Skotvís og skotprófin

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Veiðimeistarinn »

Í þessu máli er ég algerlega sammála Jóni og lýsi fullum stuðningi við hans málflutning.
Auk þess voru það ekki skotfélögin sem ákváðu upphæð þessa prófgjalds, það held ég að UST hafi gert án samráðs við skotfélögin ef ég man rétt, en við erum jú ótrúlega fljótir að gleyma, ekki satt.
Ég er að mörgu leiti sammála Skotvís líka í þessu máli það mundi tvímklalaust fækka sýndarumsóknum eins og þeir kalla kennitölusöfnunina (gott nýyrði), að taka skotprófið áður en sótt er um hreindýraleyfi.
Að öllu öðru slepptu eru þessi skotpróf komin til að vera í þessari mynd sem lagt var upp með, þó ekki sė nú framkvæmdin gallalaus, smkvæmt minni reynslu skiluðu þessi skotpróf í fyrra mun betur skjótandi veiðimönnum sem þekktu líka mun betur inn á hæfileika vopna sinna en fyrir tíma skotprófa og þið skulið trúa mér að þar var ekki vanþörf á, þó ad vísu nokkur hluti veiðimanna hafi allt sitt á hreinu eftir sem áður.
Mér finnst þetta væl um kostnað þessu tengdan hálf hjáróma, árétta og tek aftur undir með Jóni og finnst þetta fremur bitamunur en fjár.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by gylfisig »

Helvíti góður, Jón :D
Þarf varla að bæta við þetta.
Algjörlega sammála ykkur Sigurði.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Gisminn »

Þetta snýst ekkert og endurtek ekkert með upphæðina að gera og hefur aldrey gert.
Lesa menn að krónutöluni og búið ég bara spyr?
Ég hef ekki sagt að skotfélögin séu vondu kallarnir en ég bendi á að áherslan er röng.
Og það er rétt hjá Jóni að hagsmunafélög eiga að hugsa um eigin rassgöt rétt eins og skotfélagar eru að gera með að verja tekjulindina sýna.
Skal prófa að skrifa með stórum stöfum 5 atriði og draga mig svo í hlé.
1.HREINDÝRAPRÓFIÐ ER GOTT.
2.STÆRSTU SKOTFÉLÖGIN ÁSAMT UST ÁKVÁÐU GJALDIÐ ÚT FRÁ LAUNUM EKKI KOSTNAÐ VIÐ VÖLL
3. LAUN ERU SKATTSKYLD,SJÁLFBOÐAVINNA EKKI! VALLARGJALD EÐA ÁLÍKA ER HÆGT AÐ RÖKSTYÐJA OG SETJA KOSTNAÐ Á MÓTI.
4.EF ÞETTA ER KALLAÐ VALLARGJALD EÐA ÁLÍKA ER SKOTFÉLÖGUNUM Í SJÁLFSVAD SETT HVORT ÞEIR VEITI SÝNUM FÉLAGSMÖNNUM AFSLÁTT EÐA EKKI BARA EF ÞEIR STANDA SKIL Á 500KR HANDA UST.
5.SKOTFÉLÖGIN ERU EKKI ÞAU EINU SEM MEIGA TAKA MENN Í HREINDÝRAPRÓFIÐ.
Last edited by Gisminn on 31 Mar 2013 17:45, edited 1 time in total.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by gkristjansson »

Ég taldi 5 atriði þarna ;)
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Gisminn »

Það passar leiðrétti takk :-)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
egill_masson
Posts: 24
Joined: 30 Oct 2012 22:33
Location: 101 Reykjavík

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by egill_masson »

Ég er þá ósammála bæði Jóni og Sigurði. Þ.e.a.s. mér finnst ekki að eigi að skilyrða umsókn við undanfengið skotpróf, enda held ég að kennitölusöfnun sé ekki vandamál lengur. Á hinn bóginn finnst mér skotfélögin fara offari í gjaldtöku fyrir prófin. Og gjaldtakan fer algerlega fyrir borð þegar menn þurfa að greiða fullt gjald við endurtöku prófsins.

Og það að UST hafi sett þessa tölu á blað á sínum tíma er ekki réttlæting gjaldtökunnar. Það eru skotfélögin sjálf sem ákveða að taka þetta gjald - það er allavega ljóst eftir að þetta álit frá UST er fengið.

