Gleraugu eða ekki

Allt sem viðkemur riffillsjónaukum og handsjónaukum
User avatar
Björn R.
Posts: 105
Joined: 10 Feb 2013 19:10
Fullt nafn: Björn Jensson
Location: Reykjavík
Contact:

Gleraugu eða ekki

Unread post by Björn R. »

Set þetta undir sjónauka þótt ég viti varla hvar. Málið er að þegar ég felldi mitt fyrsta og eina hreindýr hingað til þá spurði leiðsögumaðurinn minn ítrekað hvort ég ætlaði að nota gleraugun sem ég nota dags daglega þegar ég myndi skjóta. Á endanum reif ég þau af mér og skaut.
Nú er ég að velta fyrir mér, þið sem notið gleraugu dags daglega. Finnst ykkur betra að skjóta með eða án þeirra? Hvað mig varðar þá er ég ekki með mjög slæma sjón en þarf samt gleraugu.

Ég er aðallega að velta fyrir mér hvort það sé möguleiki að einhver brenglun verði þegar horft er í gegnum gler og síðan næsta gler.

Með kveðju
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Gleraugu eða ekki

Unread post by Gisminn »

Nei ég nota gleraugu og stilli sjónaukann bara fyrir það en mig grunar frekar að gædinn hafi verið að hugsa um vindáhrifin og að þú tárist frekar.
Allavega við sumar aðstæður tárast ég meira með gleraugun og bara tek þau af og stilli það munar litlu eins og hjá þér er með -1,75 sjónskekkju
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Gleraugu eða ekki

Unread post by Gísli Snæ »

Sæll

Ég skýt alltaf með gleraugun - hef reyndar ekki prufað að taka þau af mér. Það er á planinu á þessu ári að fara í laiser aðgerð og þá hugsa ég að ég muni venja mig á að skjóta með öryggisgleraugu.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
Björn R.
Posts: 105
Joined: 10 Feb 2013 19:10
Fullt nafn: Björn Jensson
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Gleraugu eða ekki

Unread post by Björn R. »

Takk takk báðir tveir
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Gleraugu eða ekki

Unread post by E.Har »

Fáðu þér svona textablað og skoðaðu hvort þú getur stillt focusinn þannig að þú sleppir v gleraugun.
Auðvitað fer það eftir riffli og sjónauka, en flest allar riffilskyttur hafa feng sjónaukann í trýnið :mrgreen:

Toti félagi minn á Egilstöðum, er t.d með plástra með sér altaf til að smella saman augabrúnum.
Hann er með mjög léttan Dako í 300 win mag og meopta með 50 mm eyrelife svo margir fá hann í hausinn. Ekki gott að þurfa að tína glerbrot úr augunum á einhverjum á fjöllum :lol:

Svo min skoðun, ef hægt er að sleppa gleraugum, þá sleppa þeim!
Ef ekki þá velja hentugan sjónauka og litið bakslag!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
Björn R.
Posts: 105
Joined: 10 Feb 2013 19:10
Fullt nafn: Björn Jensson
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Gleraugu eða ekki

Unread post by Björn R. »

Þetta er Zeizz og .308 hunter. Slær ekkert óskaplega Allavega mörg kaliber og eða byssur verri en það. En ég er minnugur þess sem Jói Vill sagði við okkur á námskeiðinu forðum daga. " Ef þið gleymið öllu sem ég hef sagt hér í kvöld, munið þá allavega að halda auganu í hæfilegri fjarlægð frá kíkinum" Þetta er það síðasta sem ég hugsa um eftir að hafa komið mér fyrir og hef blessunarlega sloppið við glóðarauga hingað til, hvað svo sem síðar verður :o

En já, ætli ég fari ekki að prófa mig áfram með hvorutveggja, Takk Einar
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
johann
Posts: 95
Joined: 18 Jul 2012 08:48

Re: Gleraugu eða ekki

Unread post by johann »

Gleraugun mín eru alltaf fyrir, þ.e. efri kanturinn á umgjörðinn lendir nokkurnveginn í krossinum, svo ég enda alltaf á að rífa þau af mér eða ýta þeim upp á ennið. Kannski maður þurfi að fá sér svona seventies Austurþýskalandsgleraugu sem þekja allt andlitið.
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Gleraugu eða ekki

Unread post by E.Har »

Prófið að fókusstilla sjónaukana, ef þið getið skotið án gleraugna þá er það kostur.
bara t.d í rigningu. Síðan hitt að ef færið er t.d upp í móti þá færist sjónaukin nær hausnum og hættan á að fá hann í hausin eykst.

Þó svo Zeiss með 75 mmm bili frá auga í kíki og 308 sem er frekar mjúkur ætti ekki að valda neinum vandræðum. :-)
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Post Reply