er að skipta.
Ég er nu orðinn nokkuð hagvanur á svæði 6 og hef mikið leiðsagt þar vegna skörunarinnar af svæði 2 síustu tvö árin, síðan er ég farin að þekkja bærilega til á svæði 7, það er norðan Hamarsár.
Er það ekki venja hirðingjana að fylgja dýrunum 8-)
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
jon_m
Posts: 169
Joined: 16 Dec 2012 11:12
Location: Fossárdalur
Contact:

Re: Hreindýrakvóti 2013

Unread post by jon_m »

Hef heyrt sömu sögur, þ.e. að kvótinn á svæði 1 verði aukinn verulega og lokað verði á milli svæða 1 og 2. Kvótinn á svæðum 6 og 7 verði hart nær tvöfaldaður og að kýr á svæði 7 skuli fella sunnan Hamarsár.

Þetta lofar góðu fyrir komandi veiðitímabil. Það er þó eins gott að þokan haldi sig fjarri ef fella á 400 hreindýr á svæði 7.

Svo er spurning hvort að það er eitthvað að marka þessar sögusagnir ?

kveðja
Jón M
kveðja
Jón Magnús Eyþórsson
jonm@fossardalur.is
http://facebook.com/hreindyr
Post Reply