Það er ekkert sjálfssagt að hreindýraveiðar eigi að vera lúxusáhugamál á við laxveiðar eða golf í útlöndum. Það er fullt af hagsmunaaðilum í þessari grein eins og öðrum sem vinna að kappi að því að "útlendingavæða" þessa veiði á sama hátt og laxveiðar. Og það er ekki jákvæð þróun að mínu mati - enda er ég hinum megin við borðið.
------------------------------
Egill Másson, Reykjavík
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by maggragg »

Bara að benda á að verðskrá UST er auglýst í stjórnartíðindum og er þetta opinbert stjórnsýslugjald. Þannig væri það brot að jafnræðisreglu að innheimta mismunandi gjöld eftir búsetu eða staðsetningu þar sem um opinbert gjald er að ræða.

http://www.ust.is/library/Skrar/Umhverf ... 6_2012.pdf

Jafnframt er þetta tekið úr samningi milli UST og framkvæmdaraðila:
Framkvæmdaraðili sér um innheimtu prófgjalds vegna skotprófsins. Innheimta skal fyrirfram eitt gjald fyrir hvert tekið
skotpróf. Ekki er heimilt aðvíkja frá gjaldskrá Umhverfisstofnunar fyrir skotpróf.
Skotfélögin verða að rukka þetta gjald inn, annað er ekki heimilt. Það sem UST er að vísa í er að eftir að búið er að rukka gjaldið geta skotfélögin gert það sem þau vilja. Fyrir utan vallargjöld þá er framkvæmdaraðilinn að bjóða uppá aukna þjónustu.

Ég er sammála Sigurði og Jóni í þessu. Reyndar eru rök á báða bóga varðandi að taka prófið á undan umsókn, en ég hallast þó frekar að því. ATH. ég er ekki stór umsækjandi á hreindýr, aðeins sótt einusinn um og fekk ekki...

Hvað finnst þeim sem telja þetta svona mikið okur að ætti að rukka fyrir prófið? Þarna er verið að tala um notkun á skotvelli auk sérstakrar þjónustu manna við að framkvæma prófið. Væri til í að heyra rökstuddar tillögur?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Árni
Posts: 145
Joined: 23 Jan 2013 11:14
Fullt nafn: Árni Ragnar

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Árni »

Og þar með er tilgangi prófsins náð.
Þetta má að mínu mati alls ekki vera ódýrara en það er.

Ef það myndi kostar 1000kall þá myndi hver sem er fara og reyna að "grísa" á að ná því í einni af þremur tilraunum.
En með því að láta þetta kosta smávegis þá amk hugsa menn sig um (og æfa vonandi) áður en þeir þreyta prófið.

Auk þess er þetta í kringum hálftíma vinna lágmark fyrir prófdómara að taka mann í svona próf og að skotfélagið fái 4000krónur fyrir það finnst mér nú vera við lágmark líka.
Árni Ragnar Steindórsson
1337@internet.is
S: 666-0808
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll félagi Þorsteinn.

Ekki rétt hjá þér varðandi lið 2, í upptalningunni ;)
Skotfélögin komu ekkert að tilurð gjaldskrárinnar.
Rétt skal vera rétt
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Gisminn »

Skal senda þér afrit frá UST og segðu mér svo hérna að þetta sé ekki rétt
Og Magnús við höfum farið þennan hring áður en skal stikla á stóru með hringinn.
Gjaldið er lögboðið og er til að dekka sannanlegan kostnað sem er í þessu tilfelli laun þannig að þessir 62 dómarar borga þá væntanlega skattinn af laununum sínum ekki satt?
En ef þetta er sjálboðavinna er gjaldið ólöglegt þar sem sannarlegur launakostnaður er ekki til staðar.Sami lagabálkur bara önnur grein sem kveður á að gjaldtaka skuli sönnuð með rökum og kostnaði.
Last edited by Gisminn on 31 Mar 2013 21:25, edited 1 time in total.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by skepnan »

Sæll Jón Pálmason, rétt skal vera rétt.
Jón Pálmason wrote: Skotfélögin komu ekkert að tilurð gjaldskrárinnar.
Látum okkur nú sjá, fyrir hönd UST var Einar Guðmann formaður skotfélags Akureyrar til langs tíma,
fyrir hönd Skotvís Elvar Árni formaður Skotreyn og samið var við SR. Hvað meinarðu með því að skotfélögin hafi ekkert komið að málunum?
Samið af formönnum skotfélaga um skotfélög við skotfélög :evil: EN skotfélög höfðu EKKERT með þetta að gera, yeah right........ :shock:

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll aftur.

Endilega settu afritið inn hér svo að við fáum að vita hvaða félög stóðu að þessu.
Veit sjálfur ekki betur en að einn ágætur starfsmaður UST hafi tímamælt skotprófið, tímamælt skýrslugerðina og fl. Og síðan var gjaldtakan fundin út frá því.
Og eins og oft áður hefur komið fram þá er um opinbera gjaldskrá að ræða ;)
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Gisminn »

Sæll þú fekst afritið og þar sagði þessi ágæti forsvarsmaður UST að öll þau stærstu hefðu komið að þessu.
Og ég lengdi aðeins svarið hér á undan.
En það er ekkert mál að henda þessu hér inn. Kemur eftir smá
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll Þorkell.

Einar Guðmann er starfsmaður UST. Megum ekki blanda því saman að hann hafi einhverntímann verið formaður Skotfélags Akureyrar.
Elvar Árni Lund er formaður Skotvís, sem er EKKI skotfélag. Heldur samtök skotveiðimanna.
Vissi ekki að hann væri formaður Skotreyn, eins og þú heldur fram.
Vissi heldur ekki að hann hafi verið með puttana í tilurð gjaldskrárinnar. Leyfi mér reyndar að efast stórlega um það.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Gisminn »

Hér kemur spurningin mín og svo svarið hanns Einars svo kæri Jón 2 liðurinn minn stendur.

Góðan dag nú hef ég verið í sambandi við nokkur skotfélög sem bera því við að UST hafi einhliða ákveðið upphæðina fyrir skotveiðiprófið fyrir Hreindýraveiðina.
Mig langar að vita hvort það standist ? Og sé það rétt þá langar mig að vita hver sé þessi rökstuddi kostnaður 4000 kr sem skotfélögin fá.
500kr hafið þið útskýrt og rökstutt.
Svo mín spurning er þessi. þar sem ég gef mér það að þessi upphæð var ekki bara út í loftið heldur hafið þið hana við hendina.
Hvernig skiptast 4000kr niður í þessum rökstdda kostnaði skotfélagana ?

Heill og sæll Þorsteinn

Það fellur undir hlutverk Umhverfisstofnunar í þessu samhengi að leggja til gjaldskrá skotprófa. Endanleg tillaga að gjaldinu var ákveðin þegar búið var að reikna efniskostnað og tímamæla vinnu við framkvæmdina. Prófið er staðlað í framkvæmd og tímamælt var hversu langan tíma það tekur að jafnaði að framkvæma próf og klára þá tölvuvinnu sem þeim fylgir. Í heildina eru prófdómarar á bilinu 30-50 mínútur að sinna hverjum próftaka þegar allt er talið og þessum 4.000,- krónum sem fellur í hlut framkvæmdaraðila er ætlað að greiða fyrir þá vinnu. Við ákvörðun gjaldskrár er ekki hægt að gera ráð fyrir öðru en að menn vilji fá greitt fyrir þann tíma sem þeir vinna fyrir aðra.

Varðandi hina spurninguna þína þá er ekki allskostar rétt að ekki hafi verið haft samráð við framkvæmdaraðila varðandi ákvörðun gjaldsins. Snemma í ferlinu var rætt við forsvarsmenn stærstu félagana hér á landi og rökstuðningur fyrir gjaldinu borinn undir þá. Vissulega var ekki talað við alla enda voru ekki allir búnir að sækja um að taka þátt í prófunum á þeim tímapunkti. Umhverfisstofnun bar ekki beinlínis að fá samþykki framkvæmdaraðila en að sjálfsögðu var kannað hjá lykilaðilum hvort fallist yrði á rökin fyrir gjaldinu.

Gjaldinu var ætlað að standa undir þeim kostnaði sem fylgir framkvæmdinni og undirrituðum þykir gjaldið uppfylla það skilyrði enda ekki annað sanngjarnt en að vinna þeirra sem fórna tíma sínum í þetta sé metin. Það hefði líklega einhver kvartað ef lagt hefði verið til að prófið yrði byggt á sjálfboðavinnu framkvæmdaraðila.

kv.

Einar Guðmann
Umhverfisstofnun
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by gkristjansson »

Því miður þá get ég ekki lengur orða bundist með þetta mál:

- Jú, að sjálfsögðu eru skotprófin af hinu góða
- Nei þau (það er skotpróf) eru ekki skylda í öllum löndum þar sem veiði er stunduð
- Framkvæmd á skotprófum á Íslandi eru illa hugsuð og vanhugsuð
- Ég var rétt í þessu að skoða tölur um 2 Ungverja sem, á mínum vegum komu til Íslands til að veiða hreindýr og veit eftifarndi:
- Lögum (reglugerðum) samkvæmt þá þurftu þessi menn að taka skotpróf
- Þar sem þeir voru, við komu til landsins, ekki búnir að taka próf þá þurftu þeir að taka prófið til að geta veitt sýn hreindýr
- Efitr flug þá, hinsvegar, var þeim ekki gefinn kostur að einusinni "prófa" byssurnar sýnar, bara til að sannreyna að allt væri í lagi, heldur var þeim sagt að þeir færu beint í próf.
- Þeir báðir þurftu að þreyta prófið 3 sinnum til að ná því, einfaldlega vegna þess að þeir voru nýstignir úr flugvél, höfðu ekki tækifæri til að "sannreyna" byssurnar sínar eftir flugið og voru "stressaðir"
- Síðan sé ég að þessir 2 menn skjóta sín dýr á yfir 200 metra færi...

Jú mikil ósköp, ef maður fer á hreindýraveriðar þá má (og skyldi) gera ráð fyrir því að þú (veiðimaðurinn) hafir næga kunnáttu og reynslu til að "taka í gikkinn" og fella dýrið" en við skyldum ekki gleyman því að við allir (öll) höfum okkar "góðu" og "slæmu daga" og eitt "feilskot" þýðir ekki að þú kunnir ekki að veiða og/eða getir skotið hreindýr...........

Bara til að "Súmmera" hvað ég er að reyna að segja:
- Skotprófin eru af hinu góða
- Að ætlast til til að allir hitti 100% allan tíman er bara rugl (5 skot, 5 mínútur...)
- Kostnaður við prófin er bara brot af því sem maður borgar fyrir leyfið
- Að sjálfsögðu ætti ekki að þvinga menn til að taka prófið áður en þeir sækja um

Bara svona til umhugsunar......
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Svona fyrst maður er nú orðin skattsvikari líka það er ágætt að benda mönnum á lög nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Þar sem mér sem vektaka hjá mínu skotfélagi er heimilt að selja mína vöru og þjónustu fyrir allt að 1.000.0000- kr á hverju 12 mánaða tímabili án þess að að vera með vsk númer og formlegan rekstur. Hvað ég geri við ágóðann er svo mitt mál hvort ég gef mínu félagi hann eða ekki.
En eins og ág sagði áður þá vill ég að Frumherji eða svipaður aðili komi til með að að sjá um þetta í framtíðinni. Miðað við hvað það kostar að skoð einn bíl á hvað ca 15 mín. hvað haldið þið að skotpróf kosti þá? þegar þeir verða búnir að byggja sér aðstöðu til prófana. Svo eru þeir þekktir fyri liðlegheit og frjálslegann opnunartíma.
Og maður er þá laus við allt pex og ekki hlaupandi um hálft sumarið við að "redda" mönnum sem bara "ómögulega" komast á auglýstum tíma í skotprófið.
ES.
Að vísu verður að segjast að framkvæmd prófanna hefur ekki verið til fyrirmyndar hjá öllum framkvæmdaaðilum eftir mínum heimildum, sem eru nokkuð traustar og er það miður. En fer vonadi batnandi því ég tel prófið eiga fullan rétt á sér.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Gisminn »

Síðast þegar ég vissi borgar maður staðgreiðsluskatt af launum en ekki Vsk ;)
Og já kannski væri best að aðilar sem ekki hafa neina hagsmuni að verja nema starfið sitt launaða sinni þessu.Enda held ég að 100 metra hreindýrabraut á móti Húsakosti og vélum Frumherja blikni mikið í kostnaði og viðhaldi :twisted:
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by Gisminn »

En þetta mál leysist ekki hér en ég er samt komin með nokkrar hugmyndir og það er þó eitthvað.
eins og til dæmis að hafa eina óháða braut í hverjum landsfjórðungi og eins og Jón og Magnús bentu á mætti hún ekki rukka meira né minna en þau skotfélög sem myndu samt nenna þessari kvöð og pínu og fylgja lögboðinu gjaldi.
Gleðilega páska og meigi allir hafa það sem best.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Skotvís og skotprófin

Unread post by sindrisig »

Guð minn góður ef mönnum dytti það "snjallræði" í hug að láta Frumherja eða aðrar skoðunarstofur í skjóli einokunar og ríkisforssjá sjá um prófið... Nóg er nú samt!!

Ég bara held að þú ættir að láta þessa setningu hverfa svo að einhverjum detti þetta snjallræði þitt ekki í hug.
Sindri Karl Sigurðsson
Post Reply